Fréttatíminn - 27.05.2016, Síða 70
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þetta leggst brjálæðis-lega vel í mig og er mjög spennt fyrir þessu. Svo vex spennan eftir því sem mótið nálgast. Það
eru bara tvær vikur í þetta núna,“
segir Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir
sem mun ásamt Hugrúnu Hall-
dórsdóttur sjá um EM umfjöllun-
ina á vegum sjónvarps Símans
meðan á Evrópumótinu í fótbolta
stendur. Þær eru hluti af teymi
Þorsteins J. sem sér um að mat-
reiða mótið ofan í Íslendinga með
líflegum hætti.
Eins og Eurovisionpartí
Hlutverk Sigríðar Þóru og Hug-
rúnar er einmitt að finna mann-
lega og skemmtilega vinkla sem
tengjast mótinu með einhverjum
hætti. Sjálf hefur hún aldrei verið í
fótbolta og fylgist ekki meira bolt-
anum en meðalmanneskja. „Við
ætlum að fanga stemninguna og
gleðina sem myndast hjá íslensku
þjóðinni. Ísland verður væntanlega
allt undirlagt. Þetta er svolítið eins
og Eurovisionpartíið, bara miklu
stærra. Það skiptir engu máli hvort
maður hefur áhuga á tónlistinni
eða ekki, manni finnst alltaf gaman
að vera í partíinu. Þannig verður
þetta núna.“
Hún segir tilganginn með þætti
þeirra stallna að gera það skemmti-
legt fyrir sem flesta að fylgjast með
mótinu. Líka þá sem hafa takmark-
aðan áhuga á fótbolta. „Þetta er
það stór viðburður og það eru allir
að fara að fylgjast með. Við viljum
því ná til sem flestra. Gera partíið
skemmtilegt fyrir alla,“ segir Sigríð-
Gera partíið
skemmtilegt fyrir alla
Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir mun sjá um EM-umfjöllun á vegum Sjón-
varps Símans meðan EM í fótbolta sendur yfir. Sjálf hefur hún aldrei
verið í boltanum, en það kemur ekki að sök, enda ætlar hún að finna
skemmtilega vinkla á mótið fyrir allskonar fólk.
Skemmtilegt Sigríður Þóra hefur lært heilmikið um fótbolta við að undirbúa þættina. Hún verður annað hvort orðin fótboltanörd eftir
sumarið eða komin með algjört ógeð. Mynd | Hari
ur Þóra kímin með annarri tilvísun
í Eurovision.
Lærir mikið um fótbolta
Sigríður Þóra hefur ekki mikið ver-
ið framan myndavélina sjálf en hún
hefur aðallega starfað við dagskrár-
gerð. Þáttastjórn er því ný áskorun
fyrir hana. „Ég vona að þetta takist
og vel og mun leggja mig fram um
að gera mitt allra besta. Það er
mjög spennandi að fá að taka þátt
í þessu.“
En hefur hún ekki líka lært heil-
mikið um fótbolta á því að undir-
búa þættina? „Jú heldur betur,
sem er mjög skemmtilegt. Ég var
einmitt að grínast með það um
daginn að í lok sumars yrði ég ann-
að hvort orðin algjört fótboltanörd
og aðdáandi, eða búin að fá gjör-
samlega nóg af þessu,“ segir hún og
skellir upp úr.
Safna hugmyndum
Sigríður Þóra og Hugrún eru
þessa dagana að safna sögum og
skemmtilegum hugmyndum sem
tengjast EM. „Það er t.d. fólk að
fara að gifta sig einn af keppnisdög-
um Íslands, það er verið að sauma
kjóla úr íslensku fánalitunum og
við ætlum að hitta ömmur íslensku
landsliðsmannanna. Við erum því
með ýmislegt í pokahorninu sem
við ætlum að fanga og segja frá,“
segir Sigríður Þóra, en þær taka
öllum hugmyndum fagnandi á net-
fangið: em2016@siminn.is.
„Undanfarin tæp tíu ár hef ég
unnið með annan fótinn sem og
báða á 365 miðlum en í gær skil-
aði ég af mér mínu síðasta ver-
kefni fyrir samsteypuna í bili,“
segir sjónvarpskokkurinn og
fjölmiðlakonan Friðrika Hjördís
Geirsdóttir á heimasíðu sinni.
