Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 23.09.2016, Blaðsíða 57

Fréttatíminn - 23.09.2016, Blaðsíða 57
…heilsa kynningar9 | amk… FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016 „Eftir að ég kynntist Roseberry hef ég ekki þurft á lyfjum að halda.“ Ragnhild Friðjónsdóttur Unnið í samstarfi við Artasan Bráð blöðrubólga er mjög algeng og fá konur hana mun oftar en karlar. Jafn-vel er talið að allt að 70% kvenna hafi einhvern tíma fundið fyrir einkennum bráðrar blöðru- bólgu. Orsök bráðrar blöðru- bólgu eru oftast bakteríur sem eiga uppruna sinn í ristli og endaþarmi eins og t.d. E.coli, Klebsiella og Streptococcus faecalis. Endurtekn- ar blöðrubólgur geta verið af sama stofni sýkla eða frá öðrum bakteríum. Sýkillinn sem veldur blöðru- bólgu berst sem sagt upp þvagrásina og upp í þvagblöðru þar sem hann veldur bólgubreytingum í blöðruþekj- unni svo hún verður rauð, bólgin og aum. Sýklalyf ekki alltaf lausnin Margir sjúklingar fá endurtekna blöðrubólgu vegna sama sýkils- ins, sem upprunninn er frá ristli. Sjúklingum eru stundum gefin breiðvirk sýklalyf vegna þessa (og stundum vegna annarra sýk- inga) en það getur leitt til þess að erfiðara verður að eiga við sýkil- inn með sýklalyfjum. Jafnframt geta konur fengið viðvarandi sýk- ingu í fæðingarveg og sveppasýk- ingu vegna endurtekinnar notk- unar sýklalyfja. Trönuber gegn sýkingum Rannsóknir hafa sýnt fram á að efni í trönuberjasafa gera bakteríum eins og E.coli erf- iðara að festa sig við þvagblöðru- vegginn og hjálp- ar það því líkam- anum að berjast við sýkingar. Trönuberja- safi er því eitt af helstu vopnum náttúrulækninga gegn blöðrubólgu og öðrum þvagfæra- sýkingum. Best er að drekka nóg af trönuberjasafa eða nota töflur sem innhalda þykkni úr honum. „Roseberry virkar“ Roseberry inniheldur þykkni úr trönuberjum með háu hlutfalli af PAC sem er virkasta efnið í þykkninu, ásamt hibiscus (lækna- kólfi) og C-vítamíni sem gefur þrí- hliða virkni og skjóta lausn gegn óþægindum. Frú Ragnhild Guðrún Friðjónsdóttir hefur gríðarlega góða reynslu af Roseberry: „Ég var alltaf með blöðrubólgu og bólgu í þvagrásinni. Ég tók súlfa- lyf lengi vel en eftir að ég kynnt- ist Roseberry hef ég ekki þurft á lyfjum að halda. Ég hef bent mörgum á Roseberry því ég veit að það virkar“. Náttúruleg lausn Roseberry er náttúrulegt bæti- efni og hentar öllum frá 11 ára aldri. Það er einnig nauðsynlegt, eins og alltaf, að drekka nóg af vatni. Þá nær blaðran að tæma sig reglulega og „skola út“ þannig að sýklar ná ekki að fjölga sér of mikið. Sölustaðir: flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. „Lunamino getur reynst afar hjálplegt við að komast út úr þeim vítahring sem svefn- leysi getur valdið og hjálpað til að við að bæta svefninn og svefnmynstrið. Hrönn Hjálmarsdóttir næringar- og heilsumarkþjálfi Lunamino inniheldur L-tryptófan, valdar jurtir o g bætiefni Roseberry er náttúrulegt bætiefni og hentar öllum f rá 11 ára aldri. Sefur þú illa á nóttunni? Lunamino kom á markað á Íslandi fyrr á þessu ári og er það fyrsta sinnar tegundar. Það inniheldur L-tryptófan sem er byggingarefni svefnhormónsins melatóníns ásamt völdum jurtum og bætiefnum sem hafa róandi og slakandi áhrif. Burt með blöðrubólguna Í Roseberry er einstök samsetning af trönuberjaþykkni, hibiscus (læknakólfi) og C-vítamíni sem hefur reynst mörgum afar vel í baráttunni við