Fréttatíminn - 19.08.2016, Qupperneq 70
Unnið í samstarfi við Bandalag
íslenskra skáta
Skátahreyfingin er ein stærsta uppeldishreyf-ing ungs fólks í heiminum með yfir 40 milljónir félaga
í 200 löndum. Hér á landi er fjöl-
breytt skátastarf í boði fyrir ungt
fólk á aldrinum 8-25 ára með stig-
vaxandi áskorunum og ævintýrum.
Í skátunum fá börn og ungmenni
tækifæri til að vera þau sjálf og
stíga út fyrir þæginda-
rammann í öruggu umhverfi vina.
Skátastarf er fyrir alla með
áherslu á fjölbreytileika
og alhliða þroska
einstaklingsins.
Í skátunum er
lögð áhersla á að
ungt fólk læri að
taka ábyrgð og vera
leiðtogar í eigin lífi.
Skátarnir eru með
öflugt fræðslukerfi í að
þjálfa ungt fólk til ábyrgð-
ar með jákvæðum hætti m.a.
í tengslum við náttúruna og upp-
byggilega lífsreynslu af ýmsum
toga. Fólk starfar sem sjálfboða-
liðar og eru skátar fram eftir öll-
um aldri. Sjá heimasíðu skátanna
www.skatarnir.is
Fréttatíminn náði tali af Halldóri
Valberg Skúlasyni sem er sautján
ára og hefur verið skáti í átta ár.
Hann lætur mjög vel af skátastarf-
inu.
„Skátastarfið er stór hluti af mér
og hefur mótað mig sem einstak-
ling. Ég var frekar feiminn og
óframfærinn áður en ég byrjaði í
skátunum en þar hef ég kynnst
mörgu frábæru fólki og orðið fyrir
vikið mun meiri félagsvera. Ég á
til dæmis mun auðveldara með að
hefja samræður og þá ekki síður
biðja um aðstoð eða efna til sam-
starfs. Maður kynnist fólki miklu
betur þegar maður sefur með því í
tjaldi heldur en á kaffihúsi. Það er
mikið félagslíf í skátunum, sérstak-
lega þegar þú ert á aldrinum 14-25
ára. Það er toppurinn á tilverunni
Toppurinn á tilverunni að vera skáti
Fjölbreytt skátastarf í boði fyrir ungt fólk á aldrinum 8-25 ára
Skátarnir
- Skátarnir eru spennandi og upp-
byggilegur valkostur fyrir frítíma
barna og unglinga.
- Skátar eru góðir vinir og félagar.
- Skátar bjóða upp á ævintýralega
dagskrá innanlands sem erlendis.
- Skátarnir eru æskulýðs– og
uppeldishreyfing með það að
leiðarljósi að gera skátana að
virkum og ábyrgum einstakling-
um. Skátarnir gefa þátttakendum
svigrúm til virkrar þátttöku og
eflum leiðtogahæfni þeirra, hvort
heldur til að leiða hópa eða verða
leiðtogi í eigin lífi.
- Skátahreyfingin er í takt við
tíðarandann og er trúverðug í því
sem hún tekur sér fyrir hendur.
- Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.skatamal.is.
Skátar – leiðtogar í eigin lífi
Það uppeldis- og menntunarstarf sem felst í skátastarfinu hefur það að
markmiði að skapa ungu fólki tækifæri til sjálfsnáms og aukinnar samfé-
lagsvitundar – til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þjóðfélagsþegnar
og til að láta gott af sér leiða í nærsamfélagi sem og í samfélagi mann-
kynsins í heild.
Skátastarf snýst um uppeldi til lýðræðislegrar þátttöku og sjálfbærrar
þróunar. Það eflir raunhæft sjálfsmat einstaklingsins og sjálfstraust – en
jafnframt hæfileika til að vinna með öðrum. Skátastarf er leiðtogaþjálfun
– ekki í þeim skilningi að í skátastarfi séu einstaklingarnir þjálfaðir til að
stjórna öðrum heldur til að vinna með öðrum að settu marki og ekki síst
til að verða leiðtogar í eigin lífi.
