Fréttatíminn - 27.05.2016, Side 6
Hvað er Frú Ragnheiður?
Afgreiðslutími Rvk.
Mán. til fös. kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Heimsþekktu amerísku
heilsurúmin frá Spring Air.
Nú í Dorma
Fáanlegt í stærðunum 120/140/160/180 x 200 cm
Spring Air REGENCY
heilsurúm með classic botni
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
• Fimm svæðaskipt
pokagormakerfi
• Tvöfalt gormakerfi
• Hægindalag í yfirdýnu
• Silkiblandað bómullar
áklæði
• Steyptur svampur í köntum
• Sterkur botn
Aðeins 209.925 kr.
Kynningartilboð 180 x 200 cm
Fullt verð: 279.900 kr.
Komdu og leggstu
í draumarúmið!
Regency er sérlega vandað heilsurúm frá
Spring Air, einum þekktasta rúmafram-
leiðanda Bandaríkjanna.
Gerðu kröfur um gæði – Spring Air stenst þær.
Kolgríma Gestsdóttir og Bilal Fathi búa saman í Kópavogi.
Fengu ekki að vita hvert Bilal var fluttur
Hælisleitendur Bilal Fathi var
framseldur til Finnlands síðasta
föstudag, en fjölskylda hans hér
á landi fékk engar upplýsingar
hvert nákvæmlega hann var
fluttur.
„Það var mikill léttir að fá staðfestingu
á því að hann væri hérna á mánudags-
morguninn,“ segir Ida Jensdóttir, móð-
ir Kolgrímu Gestsdóttur og tengdamóð-
ir Bilal Fathi Tamimi, sem situr nú
í finnsku fangelsi í borginni Turku.
Mæðgurnar fengu engar upplýsingar um
það hvert hann var fluttur, aðrar en að
hann hefði lent í Helsinki. Þær fóru því
upp á von og óvon til borgarinnar Turku,
þar sem hann bjó áður, til þess að finna
hann. Þær leituðu svo til lögreglustöðv-
ar í borginni á föstudag og óskuðu eft-
ir upplýsingum um staðsetningu hans.
Hana fengu þær svo ekki fyrr en tveimur
dögum síðar, eða á mánudaginn.
Fréttatíminn greindi frá því í síðustu
viku að Hæstiréttur Íslands hefði staðfest
framsalsbeiðni á hendur Bilal til Finn-
lands vegna líkamsárásar sem hann átti að
hafa tekið þátt í rétt rúmlega fimmtán ára
gamall og var hann fluttur úr landi síðasta
föstudag. Sjálfur var hann flóttamaður í
landinu og segist hafa lent í vinnumansali
sem endaði með því að hann og annar,
töluvert eldri maður, réðust á vinnuveit-
andann vegna ógreiddra launa.
„Honum líður ágætlega miðað við
aðstæður,“ segir Kolgríma, kærasta
Bilal, en mæðgurnar eru bjartsýnar á
að hann muni fá skilorðsbundinn dóm,
verði hann sakfelldur.
„Við erum hjá mjög góðu fólki,
vinapari Bilal hérna í Turku, og þau
hafa hjálpað okkur mikið,“ segri Ida
sem réði meðal annars lögfræðing fyr-
ir Bilal. Vonast mæðgurnar til þess að
mögulegt verði að hann afpláni hér á
landi. Þær fá svo að hitta hann næsta
sunnudag.
„Ég er mjög spennt að fá að sjá
hann,“ segir Kolgríma sem saknar
kærasta síns sárlega en stefnt er að því
að réttarhöldin hefjist í byrjun júní. | vg
Frú Ragnheiður er
sérinnréttaður gamall
sjúkrabíll sem þjón-
ustar heimilislausa
og fólk í neyslu með
skaðaminnkun að
leiðarljósi.
Meginmarkmiðið er
að veita heilbrigðis-
þjónustu og draga úr
útbreiðslu lifrarbólgu
C og HIV. Bíllinn
er á vegum Rauða
krossins í Reykja-
vík, hefur tvo fasta
viðverustaði en fer
um allt höfuðborgar-
svæðið. Bíllinn er
mannaður heilbrigðis-
starfsfólki í sjálfboða-
vinnu og
verkefnastjóra í 50%
starfshlutfalli sem
annast umsýslu bíls-
ins.
Í bílnum er nála-
skiptaþjónusta þar
sem einstaklingar
sem sprauta vímu-
efnum í æð geta
fengið hreinar nálar,
sprautur, nálabox og
annað til að draga úr
smitum. Tekið er við
nálaboxum til förgun-
ar.
Svo mikil eftirspurn
er meðal menntaðs
heilbrigðisstarfsfólks
að fá að starfa á bíln-
um, að myndast hef-
ur biðlisti.
