Fréttatíminn - 27.05.2016, Page 22
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
Við hvern áfanga af losun hafta heyrast fullyrðingar stjórnmálamanna um að nú hilli undir að öllum
gjaldeyrishöftum verði lyft. Þetta
eru innihaldslausar væntingar. Það
er óhugsandi í ljósi nýliðinnar sögu
að íslenska krónan verði nokkru
sinni án hafta. Það var reynt um
skamma hríð að láta hin svokölluð
markaðsöfl gæta krónunnar og það
endaði í hruni gjaldmiðilsins sem
leiddi yfir allan almenning þung-
bæra kjaraskerðingu sem fólk er
enn að súpa seyðið af.
Svo til allan líftíma sinn hefur
krónan verið í höftum. Íslenska
krónuhagkerfið er svo lítið og veikt
að það er ekki hægt að sleppa krón-
unni lausri. Sagan sannar að krón-
an heldur illa utan um verðmæti.
Verðbólga hefur ætíð verið hærri
hér en í næstu löndum. Ástæða þess
að verðbólga er nú lág er að hversu
hátt gengisfallið var síðast. Sá sem
geymdi fé sitt í krónum horfir því á
verðmæti sín rýrna. Íslenskar krón-
ur vilja því út úr kerfinu til að bjarga
lífi sínu.
Þetta ójafnvægi hefur alla tíð ver-
ið á Íslandi. Allir sem vettlingi geta
valdið hafa reynt að koma fé sínu
í skjól í útlöndum. Það átti við um
saltfiskútflytjendur snemma á síð-
ustu öld og síldarspekúlanta, heild-
sala og bílasala, fiskútflytjendur og
útrásarvíkinga.
Lengst af var girt fyrir fjárflóttann
með lögum um gjaldeyrisskil, en þau
voru alla tíð götótt. Þeir sem mestan
hag höfðu af götunum, fiskútflytj-
endur og heildasalar, beittu áhrif-
um í gegnum stjórnmálaflokkana
til að halda þessum götum opnum.
Ströngustu reglur giltu fyrir almenn-
ing en ríkisvaldið horfði í gegnum
fingur sér varðandi svik inn- og út-
flutningsfyrirtækja.
Með EES-samningnum voru gjald-
eyrisviðskipti gefin frjáls. Eftir það
liðu ekki nema um tíu ár áður en
fjárflóttinn frá Íslandi hafði rústað
íslensku efnahagslífi. Öll fyrirtæki
landsins höfðu verið skuldsett upp í
rjáfur til að standa undir arðgreiðsl-
um til eigendanna sem flúðu með féð
út úr krónuhagkerfinu. Við það féll
krónan, verð á innflutningi snögg-
hækkaði og kaupmáttur meginþorra
almennings féll saman.
Eftir á að hyggja er augljóst að
stjórnvöld hefðu átt að grípa inn í. Á
þremur árum fyrir Hrun runnu úr
landinu um 2200 milljarðar króna
að núvirði. Það er sexföld snjóhengj-
an sem Seðlabankinn er að reyna að
hemja með lögum sem Alþingi sam-
þykkti um helgina.
Ástæður þess að ekkert var að gert
voru annars vegar trúarlegar og hins
vegar mannlegar. Stjórnvöld á þess-
um tíma, bæði í ríkisstjórn og Seðla-
banka, voru markaðstrúar; trúðu að
með óbeisluðum markaði risi upp
hið náttúrlega jafnvægi. Þegar fjár-
munir streymdu til landsins í von
um hagnað af vaxtamunarviðskipt-
um töldu ráðamenn það viðurkenn-
ingu markaðarins á hæfni þeirra
sjálfra og færni. Þegar erlendir spá-
kaupmenn misstu trú á íslensku
bólunni sprakk hún. Afleiðingar fjár-
flóttans hvolfdust yfir almenning.
Sagan kennir okkur að krónan er
sameign okkar. Við eigum hvert fyr-
ir sig einhverjar krónur en verðmæti
þeirra markast af því hvernig okkur
farnast að verja verðgildi krónunnar.
Við getum farið með fé okkar eins og
við viljum, svo framarlega sem það
skaðar ekki aðra. Þótt það geti verið
hagsmunir okkar að flytja fé okkar
úr landi getum við ekki gert það ef
það veldur öllum hinum skaða.
Á meðan ferðamenn streyma
til landsins er engin þörf á að
setja gjaldeyrishöft á öll venju-
leg viðskipti. Höftin munu ekki að
snerta venjulegt líf venjulegs fólks
á nokkurn hátt. En ef það sjást aft-
ur merki fjárflótta frá Íslandi verða
stjórnvöld að setja upp girðingar
sem halda. Við skulum vona að þá
verði ekki einhverjir markaðstrúar
oflátungar við völd.
Við sættum okkur við höft varð-
andi mjaðamaskiptaaðgerðir, svo
dæmi sé tekið. Þegar 150 manns vilja
slíka aðgerð en Landspítalinn ann-
ar ekki nema 50 á ári verður þriggja
ára bið eftir aðgerð. Það sama mun
gilda um fjárflótta frá Íslandi. Ef 500
milljarðar vilja komast út úr krónu-
hagkerfinu en kerfið þolir aðeins
útstreymi 100 milljarða á ári mun
myndast fimm ára biðröð. Það má
vera fúlt fyrir þá sem lenda í röðinni,
en þeir verða bara að sætta sig við
það. Hinn kosturinn er að taka upp
sterkari mynt.
Höftin munu ekki hafa áhrif á
þá sem vilja ferðast til útlanda eða
stunda eðlileg milliríkjaviðskipti.
Þau munu aðeins hefta eitt pró-
sent af eina prósentinu, fólkið sem
flutti út 2200 milljarða króna fyrir
nokkrum árum og rústaði með því
íslenskan efnahag.
Gunnar Smári
KRÓNAN ER
ALMENNINGSEIGN
– EINS OG
FISKURINN
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016
LAKKVÖRN
+GLJÁI
Sterk og
endingargóð
gljávörn!
Made in GerMany
Since 1950
Hefur hlotið
frábæra dóma!