Fréttatíminn - 19.08.2016, Síða 1
Eggert Skúli Jóhannesson og
Gunnar Bender eru grun-
aðir um að reyna að svindla
á Ábyrgðasjóði launa. Þeir
stofnuðu nýlega Hjálpar-
samtök fyrir bágstödd börn.
Viðmælendur blaðsins
segjast illa sviknir af fyrri
viðskiptum um harðfisk og
kvóta við Eggert Skúla.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Tengsl Eggerts Skúla Jóhannesson-
ar, framkvæmdastjóra Hjálparsam-
taka bágstaddra barna, og Gunnars
Bender, formanns samtakanna,
eru til skoðunar hjá Ábyrgða-
sjóði launa. Þeir eru grunaðir um
að reyna að svindla peninga út
úr sjóðnum. Málið kom upp eftir
að Eggert Skúli var lýstur gjald-
þrota í lok nóvember. Launakröfur
Gunnars Bender í tvö þrotabú fyr-
irtækja sem tengjast Eggerti, vöktu
grunsemdir. Það þótti undarlegt að
hann hefði í tvígang starfað fyrir
sama mann án þess að fá greitt fyr-
ir. Aðeins örfáum vikum eftir að
kröfurnar voru lagðar fram, stofn-
aði Gunnar Bender Hjálparsamtök
fyrir bágstödd börn með Eggerti
Skúla.
Erla Skúladóttir, skiptastjóri
persónulegs gjaldþrots Eggerts
Skúla, segir að fara þurfi út í öll
horn málsins og skoða ítarlega
kröfulýsingar í þrotabúið. Eggert
Skúli hefur komið að fjölmörgum
fyrirtækjum án þess að tenging
hans við þau hafi verið skráð. Með-
al annars hefur hann komið að
starfsemi icelandicinfo.is ásamt
syni sínum, Jóhannesi Gísla Egg-
ertssyni, sem afplánað hefur dóm
fyrir fjársvik á netinu.
Eggert Skúli vildi ekki svara
spurningum Fréttatímans um kröf-
ur Gunnars í fyrirtæki tengd hon-
um. Hann sagðist verulega ósáttur
við fyrri umfjöllun Fréttatímans
um Hjálparsamtök bágstaddra
barna. „Við erum að skoða málið
og ætlum í hart við blaðið.“
Hjálparsamtök bágstaddra barna
eru til athugunar hjá lögreglu.
Fjölmargir settu spurningamerki
við peningasöfnun sem samtökin
hófu á netinu fyrir skömmu, með
útsendum fjöldapósti. Samkvæmt
upplýsingum frá sýslumannin-
um á Suðurlandi, hafði ekki verið
veitt leyfi fyrir peningasöfnuninni,
þegar henni var hrundið af stað.
Þá var ómögulegt fyrir viðtakanda
fjöldapóstsins að rekja hver stæði
að baki söfnuninni. Hvergi var
þess getið hvernig söfnunarfénu
yrði miðlað til fátæku barnanna.
Eftir að vakin var athygli á þessu
í Fréttatímanum voru nöfn þeirra
Eggerts Skúla og Gunnars Bender
skráð á heimasíðu samtakanna.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
47. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 19.08.2016
32 28 12
Tómstundir barna
SKÓLADAGAR
20% afsláttur af gleraugum
Bláuhúsin v. FaxafenKringlunniSkólavördustíg 2
NOTAÐU AVÓKADÓ
Í STAÐINN
FYRIR MÆJÓNES
STRIGASKÓRNIR
ALLTAF HEITIR
KATRÍN LIFIR
Á TÓNLISTINNI
Í LONDON
HVERNIG Á AÐ
HAGA SÉR EFTIR
MARAÞON?
12 SÍÐNA AUKABLAÐ UM ÍÞRÓTTIR OG TÓMSTUNDIR BARNA 4
FÖSTUDAGUR
19.08.16
FYRRUM
OFURFYRIRSÆTAN
HELDUR SÍNA FYRSTU
LJÓSMYNDASÝNINGU
ELÍSABET
DAVÍÐS
Mynd | Rut
Stjórn Ábyrgðasjóðs launa er með tengsl Eggerts Skúla og Gunnars Bender til skoðunar.
8
Nánar er fjallað um
viðskiptaferil Eggerts
Skúla og Hjálparsamtök
bágstaddra barna í
blaðinu.
Bryndís Ösp
Hearn Varð
fyrir einelti í
Keflavík vegna
húðlitar Stranger Things
Nostalgískir sjónvarpsþættir
sem hræða úr þér líftóruna
Einkaeign á kvóta leiðir alls
staðar til samþjöppunar
Torbjørn Trondsen, ráðgjafi
færeysku stjórnarinnar
Aðstandendur hjálparsamtaka
barna grunaðir um svindl
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
MacBook Air 13"
Þunn og létt með rafhlöðu
sem dugar daginn
Frá 184.990 kr.
MacBook Pro Retina 13"
Alvöru hraði í nettri og léttri hönnun
Ótrúleg skjáskerpa
Frá 242.990 kr.
Mac skólabækurnar
fást í iStore Kringlunni
Við gerum betur í þjónustu
með skjótum og sveigjanlegum
vinnubrögðum. Ef MacBook
keypt hjá okkur bilar lánum við
MacBook tölvu á meðan
viðgerð stendur.