Fréttatíminn - 27.05.2016, Side 2
ALICANTE
Netverð á mann frá kr. 9.900 aðra leið m/sköttum og
tösku.Flugsæti
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.Frá kr.
9.900
Aðra leið m/sköttum
og tösku
Kvennalið Barcelona kemur í sumar og spilar leik hér á landi í
tilefni af metnaðarfullu fótboltanámskeiði fyrir stúlkur.
Hátt í 300 stúlkur skráð sig á Barcelona-námskeið
Fótbolti Þjálfarar á vegum
stórliðsins FC Barcelona
koma til landsins í sumar til
þess að þjálfa íslenskar stúlk-
ur. Kvennaliðið mun einnig
koma síðar í sumar og spila
við úrvalslið í Pepsí-deildinni.
Búið er að loka fyrir skráningu á
stúlknanámskeið FC Barcelona sem
fram fer hér á landi næsta sumar.
Hátt í þrjú hundruð stúlkur hafa
skráð sig á námskeiðið.
„Þetta verður í fyrsta skiptið sem
þeir halda knattspyrnubúðir fyrir
stelpur fyrir utan Spán,“ segir Logi
Ólafsson, einn af umsjónarmönn-
um með metnaðarfullu verkefni
spænska stórliðsins FC Barcelona,
sem hyggst halda fjölmennt fót-
boltanámskeið fyrir stúlkur á Ís-
landi í sumar.
Um er að ræða átak á vegum
Barcelona, en til stendur að fara
um Evrópu með samskonar nám-
skeið, en Ísland er fyrsti viðkomu-
staðurinn í Evrópu.
Stefnt var á að fá um 200 stúlkur
á námskeiðið, en þátttakan hefur
farið fram úr björtustu vonum.
Námskeiðið verður haldið á Hlíðar-
enda, heimavelli Vals, og er það
ætlað stúlkum á aldrinum 10-16 ára.
Áhugi Barcelona á Íslandi er
ekki síst til komin vegna ótrúlega
góðs gengis íslenska kvennalands-
liðsins. „Þeir koma meðal annars
hingað vegna íslenska kvennafót-
boltans sem hefur risið mjög hátt
undanfarin ár,“ segir Logi. Þá er
einnig stefnt að því að kvennalið
Barcelona komi til landsins síðar
í sumar og spili við úrvalslið úr
Pepsí-deildinni.
Á meðal leiðbeinanda á nám-
skeiðinu verður Dagbjört Ína
Guðjónsdóttir, sem er dóttir
handboltakappans Guðjóns Vals
Sigurðssonar, en hún spilaði meðal
annars með unglingaliði Barcelona
á Spáni. | vg
Dómsmál Ákæruvaldi tókst
ekki að sanna að sautján
ára piltur hafi ætlað sér að
nauðga unglingsstúlku
Piltur á tvítugsaldri var sýknaður
í Héraðsdómi Vesturlands á mið-
vikudaginn fyrir að nauðga sextán
ára stúlku sem gat ekki spornað við
verknaðinum vegna ölvunar í júlí
árið 2014. Pilturinn játaði að hafa
haft mök við stúlkuna, sem var of-
urölvi, en hann hélt því fram að
kynlífið hefði verið með samþykki
beggja aðila. Pilturinn var sýknað-
ur á þeim grundvelli að hann hefði
„haft réttmæta ástæðu til að ætla að
brotaþoli væri samþykkur kynmök-
um,“ eins og það var orðað í dómi
Héraðsdóms Vesturlands.
Vitni lýsa því þannig að stúlkan
hefði sest klofvega yfir piltinn fyrr
um kvöldið auk þess sem hún á að
hafa kysst hann.
Stúlkan sagði móður sinni frá
atvikinu á mánudeginum eftir, þá
skrifaði hún meðal annars skilaboð
til móður sinnar sem hún skrifaði:
„Mamma það á enginn að geta gert
manni eitthvað og komist upp með
það.“ Svo skrifaði hún: „Mér var
nauðgað.“ Ekki var um það deilt
að hún hefði verið ölvuð og kem-
ur meðal annars fram að þrátt fyrir
ósamræmi í frásögn hennar, sem
megi skýra með ölvun, þá sé fram-
burður hennar ekki ótrúverðugur.
| vg
Sýknaður vegna skorts á ásetningi
Pilturinn var sýknaður þar sem ekki tókst að sanna ásetning.
Björn Ingi kaupir bóka-
búð Máls og menningar
Heimildir Fréttatímans herma
að fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi
Hrafnsson sé að kaupa rekstur
bókabúðarinnar Máls og menn-
ingar við Laugaveg 18.
