Fréttatíminn - 19.08.2016, Side 46
Langar að stofna fjölskyldu með Katy Perry
Samband Katy Perry og Orlando Bloom er sterkara en nokkru
sinni. Sést hefur til Katy með hring sem margir héldu að
væri trúlofunarhringur, en svo var ekki. Kunningi parsins
segir samt að það sé ekki langt að bíða eftir því að þau
muni setja upp hringana. Hann segir líka: „Hann talar
endalaust um Katy og sér ekki sólina fyrir henni. Hann væri
alveg til í að stofna til fjölskyldu með Katy og eignast fleiri
börn, en Orlando á 5 ára gamlan son með Miranda Kerr.“ Þau eru
samt ekkert að drífa sig en skilnaður Katy við Russell Brand reyndi mikið á
hana. Russell sótti um skilnað síðla árs árið 2011, aðeins ári eftir ævintýra-
legt brúðkaup þeirra á Indlandi.
Ben veit ekkert hvar hann stendur
Ben Affleck er orðinn óþreyjufullur að fá að vita hvort eigin-
kona hans, Jennifer, sé að fara að skilja við hann eða ekki.
„Mörgum finnst Jennifer vera að leika sér að tilfinningum
Ben og stjórna honum með því að halda honum í tilfinninga-
legri óvissu,“ segir heimildarmaður RadarOnline. Þau skildu
að borði og sæng fyrir rúmu ári eftir að sögur voru um að
Ben hefði verið henni ótrúr. „Alltaf þegar Ben heldur að þau
séu að fara að taka saman aftur kemur Jennifer í viðtal eða sendir frá sér yf-
irlýsingu þess efnis að þau séu ekki að taka saman aftur,“ segir þessi heim-
ildarmaður. „Ben veit ekkert hvar hann stendur gagnvart henni.“
Frægðin er ekki tekin út með sældinni
One Direction drengirnir Niall Horan og Louis Tomlinson
þurftu að skipta um símanúmer eftir að hafa verið áreittir
af óþekktum einstaklingi. Strákarnir sögðu frá þessu á
Twitter en Louis skrifaði: „Kominn tími til að skipta um
númer… er að fá ógeðsleg skilaboð á Whatsapp…. Aular!“
Hljómsveitarfélagi hans svaraði strax „Ég líka vinur. Hrika-
legir hlutir sem sumt fólk er að segja.“ Louis, sem auðvitað
var í uppnámi eftir þessi skilaboð, sló þessu nú samt líka upp í grín og skrif-
aði: „Við ættum kannski að skora á þessa aðila í rapp keppni og taka þá í
nefið á 64 börum.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Niall lendir í of ágengum
aðdáendum, en fyrir mánuði kvartaði hann yfir því að einhver aðdáandi tók
mynd af honum þar sem hann svaf í flugvél. Honum fannst það fullmikið af
hinu góða.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
„Ég er bara að gera þetta sjálf, en
með mikilli hjálp frá vinum. Þeir
hafa verið að spila fyrir mig og
syngja með mér. Ég get sagt þeim
hvað á að spila þó ég geti ekki
spilað það sjálf,“ segir Katrín Ýr
Óskarsdóttir söngkona sem gaf út
smáskífuna „Heard It All Before“
í vor. Nú er annað lagið af plöt-
unni „Take Control“ komið í spil-
un í íslensku útvarpi og Katrín,
sem er búsett í London, er á leið
til landsins að fylgja smáskífunni
eftir.
Blaðmaður náði tali af henni
þar sem hún sat í lest í London.
„Ég er að skrifa tónlist og á leið í
smá stúdíó„session“ með tónlist-
arfólki heima. Mig langar líka að
koma tónlistinni minni á fleiri út-
varpsstöðvar heima. Ég hef eigin-
lega bara unnið við tónlist úti, en
hef einhverja þörf fyrir að koma
mér aðeins meira á kortið heima.
Tónlistarlífið heima hefur verið
svo mikið að blómstra.“
Vill kynna sig heima
Katrín hefur búið í London í tíu ár
og tónlistin er hennar lifibrauð.
Hún segir fólk á Íslandi oft verða
hissa þegar hún segist vera tón-
listarkona í London. „Fólki finnst
oft merkilegt að ég sé tónlist-
arkona í útlöndum, en það viti
samt ekki hver ég er. Þess vegna
væri gaman að stimpla sig inn á
markaðinn heima,“ segir Katrín
sem upphaflega ætlaði sér aðeins
að vera ár í London, klára þar
diplómanám, og koma heim. En
plönin breyttust aðeins. Hún end-
aði í þriggja ára söngnámi við The
Institute of Contemporary Music
Performance.
