Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 34
242 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í blóðsjúkdómum við læknadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur við Landspít- ala, og hópur vísindamanna undir hans forystu, hefur hlotið 300 milljóna króna styrk til krabbameinsrannsókna. Rannsóknarefnið er forstig mergæxla og framvinda sjúkdómsins í mannslíkam- anum. Rannsóknarteymi Sigurðar Yngva samanstendur af sjö doktorsnemum, tölfræðingi, verkefnisstjóra auk fjölda læknanema. Sigurður Yngvi segir að rannsóknarhópur- inn stefni að því að bjóða um 140.000 manns yfir fertugu, búsettum á Íslandi, að taka þátt og skima fyrir forstigi mergæxlis, svokallaðri einstofna góðkynja mótefna- hækkun (MGUS). Finnist þetta forstig sjúkdómsins verði viðkomandi einstak- lingum boðið að taka þátt í klínískri rannsókn þar sem markmiðið er að skoða hvaða meðferð henti best. Jafnframt er ætlunin að nýta gögnin úr rannsókninni til þess að þróa nýtt áhættulíkan fyrir framþróun sjúkdómsins. „Í framhaldinu stefnum við að því að geta boðið sjúk- lingum með mergæxli meðferð mun fyrr en annars gerist og er það von okkar að þannig getum við stuðlað að lækningu sjúkdómsins.“ 140 þúsund Íslendingum, 40 ára og eldri, verður boðið að taka þátt í rann- sókninni. Skimað verður fyrir forstigi merg æxlis og þeim sem greinast verður boðið að taka þátt í klínískri rannsókn. „Í stað þess að hefja skipulega skimun ætl- um við að rannsaka gildi skimunar fyrir forstigi mergæxla. Við munum með niður- stöðum þessarar rannsóknar geta svarað nokkrum mikilvægum spurningum, eins og hvort skimun sé hagkvæm, hversu oft þurfi að fylgjast með einstaklingunum, hvaða áhrif það hafi á lífsgæði einstak- linga að hafa vitneskju um forstig krabba- meina og hvort unnt sé að lækna mergæxli með því að meðhöndla það fyrr en nú er gert um allan heim,“ segir Sigurður Yngvi. Áætlað er að um 4% fólks yfir fimm- tugu séu með MGUS-forstig mergæxlis en fæst þeirra hafa verið greind. Árlega greinast um 20-25 manns með sjúkdóminn hér á landi og alls um 200.000 manns í heiminum öllum. Samfara auknum rann- sóknum á sjúkdómnum og nýjum og betri lyfjum hafa horfur sjúklinga með mer- gæxli hins vegar batnað gríðarlega síðast- liðin ár, að sögn Sigurðar Yngva. Bandarísku samtökin The International Myeloma Foundation veita styrkinn sem er einn sá hæsti sem vísindamaður við Háskóla Íslands hefur hlotið. IMF hafa yfir að ráða elsta og stærsta sjóði heims sem styrkir sérstaklega rannsóknir á mergæxl- um en markmið hans er að stuðla að bætt- um lífsgæðum fyrir mergæxlissjúklinga bæði með rannsóknum, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf. Sjóðurinn hefur meðal annars sett á laggirnar rannsóknaverkefnið Black Swan Research Initiative en markmið þess er að stuðla að lækningu á mergæxli. Rannsóknin er samstarfsverkefni Há- skóla Íslands, Landspítala, Krabbameins- félags Íslands, Memorial Sloan Kettering sjúkrahússins í New York og Binding Site í Bretlandi. Stærsti styrkur sem íslenskum hópi vísindamanna hefur hlotnast ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Stefnum að því að geta boðið sjúklingum með mer- gæxli meðferð mun fyrr en annars gerist og er það von okkar að þannig getum við stuðlað að lækningu sjúk- dómsins,“ segir Sigurður Yngvi Kristinsson prófessor í blóðsjúkdómum. CP REYKJAVÍK er frísklegt og skapandi þjónustu- fyrirtæki sem skipuleggur viðburði, ferðir og ráðstefnur fyrir innlenda og erlenda viðskiptavini. Hafðu samband og við gerum þér tilboð í ógleymanlega upplifun Suðurlandsbraut 6 - 108 Reykjavík - 510 3900 - www.cpreykjavik.is VIÐ GERUM ATVINNULÍFIÐ VIÐBURÐARÍKARA

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.