55 ár eru síðan bókabúðin var
opnuð í húsinu og hefur Björn Ingi
í huga að reka búðina þar áfram. Þá
verður kaffihúsið Iða áfram á sín-
um stað. Arndís B. Sigurðardóttir
hefur verið framkvæmdastjóri Iðu
bókabúðanna og Máls og menn-
ingar hingað til. Viðskiptin eru ekki
formlega frágengin en starfsfólk
búðarinnar hefur fengið upplýs-
ingar um kaupin. | þt
Björn Ingi Hrafnsson.
Mansal Stjórn Félags
heyrnarlausra hefur vikið
starfsmanni úr starfi vegna
gruns um mansal sem
tengist sölu á happdrættis-
miðum
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Starfsmanni Félags heyrnalausra
hefur verið vikið úr starfi vegna
rannsóknar lögreglu á meintu man-
sali. Í yfirlýsingu frá félaginu seg-
ir að starfsmaðurinn hafi upplýst
stjórn félagsins um málið síðasta
mánudag en konan, sem er af er-
lendu bergi brotnu, leitaði til ásjár
lögreglu vegna meints mansals af
hálfu mannsins. Konan, sem er fötl-
uð, seldi happdrættismiða fyrir fé-
lagið.
Það var um síðustu helgi sem
konan leitaði til lögreglu en hún er
rússnesk að uppruna og heyrnar-
laus. Konan mun hafa greitt 125
þúsund krónur til þess að komast
til landsins, en starfsmaður Félags
heyrnarlausra er sakaður um að
hafa greitt henni tvívegis 20 þús-
und krónur fyrir vinnu sína við að
selja happdrættismiða fyrir félagið,
en hún fékk aðeins 15% af andvirði
miðanna. Samkvæmt tilkynningu
Félags heyrnarlausra eiga allir sölu-
menn að fá 25% af seldum miðum.
Innlendir sem erlendir.
Í svari Daða Hreinssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins, í viðtali í
Fréttablaðinu í gær, kom fram að
konan hafi gert samkomulag við
starfsmanninn um að hann fengi
10% af sölulaunum gegn því að kon-
an fengi gistingu á heimili hans. Þá
er starfsmaðurinn sakaður um að
hafa rukkað konuna um 3000 krón-
ur fyrir akstur á milli staða.
Í tilkynningunni segir aftur á
móti að ef það komi til aukakostn-
aðar, t.d. gistikostnaðar vegna sölu-
ferða úti á land, hafi félagið jafn-
framt greitt þann kostnað.
Snorri Birgisson, yfirmaður
mansalsteymis lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, segir í samtali
við Fréttatímann að málið sé til
rannsóknar og að skýrslutökur séu
hafnar.
„Málið er hinsvegar á mjög við-
kvæmum tímapunkti þannig við
getum ekki gefið frekar upplýsingar
um það,“ sagði Snorri svo.
Í tilkynningu frá stjórninni seg-
ir að stjórn Félags heyrnarlausra
harmi málið sem og líti það mjög
alvarlegum augum.
„Ef brotið er á rétti heyrnarlauss
fólks hefur félagið veitt öllum þeim
sem til þess hafa leitað aðstoð og
leiðbeint þeim um rétt sinn,“ segir
svo í yfirlýsingunni. Aðalfundur fé-
lagsins fór fram í gær og stóð fram
á kvöld. Honum var ekki lokið áður
en Fréttatíminn fór í prentun.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna málsins en konan dvelur í
Kvennaathvarfinu þessa stundina.
Starfsmanni Félags
heyrnalausra vikið frá
Starfsmaðurinn upplýsti stjórnina um eftirgrennslan lögreglu síðasta mánudag.
Forsetakosningar Skoðana-
kannanir mánuði fyrir kosn-
ingarnar 2012 voru merki-
lega keimlíkar niðurstöðu
kosninganna. Það bendir
ekki til að nokkrum takist að
ógna forystu Guðna Th.
Í könnun sem vísir.is gerði mánuði
fyrir forsetakosningarnar 2012
sögðust 56,4 prósent aðspurðra
ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson
og 34,1 prósent Þóru Arnórsdóttur.
Í kosningunum sjálfum fékk Ólaf-
ur 52,8 prósent atkvæða og Þóra
33,2 prósent. Ólafur tapaði því 3,6
prósentustigum síðasta mánuðinn
fyrir kosningum og Þóra 0,9 pró-
sentustigum. Hreyfingin síðasta
mánuðinn var því lítil sem engin.
Sagan ýtir því ekki undir von-
ir Davíðs Oddssonar, Andra Snæs
Magnasonar eða Höllu Tómasdóttur
að ógna afgerandi forystu Guðna
Th. Jóhannessonar, samkvæmt
könnunum sem birst hafa síðustu
daga. Samkvæmt þeim er Guðni
rúmum 30 prósentustigum á und-
an keppinautum sínum. Ef hann
glutrar niður þeirri forystu fram að
kosningum munum við verða vitni
af sögulegum mánuði. | gse
Lítil hreyfing síðasta mánuðinn
Guðni Th. jóhannesson.
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016