Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 19.08.2016, Síða 32

Fréttatíminn - 19.08.2016, Síða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 19. ágúst 2016 Lífsreynslan: Að alast upp brún í Reykjanesbæ Má ég kalla þig negra? Mynd | Kristín Ólafsdóttir Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Það tekur dálítið mikla orku að vera öðruvísi,“ segir Bryndís Ösp Hearn, 25 ára stúlka úr Reykjanes- bæ, sem varð fyrir miklu einelti í æsku vegna húðlitar síns. „Ef fólk myndi horfa aðeins lengra en á húðlitinn minn myndi það sjá hversu mikill Íslendingur ég er. Ég fæ svo mikið af spurningum um það hvaðan ég sé og þegar ég svara að ég sé frá Keflavík þá segir fólk mjög oft; nei ég meina hvaðan ertu? og þá fatta ég að það er ekki verið að spyrja mig að því hvaðan ég sé, heldur af hverju ég er brún, og það er dálítið óþægilegt.“ „Ég er ekki mikið fyrir hipp-hopp en það gera allir ráð fyrir því að ég viti allt um það út af því að ég er dökk. Ég hef líka verið spurð að því hvort ég kunni ekki örugglega að twerka, því ég sé dökk. Fólk spyr mig líka oft hvort það megi koma við hárið á mér og svo er fólk sem spyr ekki heldur bara kemur við það. Ég hef nokkrum sinnum lent í því að vera á gangi í bænum þegar ég finn allt í einu hönd í hárinu á mér, það er mjög óþolandi. Líka á djamminu, þá er stundum tog- að í hárið á mér. Fólk gengur líka upp að mér til að segja mér að ég sé svo falleg og öðruvísi, það á ör- ugglega að vera hrós en mig langar ekki til að fólk einblíni svona á út- litið mitt. Það er samt ein spurning sem fer mest í mínar fínustu og það er þegar fólk spyr hvort það megi kalla mig negra. Svarið mitt er; ef þú þarft að spyrja þá veistu svarið.“ „Það var mjög erfitt að alast upp í Reykjanesbæ. Ég lenti í rasisma og var mikið lögð í einelti. Það var dálítið mikið grimmt. Það var líka erfitt að vera brún í fjölskyldunni hennar mömmu, því það var ekki tekið neitt sérlega vel í það. Sam- bandið við pabba hefur alltaf verið gott. Hann er kennari í Njarðvíkur- skóla og við erum mjög góðir vin- ir. Hann er mest normal gaur sem ég þekki en sumir gera ráð fyrir því að hann hljóti að vera einhver hipp-hopp gaur. Sem er svo fyndið því hann er mesta nörd sem þú get- ur kynnst, kann ekki að dansa og spilar role-play leiki,“ segir Sanna og skellihlær. „Þegar ég var í áttunda bekk var eineltið í skólanum orðið svo mik- ið, og svo erfitt að vera í Reykjanes- bæ, að mamma ákvað að flytja með mig til Akureyrar. Þá fyrst fór ég að upplifa mig venjulega og fór fyrst að líða vel með sjálfa mig. Ég fékk að klára skólann þar og blómstraði út í eitt. Það bara bjargaði mér al- gjörlega að komast í burtu og fá að upplifa venjulegt skólalíf og eignast sanna vini. Mér leið aldrei eins og ég væri skrítin eða öðruvísi þar.“ „Eftir að hafa klárað gagnfræða- skólann flutti ég aftur til Reykjavík- ur og fór í framhaldsskóla en fór svo að leigja og vinna og tók pásu frá skólanum. Nú er ég komin aftur til Reykjanesbæjar því mig langar aftur í nám og leigan í Reykjavík er svo rosaleg. Þrátt fyrir að vera á allt öðrum stað í dag og að hafa unnið helling úr þessari lífsreynslu þá er oft skrítið að vera aftur komin á æskuslóðirnar og þurfa að horfast í augu við þá gerendur sem enn eru hér búsettir. Það getur verið erfitt.“ „Ég er ekki mikið fyrir hipp-hopp en það gera allir ráð fyrir því að ég viti allt um það út af því að ég er dökk. Ég hef líka verið spurð að því hvort ég kunni ekki örugglega að twerka, því ég sé dökk.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.