Fjör og húllumhæ Að sögn Halldórs er alltaf fjör í skátunum. „Og í gegnum þetta fjör er ótrúlegt hvað við lærum,“ segir hann.
Gleði Halldór
Valberg Skúlason
skemmti sér vel
í hópi fimmtíu
íslenskra skáta á
Roverway í Frakk-
landi í sumar.
og opnar nýjar dyr og nýja heima.“
Það er sjaldnast nein lognmolla
í skátunum og Halldór hefur haft í
nógu að snúast í sumar. Hann tók
vitaskuld þátt í frábæru landsmóti
í júlí og hann er nýkominn heim frá
Frakklandi eftir tveggja vikna æv-
intýraferð.
„Við fórum til Frakklands og tók-
um þátt í Evrópumóti sem kallast
Roverway. Þetta er mót fyrir 16-22
ára og markmiðið með því er að
efla einstaklinginn. Við vorum um
fimmtíu Íslendingar sem fórum á
Roverway. Við völdum okkur í átta
manna flokka sem síðan samein-
uðust flokkum frá öðrum löndum.
Þetta urðu alþjóðlegar skátasveitir
sem fengu mismunandi samfélags-
verkefni.
Mín sveit fékk það verkefni að
endurbyggja bæ á einni viku. Þetta
var bær sem átti sögu að rekja aft-
ur á tólftu öld í Norður-Frakklandi
og var byggður á sama hátt og
kastalar voru byggðir þá. Á með-
an á verkinu stóð fengum við að
kynnast bæði franskri menningu
og menningu annarra Evrópuþjóða
því þarna var, auk Frakka, líka fólk
frá Portúgal, Ítalíu, Hollandi og
Spáni.
Þegar þessi vika var liðin hópuð-
ust allir saman rétt fyrir utan París.
Þetta var 5.000 manna samkoma
og við tókum þátt í hugmynda-
smiðjum um það hvernig við getum
bætt heiminn, lært hvert af öðru
og deilt visku okkar,“ segir Halldór
sem segir alla ferðina hafa verið
frábæra upplifun.
„Eini neikvæði þátturinn var
sennilegast allt baguette-átið. Við
átum það í öll mál. Þetta var um
eitt og hálft baguette á dag í fjórt-
án daga. Það er heljarinnar magn
af franskbrauði, en auðvitað þáttur
í að kynnast nýrri menningu.“
Halldór segir að það sé nóg
framundan í skátastarfinu. Á
næsta ári verður til að mynda
haldið hér á landi World Scout
Moot. „Þetta verður stærsti við-
burður sem bandalagið hefur tekið
að sér. Þarna verða yfir fimm þús-
und manns samankomnir. Þetta
verður eins og Evrópumótið sem
ég var á, fólk leysir verkefni á tíu
stöðum víðsvegar um landið og
svo verður stórt þing á Úlfljóts-
vatni að þeim loknum. Þar verður
eitt heljarinnar húllumhæ.“
Halldór segir það einkennandi
við skátastarfið að þar sé alltaf
fjör. „Og í gegnum þetta fjör er
ótrúlegt hvað við lærum. Á þess-
um átta árum mínum hef ég lært
að verða sjálfstæður einstakling-
ur. Þarna er svo gífurlega mikil
leiðtogaþjálfun og við lærum að
vinna og gera hluti sem maður
lærir vanalega ekki í daglega lífinu.
Í skátastarfinu eru manni gefin
tækifæri á óendanlegum ævintýr-
um. Og ef maður er til getur maður
gripið þau öll.“
nánari upplýsingar á skatarnir.is
og á www.facebook.com/skatarnir
…tómstundir kynningar 10 | amk… FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
„Skátastarfið
er stór hluti
af mér og hefu
r
mótað mig sem
einstakling.