Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 19.08.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 19. ágúst 2016 Stjórnmál „Við sem erum meira miðju- og hægrisinnuð, biðum al- gjört afhroð í prófkjörinu á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Erna Ýr Öldudóttir, fyrrverandi formaður framkvæmdaráðs Pírata, en hún segir að prófkjör flokksins, sem lauk í síðustu viku, hafi afhjúpað Pírata sem vinstri flokk. Hún er búin að skrá sig í tvo aðra stjórnmálaflokka og ætlar ekki að kjósa Pírata í næstu kosningum. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Það sem ég áttaði mig á í vetur, er að fólk í framlínu flokksins hefur talað leynt og ljóst meira í áttina til vinstri. Og af einhverjum ástæð- um mátti ekki tala um það,“ segir Erna Ýr sem er töluvert til hægri við suma flokksmenn Pírata – og hún hefur aldrei farið leynt með sínar skoðanir. Píratar hafa oft á tíðum verið illskilgreinanlegir og vandi hefur verið að raða þeim nið- ur á hinn gamalgróna pólitíska ás. Erna segir grun sinn hafa verið endanlega staðfestan í prófkjöri flokksins í síðustu viku. Mannval- ið var slíkt að hún segist ekki eiga hugmyndafræðilega samleið með flokknum að sinni og nefnir hún meðal annars Birgittu Jónsdóttur og Smára McCarthy í því samhengi. Hún segir prófkjörið hafa verið ákveðna mælistiku í sínum huga á afstöðu flokksins - og niðurstaðan tali sínu máli að hennar mati. Hún hafi því ákveðið að taka ekki sæti á listanum; hún líti svo á að hug- myndum hópsins hafi verði hafn- að. Erna segir að afstaða Pírata í stjórnarskrármálinu hafi einnig vegið þungt í ákvörðun sinni. Þannig segir hún að Píratar hyggist samþykkja nýja stjórnarskrá þar sem tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar. Ekki standi þó til að almenningur fái að kjósa um stjórnarskrána sjálfa og því er hún ósammála. Þó verður boðað til kosninga eftir að ný stjórnarskrá verður samþykkt, svo hún geti tek- ið gildi. Erna skráði sig í Sjálfstæðisflokk- inn fyrir skömmu og gerði hún það til þess að kjósa í prófkjörinu. „Ég skráði mig reyndar líka í Viðreisn, sem mér líst mjög vel á. En þegar ég ætlaði að skrá mig í Samfylk- inguna á netinu, þá fann ég enga leið til þess í gegnum heimasíðu þeirra,“ segir Erna. Spurð að lok- um hvort hún ætli að hætta í Píröt- um, svarar hún: „Ég hætti ekki, en ég mun líklega ekki kjósa þá í næstu kosningum.“ Ásarnir farnir í steik Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hafnar skilgreiningum Ernu og segir: „Ásarnir eru fyrir löngu farnir í steik og ég neita að láta skilgreina Pírata eftir einhverjum ásum sem riðluðust þegar kalda stríðinu lauk.“ Hún segir ný stjórnmál kalla á nýjar lausnir, úr því umhverfi spretti Pírat- ar, og þar sé nægt svigrúm fyrir skoð- anir, bæði til hægri og vinstri. Erna Ýr Öldudóttir skráði sig í aðra flokka og ætlar ekki að kjósa Pírata. Mynd | Hari Segir hægri menn hafa beðið afhroð Stjórnmál Kynjahalli í stjórn Pírata í Reykjavík vekur umtal en við nánari skoðun reynist hann þó ekki jafn mikill og virðist í fyrstu. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir salka@frettatiminn.is Í nýkjörinni stjórn Pírata í Reykja- vík hallar verulega á konur, en í henni eru sjö karlmennn en einungis tvær konur. Formaður stjórnar er Andrés Helgi Valgarðsson, meðstjórnend- ur eru Elsa Nore, Kjartan Jónsson, Nói Kristinsson og Helena Stefáns- dóttir og voru allir fimm vara- menn sem kjörnir voru karlkyns. Andrés Helgi, formaður Pírata í Reykjavík, segist vissulega hafa viljað sjá fleiri kvenkyns frambjóð- endur til stjórnarinnar, en segist þó ánægður með að í fimm manna aðalstjórn séu tvær konur. Ekki er þó allt sem sýnist. Þótt nafnið Andrés gefi í skyn að um karlmann sé að ræða er Andrés transkona, og kom út úr skápnum sem slík fyrir um tveimur árum. Hún segist þó ekki taka því illa að hafa verið talinn með sem karlmaður þegar úrslit kosningarinnar fóru í fjöl- miðla. „Ég hef ekki hafið mitt kynleið- réttingarferli eða breytt nafninu mínu í kvenmannsnafn. Ég er ekki mikið að tala um mína stöðu sem transkona að fyrra bragði, svo ég æsi mig ekki yfir því að fólk hafi haldið mig karlmann.