Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 19.08.2016, Page 16

Fréttatíminn - 19.08.2016, Page 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 19. ágúst 2016 Ef uppgangur Viðreisnar held-ur áfram má reikna með að þessi nýi flokkur girði fyrir mögulega endurreisn Sjálf- stæðisflokksins. Þótt forystumenn Viðreisnar vilji ná til annarra kjós- enda en óánægðra sjálfstæðismanna er augljóst að flokkurinn er klofning- ur úr Sjálfstæðisflokknum. Sá klofn- ingur á sér langa sögu og ristir djúpt innan flokksins. Sem kunnugt er, varð Sjálfstæð- isflokkurinn til við samruna Frjáls- lynda flokksins og Íhaldsflokksins. Þótt það sé ekki vinsælt að nefna, þá fundu flestir meðlimir Flokks þjóðernissinna farveg innan Sjálf- stæðisflokksins eftir hernám Breta. Sjálfstæðisflokkurinn var enda þjóð- ernissinnaður, eins og nafnið endur- speglar. Án þess að gera mikið úr þessum sögulegu rótum má segja að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi á seinni hluta síðustu aldar verið kaðall ofinn úr þessum þremur þráðum; íhaldssemi, frjálslyndi og þjóðernisstefnu. Það var afrek Ólafs Thors og Bjarna Benediktssonar að gera úr þessum þráðum stefnu sem dró til sín at- kvæði um 40 prósent landsmanna og tryggði flokknum miðlæga stöðu í ís- lenskum stjórnmálum. Sú staða mót- aði stefnuna. Eins og algengt er um valdaflokka var stefnan mála miðlun fjöldans sem fylkti sér um flokkinn frekar en að fjöldinn hafi fylkt sér um stefnu í upphafi. Stefnan var af- leiðing velgengni ekkert síður en or- sök hennar. Eftir tíð Ólafs og Bjarna urðu átökin innan flokksins áberandi. Þegar hóp- ur yngri manna vildi móta flokkinn eftir hugmyndum hægri manna sem höfðu sveigt Repúblikanaflokkinn í Bandaríkjunum til svokallaðrar ný- frjálshyggju, voru þeir gagnrýndir fyrir að vilja eyðileggja þá breiðfylk- ingu allra stétta sem Ólafur og Bjarni höfðu mótað. Þegar nýfrjálshyggju- mennirnir höfðu náð völdum í flokkn- um vísaði helsti forystumaður þeirra, Davíð Oddsson, nánast aldrei til Ólafs og Bjarna en gerði Hannes Hafstein og heimastjórnarárin að einskonar fortilveru sinni. Þeir flokksmenn sem urðu undir vísuðu á móti til Ólafs og Bjarna, sögð- ust sakna gamla Sjálfstæðisflokksins sem hafði mildari ásýnd og vísuðu til þess að flokkurinn hafði tekið þátt í uppbyggingu velferðarkerfisins, sem nýfrjálshyggjumenn vildi þrengja að, skera niður eða einkavæða. Með góðum vilja er hægt að flokka átökin milli Gunnars Thoroddsen og Geir Hallgrímssonar eftir þessum ás. Það var Geir sem bar nýfrjálshyggju- mennina til valda þótt hann hafi sjálf- ur verið mótaður af Ólafi og Bjarna. Sama má segja um Albert Guðmunds- son og Þorstein Pálsson. Þótt Borgara- flokkurinn hafi fyrst og fremst byggst upp af persónufylgi Alberts var hann líka andóf gegn nýfrjálshyggju. Sama má segja um Frjálslynda flokkinn sem Sverrir Hermannsson stofnaði. Viðreisn er því ekki skyndilegt gos heldur afleiðing af langvarandi og djúpstæðum klofningi innan Sjálf- stæðisflokksins. Þótt nýfrjálshyggjan virðist á yfir- borðinu vera frjálslynd er hún í reynd íhalds- og afturhaldsstefna sem styð- ur við hinn sterka. Tímabil Eimreiðar- manna og Davíðs færði Sjálfstæðis- flokkinn frá frjálslyndi að varðstöðu við ráðandi atvinnugreinar og and- stöðu við samfélagslegar umbætur. Flokkurinn gat ekki hleypt í gegnum sig mikilsverðum málum síðari ára; umhverfismálum, jafnréttismálum, mannréttindum og öðrum málaflokk- um sem allt eins rúmast innan hægri flokka og vinstri flokka. Þetta leiddi til hrörnunar fylgis Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgar- svæðinu og í þéttbýliskjördæmunum. Sjálfstæðisflokkurinn hafði rétt tæp- lega 50 prósent fylgi í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu í formannstíð Geirs en hefur nú, á eftir-Davíðtíman- um, fallið niður í 37 prósent. Á sama tíma hefur fylgi flokksins hins vegar styrkst úti á landi, haldist á stærri stöðum og aukist í smærri bæjum og þorpum. Sömu þróun má sjá í þingkosning- um. Fylgið hrörnar í þéttbýliskjör- dæmunum fyrir sunnan en helst bet- ur í dreifbýliskjördæmunum. Tapið er 17 prósentustig í Reykjavík norður en ekkert í Norðausturkjördæmi, svo dæmi séu tekin. Flokkurinn hefur náð að keppa við Framsóknarflokkinn um forystu úti á landi en hefur greitt fyrir þá stöðu með miklu fylgistapi þétt- býlinu. Og það er í þéttbýlinu sem krafan um aukið frjálsræði og minni varð- stöðu um hagsmuni stórfyrirtækja dafnar. Þangað sótti flokkurinn áður frjálslynda stefnu um jöfn tækifæri allra og réttlátar leikreglur. Sú stefna hefur nánast drukknað í taumlausri eftirgjöf gagnvart stærstu útgerðun- um, landbúnaðarkerfinu og öðrum stoðum gamla Íslands. Þetta rof er meginvandi Sjálfstæð- isflokksins eftir Hrun. Hrunið veikti flokkinn en hann hafði verið að veikj- ast mörg ár á undan, áratugi. Flokk- urinn hefur misst allt frumkvæði í samfélagsumræðunni í þéttbýlinu. Fylgi hans meðal yngra fólks þar er orðið hverfandi. Í stað þess að sækja endurnýjun í æskuna í þéttbýlinu hef- ur flokkurinn að mörgu leyti forherst í hagsmunagæslunni við útgerðina og stórfyrirtækin. Það má allt eins segja að klofnings- mennirnir í Sjálfstæðisflokknum hafi verið þeir sem náðu þar völdum og þrengdu svo flokkinn að ungt, frjáls- lynt borgarfólk á í dag litla samleið með flokknum. Gunnar Smári HUGMYNDA­ KREPPA TIL HÆGRI Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir. Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti. lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR SUNNUDAGS LAMBALÆRI SUNNUDAGSSTEIKIN SVÍKUR EKKI! HÆGELDAÐ LAMBALÆRI MEÐ RÓSMARÍN OG HVÍTLAUK Sykurbrúnaðar kartöflur „Crispy“ kartöfluteningar með rósmarín og hvítlauk Heimalagað rauðkál Pönnusteiktir blandaðir sveppir Ofnbakaðar gulrætur Grænar baunir með myntu Maís Bjór- hollandaisesósa Sveppasósa 2.900 kr. á mann Aðeins framreitt fyrir allt borðið. með öllu tilheyrandi ALLA SUNNUDAGA FRÁ 12–14.30

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.