Fór að semja eigin tónlist
„Ég byrjaði aðeins að starfa við
tónlist á meðan ég var í skólan-
um en hef unnið við þetta í fullu
starfi síðan ég lauk námi. Þegar
ég bjó heima þá datt mér aldrei
í hug að ég gæti unnið bara við
tónlist, en þá var ég oft að syngja
á skemmtistöðum um helgar,“
segir Katrín sem er búin að fá
Fjölbreytt verkefni Katrín hefur nóg að gera í London og hefur meðal annars verið að
syngja í brúðkaupum og fyrirtækjaskemmtunum.
Mynd | Vicky Baptiste - Flux Photographic
Fylgstu með Katrínu:
Instagram @IntroducingKat
Snapchat IntroducingKat
Facebook Katrín - IntroducingKat
Soundcloud IntroducingKat
Youtube IntroducingKat
Hægt að hlusta á og ná í smáskíf-
una „I Have Heard It All Before“
á iTunes, Spotify, Soundcloud og
Tónlist.is.
„Skemmti mér konunglega
við það sem ég er að gera“
Katrín Ýr er á leið til Íslands til að fylgja eftir smáskífunni sinni og
starfa með íslensku tónlistarfólki. Lifir á tónlistinni í London en er lítið
þekkt hér heima.
mörg skemmtileg tækifæri í tón-
listinni úti ásamt því að hafa ferð-
ast mikið. Þá kennir hún einn til
tvo daga í viku við skólann sem
hún lærði í.
Hún hafði ekki mikið verið að
fást við sína tónlist fyrr en síð-
asta haust. Þá ákvað hún að láta
slag standa. „Það kostar auðvitað
peninga að gera sína eigin tón-
list, þannig það getur verið erfitt.
En fyrir um ári síðan fannst mér
tími til kominn að gera það sem
ég væri búin að vera á leiðinni að
gera í mörg ár.“
Er að upplifa drauminn
Verkefnin hingað til hafa verið
mjög fjölbreytt, en Katrín hefur
til dæmis verið að syngja í brúð-
kaupum og á fyrirtækjaskemmt-
unum. „Ég er rosa léleg í að gera
alltaf það sama og rútína hent-
ar mér ekkert sérstaklega vel.
Þetta er bara draumurinn og ég
skemmti mér konunglega við það
sem ég er að gera,“ segir Katrín
hlæjandi.
Hún viðurkennir þó að sumir
mánuðir geti verið erfiðari en aðr-
ir, enda er mismikið að gera eftir
árstíðum. „Það getur verið lítið að
gera í janúar og febrúar, en ég lifi
alveg með því. Það er bara eins og
í mörgum öðrum störfum. Fólk
fær stundum mikla yfirvinnu og
stundum ekki. Þegar ég útskrif-
aðist þá beit ég í mig að ég ætlaði
bara að vinna við þetta og ég hef
staðið við það.“
Söngkonan Adele hefur síðustu
mánuði verið á tónleikaferðalagi
um Norður-Ameríku og hefur
slegið í gegn kvöld eftir kvöld.
Hún heillar áhorfendur upp úr
skónum með einstakri rödd sinni
og skemmtilega kaldhæðnum
breskum húmor. En svona mikil
keyrsla getur tekið sinn toll af
heilsunni og það er nákvæmlega
það sem gerðist í tilfelli Adele.
Í vikunni var hún orðin svo upp-
full af kvefi og hálsbólgu að hún
gat ekki með nokkru móti sungið,
þrátt fyrir að hafa reynt að hita sig
vel upp. Þurfti hún því að því að
hætta við tvenna tónleika í Phe-
onix. Hún tók upp myndband þar
sem hún talaði til aðdáenda sinna
og birti á instagram. Þar baðst hún
innilega afsökunar á því að bregð-
ast aðdáendum sínum með þess-
um hætti, en tók jafnframt fram
að hún yrði að hugsa um sjálfa sig
og ná heilsu svo hún gæti haldið
tónleikaferðalaginu áfram.
Það fór ekki á milli mála í
myndbandinu að söngkonan var
sárlasin. Hún var mjög stífluð af
kvefi, rauð og sár á nefinu eftir að
hafa snýtt sér aðeins of oft, þrútin
í andlitinu með blóðhlaupin augu.
Rúmið var augljóslega eini staður-
inn sem hún átti heima í.
Adele lofaði aðdáendum sínum
að hún myndi koma aftur til
Pheonix síðar og halda tónleika.
Það er vonandi að spenntir tón-
leikagestir erfi þetta ekki við
sárlasna söngkonuna.
Ávarpaði aðdáendur sárlasin
Söngkonan Adele varð að hætta við tvenna tónleika vegna veikinda.
Ekki upp á sitt besta Adele
leit ekki alveg svona vel út í
myndbandinu sem hún birti á
Instagram í vikunni.
…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Fólki finnst oft
merkilegt að
ég sé tónlistarkona í
útlöndum, en það viti
samt ekki hver ég er.
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg
sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í
Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs
og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku
frá maí til október.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900