Skaðaminnkun Starfsfólk
Frú Ragnheiðar vill fá heim-
ild til að gefa skjólstæðing-
um sínum sýklalyf við
sýkingum, skima fyrir lifrar-
bólgu C og geta gefið mótefni
við of stórum skömmtum
ópíumskyldra lyfja.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Naloxone er hættulaust efni og
ekki ávanabindandi. Fyrir þá sem
glíma við ópíumvanda, er lyfið jafn
nauðsynlegt og insúlínpenni er
sykursjúkum. Þess vegna er mik-
ilvægt að geta gefið okkar skjól-
stæðingum það ef þeir taka of stóra
skammta. Við myndum gjarnan
vilja að lyfinu yrði dreift til fólks
sem glímir við þennan vanda, líkt
og gefið hefur góða raun í útlönd-
um í áraraðir. Þá fá notendur lyfið í
nefspreyformi, fræðslu um notkun
þess og getur bjargað lífi fólks sem
tekið hefur of stóra skammta,“ seg-
ir Svala Jóhannesdóttir, verkefna-
stýra Frú Ragnheiðar. Hún segir
skjólstæðingahóp bílsins veigra sér
við að sækja heilbrigðisþjónustu,
meðal annars vegna þess að fólkið
hefur upplifað fordóma og niður-
lægingu áður.
„Okkar hlutverk er því að mæta
fólki þar sem það er. Eitt af megin-
markmiðum Frú Ragnheiðar er að
draga úr útbreiðslu smitsjúkdóma.
En til þess viljum við geta skimað
fyrir lifrarbólgu C og HIV smiti.
Það myndi stórauka þjónustuna.
Þá væri eðlilegt skref að geta veitt
fólki sýklalyf í bílnum, því algeng-
ustu verkefni okkar eru að skoða
ástand á æðum og meta hvort fólk
sé með húðsýkingar vegna sprautu-
notkunar.“
Ísabella Björnsdóttir, félagsráð-
gjafi fíknigeðdeildar Landspítalans,
er í stjórn Frú Ragnheiðar og tekur
undir með Svölu um að nauðsynlegt
sé að efla þjónustuna og viðurkenna
sem heilbrigðisþjónustu fyrir jaðar-
setta einstaklinga. „Þjónustan þarf
að komast á föst fjárlög svo hægt
verði að þróa verkefnið áfram í sam-
ræmi við þörfina sem er mikil.“
Hún segir að mæta þurfi þörf-
um skjólstæðinga Frú Ragnheiðar
með víðtækari hætti. „Koma þarf
upp nálaförgunarboxum víðar um
borgina, svo fólk geti losað sig við
sprautur á öruggari hátt. Það væri
staðfesting á tilvist þessa jaðarsetta
og oft á tíðum ósýnlilega hóps.”
Vilja gefa mótefni
í Frú Ragnheiði
Ísabella
Björnsdóttir,
félagsráðgjafi
á fíknigeðdeild
Landspítalans.
Svala Jóhannesdóttir, verk-
efnastjóri í Frú Ragnheiðar-
-bílnum.
Bækur „Auðvitað er hún sök-
uð um rasisma, það eru allir
sem segja satt í svona átaka-
málum,“ segir Geir Waage,
sóknarprestur í Reykholti,
en hann var einn þeirra sem
hlýddu á rithöfundinn Hege
Storhaug sem fjallaði um bók
sína Þjóðarpláguna Íslam á
fundi á Fosshóteli við Höfða-
torg á miðvikudagskvöld.
„Það er þó bara þvættingur.
Þessi kona er nákunnug íslam,
og mér finnst bókin hennar afar
góð,“ segir Geir. „Hún er alls ekki
einsýn eða ofstækisfull, það er
fráleitt að halda því fram,“ segir
hann. „Hún er einfaldlega borin
þessum sökum þar sem hún er að
gagnrýna þennan pólitíska rét-
trúnað og svokallað frjálslyndi í
Vestur-Evrópu.
Norski höfundurinn er afar um-
deildur í heimalandi sínu og hefur
verið sakaður um kynþáttahatur
og hræðsluáróður. Lena Larsen,
sérfræðingur í trúarbragðasögu,
sem höfundurinn hefur kallað
íslamista, segir í Klassekampen
að málflutningur Hege Storhaug
og skoðanasystkina hennar og
áróðurinn gegn múslimum minni
um margt að áróðurinn gegn
gyðingum í Þýskalandi á fjórða
áratugnum.
Það er bókaútgáfan Tjáningar-
frelsið sem gefur út bókina á
Íslensku en þýðandi er Magnús
Þór Hafsteinsson, fyrrverandi
þingmaður Frjálslynda flokksins.
| þká
Auðvitað er hún sökuð um rasisma
Frá fyrirlestri Hege Storhaug þar sem Geir Waage
var meðal áheyrenda.
Mynd | Pressphoto
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016