Fréttatíminn - 27.05.2016, Qupperneq 8
Hverfið mitt – Hugmyndasöfnun
Hvernig getur þitt hverfi orðið enn betra? Núna getur þú komið þinni hugmynd á framfæri,
hvort sem hún er raunhæf eða ekki. Sendu inn tillögu á betrireykjavik.is fyrir 15. júní.
Nú er tækifærið til að skila inn betri tillögum
Pálmatré á Sæbraut, ta
kk!
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Kvikmyndir Margt í
myndinni The Revenant
svipar til Hross í oss. En er
hollt að sofa í hestshræi?
Valur Gunnarsson
valurgunnars@frettatiminn.is
Leonardo DiCaprio skar upp hest-
skrokk í The Revenant eftir Alej-
andro Innaritu og kom sér fyrir í hon-
um, sem gerðist víst bæði í myndinni
og utan hennar. Nánast sama atriði
er að finna í Hross í oss eft- ir
Benedikt Erlingsson. Sum-
ir vilja meina að þetta sé
engin tilviljun, og spunn-
ust miklar umræð-
ur á facebook um
helgina þar sem
margir helstu
menningar-
páfar lands-
ins tóku
þátt.
Berg-
steinn Sig-
urðsson úr
Kastljósinu hóf umræðurnar og segir
hann líkindin á milli myndanna svo
mikil að varla sé um tilviljun sé að
ræða: „Ég hef frekar á tilfinningunni
að Innaritu hafi beinlínis fengið þetta
atriði „lánað“,“ segir hann
Aðrir líta svo á að bæði Benedikt
og Alejandro hafi sótt í sama brunn.
„Lánað úr Return of the Jedi,“ seg-
ir Örn Úlfar Sævarsson, en reyndar
var svipað atriði í annarri Star Wars
mynd, The Empire Strikes Back. Páll
Baldvin Baldvinsson bendir á að álíka
senu sé að finna í Fóstbræðrasögu
Gunnars Gunnarssonar og Páll Ásgeir
Ásgeirsson vísar í sænsku Vesturfara-
sögurnar sem eitt sinn voru sýndar
hér í Sjón-
varpinu. Brynja Þorgeirsdóttir dregur
fram vefsíðuna crawlinginsideanimal-
stosurvive.blogspot.is, sem er alfarið
tileinkuð þeirri list að skríða inn í látn-
ar skepnur til að halda lífi, en Berg-
steinn vill meina að vísindin séu ekki
sammála um gagnsemi þess.
Margt annað í Revenant, sem
DiCaprio fékk Óskarsverðlaun fyr-
ir, minnir á mynd Benna sem kom
út tveim árum fyrr. Mikið er af nær-
myndum af hestsaugum sem persón-
urnar speglast í og hrossið er alls-
staðar nálægt. Margir hafa einnig
bent á líkindi Revenant við
verk hins goðsagnakennda
rússneska leikstjóra And-
rei Tarkovsky. Benedikt
sjálfur á lokaorðið í
umræðum þessum
og segir: „Það er
gaman að geta sagt
þessa setningu: „Í
þessari mynd er
margt tekið að
láni frá okkur Tar-
kovsky.““
DiCaprio minnir á Benna Erlings
Glöggt er hestsaugað. Úr myndinni Hross í oss.
Benedikt Erlings-
son: Vann kvik-
myndaverðlaun
Norðurlandaráðs
fyrir mynd sína.
Leonardo
DiCaprio:
Vann
loksins
Óskarinn
fyrir að
sofa í
hross-
hræi.
Bókmenntir Íslendingar
loksins búnir að uppgötva
Finnland
Finnskir höfundar stóðu lengi
frændum okkar Dönum, Sví-
um og Norðmönnum nokkuð
að baki varðandi vinsældir, en
nú virðist breyting þar á. Bókin
Kólibrí morðin eftir Kati Hiekka-
-Pelto hefur vakið athygli hér
sem annarsstaðar á árinu og í
síðustu viku kom bókin Þar sem
fjórir vegir mætast, eftir Tommi
Konnunen, út.
„Það er mikil vakning í gangi,
það er rétt,“ segir Guðrún Vil-
mundardóttir, útgefandi hjá
Bjarti-Veröld. „Ég held það komi
í kjölfar Sofi Oksanen. Það er oft
þegar einhver svona stór kemur,
þá lítur fólk í þá átt.“
Þrjár bækur Oksanen hafa
komið út á íslensku hjá JPV og
ein sagan, Hreinsun, einnig verið
sett upp af Þjóðleikhúsinu. Hún
var gestur Bókmenntahátíðar
árið 2009, en í fyrra var það Katja
Kettu sem vakti athygli með bók-
inni Ljósmóðir af Guðs náð og
gerist stríðinu, eins og verk Ok-
sanen. „Hreinsun var náttúrulega
„megahit“,“ segir Árni Þór Árna-
son hjá Forlaginu. „Og Katja Kettu
hefur gengið vel líka.“
Sigurður Karlsson, leikari og
þýðandi, hefur verið manna dug-
legastur við að þýða úr finnsku
undanfarin rúman áratug og seg-
ir: „Það tók mig fjögur ár að finna
útgefenda sem nennti að hlusta
á mig ræða um finnskar bók-
menntir á sínum tíma, en þetta
hefur verið stöðugt síðan og fer
vaxandi.“
Meðal annarra Finna sem finna
má í bókabúðum hérlendis eru
Arto Pasilinna, sem fyrst sló í
gegn með Ári hérans, krimmahöf-
undinn Antti Tuomainen og jafn-
vel Írakann Hassan Blasim sem
hefur verið búsettur í Finnlandi í
mörg ár og kom á Bókmenntahá-
tíð síðasta haust. | vsg
Katja Kettu sló í gegn á Bók-
menntahátíðinni í fyrra með
ljósmóðursögu sinni.
Finnskar bækur
nýja bylgjan
8 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016