Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 27.05.2016, Síða 64

Fréttatíminn - 27.05.2016, Síða 64
Smiðjuvegi 4C 202 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Best að bera á pallinn árlega „Ég hvet nú bara landsmenn til að versla við fagmenn,“ segir Már Guðmundsson, formaður Málara- meistarafélags Íslands, aðspurður um viðhald á sólpöllum en nú er sá tími ársins að fólk fer að huga að þeim. „Það er mesta salan á pallaolíu í maí.“ „Ég ráðlegg fólki að bera á palla á hverju ári – það er best,“ segir Már og bætir við að það sé ekki mikill munur á því hvernig unnið er með nýja eða gamla sólpalla. „Ef pallurinn er nýr verður að passa að græna viðarvörnin sem er á þeim sé orðin þurr. Það þarf að líða sólarhringur án rigningar áður en byrjað er að bera á pallinn. Það þarf að gæta að því að nota ekki eingöngu glæra pallaolíu því það er hvorki sólar- né viðarvörn í slíkri olíu. Það verður að vera litur í neðsta laginu af olíunni en síðan er fínt að setja glært lakk yfir það. Fólk verður líka að passa að mála ekki of þykkt því þá fer viðurinn að flagna. Þetta er nú það helsta sem þarf að hafa í huga við nýja palla,“ segir Már. Varðandi eldri palla segir Már nauðsynlegt sé að byrja á því þrífa pallinn því oft myndist grámi eða grænn gróður á pöllunum yfir veturinn sem ná þurfi af áður en hægt sé að bera á. „Það þarf að nota viðarskola eða annan skola til að þrífa pallinn. Síðan má há- þrýstiþvo hann en ég bið fólk um að nota litlar dælur því annars rífur fólk upp viðinn. Viðurinn þarf að fá að standa tvo sól- arhringa í þurru áður en farið er að bera á og það sam gildir um gamla palla og nýja. Ekki nota eingöngu glæra pallaolíu og ekki þekja of þykkt. Þá er engin vörn og viðurinn flagnar.” Mýkt Már ráðleggur fólki að nota ekki iðnaðarháþrýsti- dælur heldur litlar því annars verður pallurinn lítið augna- yndi. Mynd | Hari PVC er mest selda glugga- og hurðaefni í heiminum í dag og er framtíðarefni fyrir nýbyggingar og sumarhús. „Valið ætti því að vera einfalt þegar kemur að því að endurnýja eldri glugga eða hurð- ir,“ segir Heiðar Kristinsson, skrif- stofu- og sölustjóri hjá PGV. „Þegar fólk er að skipta út gluggum og hurðum verður viðhaldsfrítt fyrir valinu af skiljanlegum ástæðum þar sem fólk vill losna við viðhald. PVC gluggar eru fyrir löngu vin- sælasta gluggaefni í heiminum, ekki aðeins fyrir frábæra einangr- un og öryggi gagnvart innbrotum, heldur vegna aukinnar kröfu um sjálfbærni og umhverfisvernd,“ segir Heiðar. „Við búum ekki til vandamál“ PGV Framtíðarform hefur til sölu PVC viðhaldsfría glugga og hurðir. Hönnunin er látlaus og stílhrein sem gerir það að verk- um að framleiðslan passar vel að flestum gerðum íbúða. Smíðaefnið er sérstaklega valið til að stand- ast þær erfiðu kröfur sem íslenskt veðurfar gerir til glugga og hurða, og með faglegri ísetningu má ná endingu sem ekkert annað glugga- efni stenst. „Almennt vill fólk vera laust við að glíma við leka, myglu- svepp og fleiri óæskileg fyrirbæri. Með viðhaldsfríum gluggum kom- um við í veg fyrir þessi vandamál,“ segir Heiðar. Hæsta einkunn á slagveð- ursprófi Á Íslandi eru erfið veðurskilyrði og því er nauðsynlegt að fullvissa sig um að varan sem keypt er þoli íslenskt slagveður. „Okkar gluggar fengu hæstu mögulegu einkunn á slagveðursprófi Nýsköpunarmið- stöðvar Íslands og þykir okkur afar ánægjulegt að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á vör- ur sem hafa staðist slíkt próf með hæstu einkunn og endast auk þess áratugum saman án viðhalds,“ segir Heiðar. 50% burt aðferðin Ein vinsælasta aðferðin sem PGV býður upp á þegar kemur að viðhaldi glugga er svokölluð „50% burt aðferðin“. Þessi vinsæla aðferð felst í því að hluti gamla gluggans er fjarlægður ásamt gleri. Helsti ávinningur aðferðarinnar er að ekkert rask verður að innan- verðu. Hægt er að hafa samband við starfsmenn PGV í gegnum heimasíðuna: www.pgv.is. Fyrir- spurnir má senda á pgv@pgv.is. Á heimasíðunni má jafnframt finna sérstakt tilboðshorn. Hafðu sam- band og fáðu tilboð í glugga sem endist og endist, ryðgar aldrei né fúnar. Framúrskarandi einangrun Með PVC gluggum frá PGV næst framúrskarandi einangrun. Gluggaramminn er marghólfa sem kemur í veg fyrir kuldaleiðni, er glerjaður með 28mm K-gleri sem gefur honum mikið einangr- unargildi. Ekki er nóg með að þú minnkir hávaðann frá götunni heldur lækkarðu orkureikninginn í leiðinni. Efnið í gluggunum hefur staðist hæstu gæðakröfur og hefur verið prófað hjá BBA og BSI í Bret- landi og DIN í Þýskalandi. Glugginn hefur einnig staðist vind- og slag- veðurprófanir hjá Nýsköpunarmið- stöð Íslands með prýði og hlotið CE vottun Evrópusambandsins. Viðhaldsfríir gluggar og hurðir PGV Framtíðarform framleiðir viðhaldsfría PVC glugga og hurðir. PVC efnið veitir fyrsta flokks einangrun og öryggi og uppfyllir auk þess auknar kröfur um sjálfbærni og umhverfisvernd. Kynning: Unnið í samstarfi við PGV Framtíðarform alla föstudaga og laugardaga n Stærð að eigin vali. n Glerjað að innan – öryggisins vegna. n Hraður afhendingartími: 1-2 vikur. n Þarf aldrei að mála, hvorki að innan né utan. n CE-Vottun: Til að uppfylla þau ströngu skilyrði sem nútíma byggingareglugerð segir til um. n Innbyggt frárennslikerfi. n Barnalæsing. n Næturöndun í læstri stöðu. n Innbrotsheldir. n 6 mismunandi litir – Hvítur, eik, hnota, dökkbrúnn, grár og svartur. n Lausnir fyrir neyðarútganga og björgunarop. n Gluggarnir gráta ekki – Engin kuldabrú. n Þykkara gler – Meiri einangrun og hljóðeinangrun. n Gluggar og hurðir eru sér- smíðuð eftir málum og því eru útlitsmöguleikar óteljandi. Viðhaldsfríir gluggar og hurðir hjá PVG – óteljandi möguleikar …viðhald 12 | amk… FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.