“ Andrés er í 8. sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður svo ekki er líklegt að hún komist á þing. Andrés er önnur tveggja trans einstaklinga á lista Pírata, en transmaðurinn Hans Jónsson er í þriðja sæti á lista Pírata í Norðaust- urkjördæmi og miðað við spár er því líklegt að hann nái sæti á þingi í haust. | sgþ Ragnheiður Elín tekur þátt í rjómatertukasti Stjórnmál „Hún var rosa- lega spennt og samþykkti þetta strax,“ segir segir Bessi Theodórsson, fram- kvæmdastjóri Kjötsúpuhá- tíðarinnar á Hvolsvelli, sem haldin verður 27. ágúst. Frambjóðendur í Suðurkjördæmi keppa í rjómakökukasti á kjöt- súpuhátíðinni en margir hafa staðfest þátttöku, þar á meðal Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað- arráðherra. Sigurður Ingi Jóhanns- son forsætisráðherra á eftir að svara en Silja Dögg Gunnarsdótt- ir mætir allavega fyrir Fram- sókn enda er Hvolsvöllur annál- að framsóknarbæli. „Þau eru til í allt, jafnvel að koma nakin fram þegar svona stutt er í kosningar, segir Bessi Theodórsson, fram- kvæmdastjóri Kjötsúpuhátíðarinn- ar á Hvolsvelli. Frambjóðendur keppa með því að kasta rjómatertum hver í ann- an. Þeir sem fæstar rjómatertur fá á sig, ljúka keppni með bráða- bana. „Niðurstaðan á að gefa vís- bendingu um niðurstöðu kosning- anna,“ segir Bessi.| þká Ekki er allt sem sýnist hjá Pírötum Ekki er allt sem sýnist: Stjórn Pírata í Reykjavík. Andrés Helgi er önnur frá hægri á myndinni. Fá ekki leikskólapláss þrátt fyrir 200 laus pláss Skólamál Mikil fækkun barna í leikskólum leiðir af sér laus pláss og minna fjármagn. Því eru hundruð foreldra í óvissu með leik- skólapláss, þó ekki skorti plássið. „Það er talsvert af lausum plás- sum, en þau eru um 200 miðað við bráðabirgðatölur,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og frí- stundaráðs hjá Reykjavíkurborg, en mikið er af lausum plássum í leik- skólum borgarinnar. Börn, fædd í mars árið 2015 og eftir, fá ekki pláss á leikskólum borgarinnar í haust vegna skorts á fjármagni þrátt fyrir að ekki vanti plássið. „Það helgast af fækkun barna, árgangurinn nú er fámennari en undanfarin ár,“ útskýrir Skúli og bætir við að fyrirkomulagið hjá borginni hafi verið þannig að þegar börnum fjölgar hafi verið veitt auka- fjárveiting til þess að mæta þeirri fjölgun, en þegar börnum fækkar, þá þarf að skila peningunum aftur inn í borgarsjóð. „Þetta er dálítið eins og flóð og fjara,“ segir Skúli. Hann segir að- stæður ólíkar því sem áður hafa verið, enda hafi árgangar stækkað í sífellu síðustu ár. Þannig er 2010 árangurinn að hætta á leikskólum í ár, en sá hópur taldi um 1500 börn. Nú fækkar aftur á móti verulega og því standa eftir auð pláss og engir peningar til þess að fylla þau. Skúli áréttar að það hafi verið bú- inn til starfshópur til þess að mæta þessum vanda, og hann hefur ósk- að eftir tölulegum upplýsingum um það hvað það muni kosta. „Við vilj- um bjóða yngri börnum inn á leik- skólana og fjölgun leikskólaplássa verður í forgangi hjá okkur á kom- andi misserum samhliða faglegri uppbyggingu. Útreikningar vegna kostnaðar munu liggja fyrir á næstu vikum, líklega upp úr mánaðamót- um,“ segir hann. -vg Í verstu tilfellum geta börn fædd eftir mars 2015 komist inn í leik- skóla næsta haust. Þá á þriðja aldursári. „Þau eru til í allt, jafnvel að koma nakin fram þegar svona stutt er í kosn- ingar,“ segir Bessi Theodórsson. Ragnheiður Elín hefur staðfest þátttöku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.