Rikka, eins og hún er yfirleitt
kölluð, hefur stjórnað sjónvarps-
þáttum og ritstýrt blöðum hjá
365 og í samtali við amk segist
hún hafa ákveðið að það væri
kominn tími til að leita nýrra
áskorana. „Ég er ekki búin að
ákveða næstu skref. Mig langar
að sjá hvað kemur til mín,“ segir
Rikka.
„Ég hef lengi verið talskona
þess að fara út fyrir þægindara-
mmann og ögra sjálfri mér.
Þannig lærir maður fullt af hlut-
um um sjálfan sig,“ segir hún
og bætir við að þótt hún sé að
einhverju leyti fíkill í óvissu þá
vill hún líka hafa öryggi. „Þetta
snýst um að finna jafnvægið á
milli nægilega mikillar óvissu
sem heldur manni á tánum og
nógu mikils öryggis til að veita
að manni sálarró.“
Rikka hefur margvíslega
reynslu og hún útilokar ekki að
halda áfram í fjölmiðlum. „Ég
vonast bara eftir að fá eitthvert
verkefni sem er spennandi,
krefjandi og skemmtilegt. Ég hef
öðlast töluverða og fjölbreytta
reynslu á þessum tíu árum hjá
365,“ segir Rikka. | óhþ
Óska eftir nýjum áskorunum
Rikka yfirgefur 365 og heldur út í óvissuna
Út fyrir þægindarammann
Rikka veit ekki hvar hana ber
niður næst.
…fólk 18 | amk… FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 2016
Þetta er svolítið eins og
Eurovisionpartíið, bara miklu
stærra. Það skiptir engu máli hvort
maður hefur áhuga á tónlistinni eða
ekki, manni finnst alltaf gaman að
vera í partíinu.
Eru þau að skilja eða ekki?
Jill Dempsey, eiginkona Patrick Dempsey, sem leikur lækninn
sjóðheita Mc. Dreamy í Greys Anatomy, sótti um skilnað frá Patrick í
janúar í fyrra. Síðan hefur hinsvegar ekkert gerst og á dögunum þurfti
dómari að ýta á eftir því hvert framhaldið yrði hjá þeim hjónum. Sam-
kvæmt heimildum slúðurmiðla ytra er enginn skilnaður í uppsiglingu en
Jill sótti um skilnað frá Patrick því henni fannst hann vera meira upptek-
inn af því að vera í kappakstri en að sinna henni og börnunum. Patrick
hefur verið forfallinn kappakstursmaður í mörg ár, en eftir þetta lofaði
hann bót og betrun, svo ekkert verður úr skilnaðinum.
Birti símanúmer hjákonunnar á Twitter
Kelly Osbourne er reið út í konuna sem á að
hafa verið í ástarsambandi við föður hennar,
Ozzy Osbourne, en Ozzy er að skilja við
eiginkonu sína til 33 ára, Sharon Osbourne.
Ástæða skilnaðarins er að Ozzy á að hafa átt í
ástarsambandi við hárgreiðslukonuna sína og
Kelly ákvað að birta símanúmer konunnar á
Twitter. Símanúmer konunnar var aftengt stuttu
seinna. Kelly vill meina að konan hafi misnotað sér
aðstöðu sína og aldur föður síns en rokkarinn
góðkunni er orðinn sjötugur.
Sjötug og flott Goldie Hawn
Goldie Hawn lítur frábærlega út en
leikkonan er orðin 70 ára, ótrúlegt en satt. Sást
til leikkonunnar á strönd á Hawaii þar sem hún
spókaði sig um á ströndinni og buslaði í
sjónum. Goldie segist ekki borða mikið og
drekka græna djúsinn sinn á hverjum degi. „Ég
drekk mikið af djúsum og borða ekki mikið af
mat.“ Hún segist fá öll næringarefni sem hún
þarf og einnig segist hún hreyfa sig eitthvað á
hverjum einasta degi. Ef hún á 15 mínútur
aflögu yfir daginn, notar hún þær til að rækta
líkama sinn á einhvern hátt.