blöðrubólgu og aðrar þvagfærasýkingar Unnið í samstarfi við Artasan Góður svefn er undirstaða góðrar heilsu en um það bil þriðjungi mannsæv-innar er varið í svefn. Tímabundið svefnleysi getur valdið vanlíðan og þreytu á daginn og haft mikil áhrif á dagleg störf. Við eigum erfiðara með að einbeita okkur, erum þreytt og pirruð og rökhugsun skerðist. Algengt er að streita, áhyggjur, kvíði, óvissa og þunglyndi valdi því að við sofum illa en ýms- ir sjúkdómar, bæði líkamlegir og andlegir geta haft bein áhrif líka. Margir kannast líka við mikla þreytu í tengslum við ferðalög milli tímabelta og/eða vaktavinnu og svo hefur mataræðið einnig áhrif. Nýtt svefnbætiefni Lunamino kom á markað á Íslandi á þessu ári og hefur það hlotið góðar viðtökur. Það inniheldur L-tryptófan, valdar jurtir og bæti- efni sem öll eru þekkt fyrir róandi og slakandi áhrif. Þessi blanda getur hjálpað okkur að sofna og gert nætursvefninn betri og sam- felldari. Svefnhormónið melatónín L-tryptófan er amínósýra sem við fáum úr ýmsum matvælum, t.d. úr eggjum, osti, laxi, hnet- um, fræjum, kalkúnakjöti og tofu. Þessi amínósýra er lífsnauðsyn- leg því líkaminn okkar framleiðir hana ekki sjálfur. L-tryptófan er m.a. bygging- arefni svefn- hormónsins melatóníns sem heilaköngull- inn framleiðir og getur það því haft áhrif á svefn. Róandi jurtir Auk L-tryptófans inniheldur Luna- mino vel þekktar jurtir: Melissu sem hjálpar okkur að sofna ásamt lindarblómi og höfrum sem eru sérstaklega róandi. Lunam- ino inniheldur einnig blöndu af B-vítamínum og magnesíum. B vítamín eru sérlega mikilvæg fyrir starfsemi taugakerfisins og magnesíum sem er vöðvaslakandi og getur m.a. dregið úr fótapirr- ingi. Um 30% þjást af svefnleysi Svefnleysi er útbreitt heilsufars- vandamál sem hefur alvarlegar sálrænar, líkamlegar og efnahags- legar afleiðingar í för með sér. Talið er að um 30% Íslendinga eigi við svefnvandamál að stríða og er neysla svefnlyfja mun meiri á Ís- landi en á öðrum Norðurlöndum. Lunamino getur reynst afar hjálplegt við að komast út úr þeim vítahring sem svefnleysi getur valdið og hjálpað til við að bæta svefninn og svefnmynstrið. Það er þó ekki síður mikilvægt að koma sér upp rútínu fyrir svefninn sem miðar að því að róa hugann og fá okkur til að slaka á. Svefnleysi og þyngd Svefn og mataræði tengjast sterkum böndum en það er gott að hafa það í huga að meltingin okkar þarf líka hvíld á nóttunni. Best er að borða létta máltíð á kvöldin og góð regla er að borða ekki eftir kl 19. Örvandi drykkir sem innihalda koffín og/eða sykur ætti að sleppa alveg sem og að borða sætindi og ruslfæði, því þó að við sofn- um eru miklar líkur á því að við vöknum þegar blóðsykur- inn nær lágmarki. Einnig hefur svefnleysi áhrif á seddu og svengdarhormónin Leptín og Ghrelin sem ásamt brenglun á streituhormóninu Kortisóli auka löngun okkar í orkuríkan mat. Flest þekkjum við það líka að ef við erum þreytt og óúthvíld, þá sækjum við frekar í ruslfæði og sætindi sem gefa okkur skjót- fengna orku. Þetta er því víta- hringur sem mörgum getur reynst erfitt að komast út úr en eins og alltaf, þá er góður svefn undir- staða heilbrigðs lífs. Svefnvandamál og svefnleysi getur þó átt sér dýpri rætur og þá er um að gera að leita til fagaðila sem sérhæfa sig í þessu. Sölustaðir: flest apótek, heilsu- búðir og heilushillur verslana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.