Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 22
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Við hvern áfanga af losun hafta heyrast fullyrðingar stjórnmálamanna um að nú hilli undir að öllum gjaldeyrishöftum verði lyft. Þetta eru innihaldslausar væntingar. Það er óhugsandi í ljósi nýliðinnar sögu að íslenska krónan verði nokkru sinni án hafta. Það var reynt um skamma hríð að láta hin svokölluð markaðsöfl gæta krónunnar og það endaði í hruni gjaldmiðilsins sem leiddi yfir allan almenning þung- bæra kjaraskerðingu sem fólk er enn að súpa seyðið af. Svo til allan líftíma sinn hefur krónan verið í höftum. Íslenska krónuhagkerfið er svo lítið og veikt að það er ekki hægt að sleppa krón- unni lausri. Sagan sannar að krón- an heldur illa utan um verðmæti. Verðbólga hefur ætíð verið hærri hér en í næstu löndum. Ástæða þess að verðbólga er nú lág er að hversu hátt gengisfallið var síðast. Sá sem geymdi fé sitt í krónum horfir því á verðmæti sín rýrna. Íslenskar krón- ur vilja því út úr kerfinu til að bjarga lífi sínu. Þetta ójafnvægi hefur alla tíð ver- ið á Íslandi. Allir sem vettlingi geta valdið hafa reynt að koma fé sínu í skjól í útlöndum. Það átti við um saltfiskútflytjendur snemma á síð- ustu öld og síldarspekúlanta, heild- sala og bílasala, fiskútflytjendur og útrásarvíkinga. Lengst af var girt fyrir fjárflóttann með lögum um gjaldeyrisskil, en þau voru alla tíð götótt. Þeir sem mestan hag höfðu af götunum, fiskútflytj- endur og heildasalar, beittu áhrif- um í gegnum stjórnmálaflokkana til að halda þessum götum opnum. Ströngustu reglur giltu fyrir almenn- ing en ríkisvaldið horfði í gegnum fingur sér varðandi svik inn- og út- flutningsfyrirtækja. Með EES-samningnum voru gjald- eyrisviðskipti gefin frjáls. Eftir það liðu ekki nema um tíu ár áður en fjárflóttinn frá Íslandi hafði rústað íslensku efnahagslífi. Öll fyrirtæki landsins höfðu verið skuldsett upp í rjáfur til að standa undir arðgreiðsl- um til eigendanna sem flúðu með féð út úr krónuhagkerfinu. Við það féll krónan, verð á innflutningi snögg- hækkaði og kaupmáttur meginþorra almennings féll saman. Eftir á að hyggja er augljóst að stjórnvöld hefðu átt að grípa inn í. Á þremur árum fyrir Hrun runnu úr landinu um 2200 milljarðar króna að núvirði. Það er sexföld snjóhengj- an sem Seðlabankinn er að reyna að hemja með lögum sem Alþingi sam- þykkti um helgina. Ástæður þess að ekkert var að gert voru annars vegar trúarlegar og hins vegar mannlegar. Stjórnvöld á þess- um tíma, bæði í ríkisstjórn og Seðla- banka, voru markaðstrúar; trúðu að með óbeisluðum markaði risi upp hið náttúrlega jafnvægi. Þegar fjár- munir streymdu til landsins í von um hagnað af vaxtamunarviðskipt- um töldu ráðamenn það viðurkenn- ingu markaðarins á hæfni þeirra sjálfra og færni. Þegar erlendir spá- kaupmenn misstu trú á íslensku bólunni sprakk hún. Afleiðingar fjár- flóttans hvolfdust yfir almenning. Sagan kennir okkur að krónan er sameign okkar. Við eigum hvert fyr- ir sig einhverjar krónur en verðmæti þeirra markast af því hvernig okkur farnast að verja verðgildi krónunnar. Við getum farið með fé okkar eins og við viljum, svo framarlega sem það skaðar ekki aðra. Þótt það geti verið hagsmunir okkar að flytja fé okkar úr landi getum við ekki gert það ef það veldur öllum hinum skaða. Á meðan ferðamenn streyma til landsins er engin þörf á að setja gjaldeyrishöft á öll venju- leg viðskipti. Höftin munu ekki að snerta venjulegt líf venjulegs fólks á nokkurn hátt. En ef það sjást aft- ur merki fjárflótta frá Íslandi verða stjórnvöld að setja upp girðingar sem halda. Við skulum vona að þá verði ekki einhverjir markaðstrúar oflátungar við völd. Við sættum okkur við höft varð- andi mjaðamaskiptaaðgerðir, svo dæmi sé tekið. Þegar 150 manns vilja slíka aðgerð en Landspítalinn ann- ar ekki nema 50 á ári verður þriggja ára bið eftir aðgerð. Það sama mun gilda um fjárflótta frá Íslandi. Ef 500 milljarðar vilja komast út úr krónu- hagkerfinu en kerfið þolir aðeins útstreymi 100 milljarða á ári mun myndast fimm ára biðröð. Það má vera fúlt fyrir þá sem lenda í röðinni, en þeir verða bara að sætta sig við það. Hinn kosturinn er að taka upp sterkari mynt. Höftin munu ekki hafa áhrif á þá sem vilja ferðast til útlanda eða stunda eðlileg milliríkjaviðskipti. Þau munu aðeins hefta eitt pró- sent af eina prósentinu, fólkið sem flutti út 2200 milljarða króna fyrir nokkrum árum og rústaði með því íslenskan efnahag. Gunnar Smári KRÓNAN ER ALMENNINGSEIGN – EINS OG FISKURINN Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. 22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 27. maí 2016 LAKKVÖRN +GLJÁI Sterk og endingargóð gljávörn! Made in GerMany Since 1950 Hefur hlotið frábæra dóma!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.