Fréttatíminn - 27.05.2016, Blaðsíða 52
Gott að fagna
fjölbreytni
Markaður með hönnun
og mat alls staðar að úr
heiminum, heimstónlist
og balkandansar. Það er
leitun að meiri fjölbreytni á Íslandi en
má finna á Fjölmenningardegi Reykja-
víkurborgar í Hörpu á morgun.
Gott að fara í útskriftarveislur
Þessa helgina eru margir á
leið í útskriftarveislur og á
þönum að redda útskriftar-
gjöfum. Sígildar útskriftargjaf-
ir: Blómvöndur, allt of dýr
kertastjaki úr Hrím eða best
af öllu: Beinharðir peningar
til að borga LÍN-lánin.
Gott að spara
Mánaðarlok og allir blankir eftir
sumardjamm maímánað-
ar. Aðgangur er oft
ókeypis á listasýn-
ingar Listahátíðar
svo það er hægt
að eiga góða helgi
þrátt fyrir blankheit!
GOTT
UM
HELGINA
Spurt er... Hvað ætlar
þú að sjá á Listahátíð í
Reykjavík?
KAMMERÓPERA
Arnar Eggert Thoroddsen popp-
fræðingur
Ég er afar spenntur fyrir kamm-
eróperunni hennar Önnu Þorvalds-
dóttur, sem er í leikstjórn Þorleifs
Arnar Arnarssonar. Það sem Anna
hefur verið að gera í tónlistarlegu
tilliti er einfaldlega rosalegt og þetta
verður því „eitthvað“. Og að Þorleif-
ur sé að leikstýra ... þetta er nánast
of mikið!
BALLETT OG DAG-
BÆKUR
Aðalheiður Magnúsdóttir, nýr
eigandi Ásmundarsals
Ég fór að sjá Ashkenazy, það voru
frábærir tónleikar – léttir, sum-
arlegir og skemmtilegir. Ég er
spennt fyrir frumsýningunni á San
Francisco ballettinum í Hörpu. Ég
get eindregið mælt með Weather
Daries í Norræna húsinu, frábært
verkefni þar á ferð. Í heildina er
ótrúlega mikið af fjölbreyttri sköpun
á Listahátíð í ár.
ÓHEFÐBUNDIN
TÍSKUSÝNING OG
KONUR Í LYKIL-
HLUTVERKUM
Diljá Ámundadóttir, fram-
kvæmdastjóri Þetta reddast ehf.
Ég ætla að sjá sýningu Hildar
Yeoman á nýrri fatalínu sinni sem
verður í Læknaminjasafninu þann
3. júní. Það er ekki hefðbundin
tískusýning heldur innsetning þar
sem Hildur teflir saman hönnun,
dansi, tónlist, ljósmyndun og
vídeómyndlist. Svo langar mig líka
að sjá leikritið Sími látins manns
í Tjarnarbíói þar sem konur eru í
lykilhlutverkum, auk þess að sjá um
leikstjórn og tónlistarsköpun.
*Listahátíð í Reykjavíkur stendur yfir
til 5. júní. Dagskrána má nálgast á
www.listahatid.is