Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 23.09.2016, Side 52

Fréttatíminn - 23.09.2016, Side 52
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Fyrir fimm árum var ég algjör sykurfíkill og var háð því að fá nammi um helgar. Ég beið alltaf eft-ir helgunum til að geta fengið mér nammi, því ég var með nammidaga um helgar, eins og svo margir Íslendingar. En ég fékk mér oft ís á kvöldin í miðri viku og elskaði Ben&Jerry’s og borðaði mjög mikið af skyndibita í mennta- skóla. Þetta hafði aldrei nein áhrif á mig, að ég hélt, en ég áttaði mig skyndilega á því að ég var komin með fleiri heilsukvilla en ég hafði tölu á,“ segir Júlía Magnúsdótt- ir, næringar- og lífsstílsráðgjafi, heilsumarkþjálfi, eigandi Lifðu til fulls heilsumarkþjálfunar og nú höfundur samnefndar bókar sem kom út á dögunum. En bókin, Lifðu til fulls, er nú fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson. Greip allar flensur Júlía tekur á móti blaðamanni á heimili sínu í Kópavogi, rétt við Elliðavatn, og er búin að útbúa handa okkur dýrindis morgun- verðarskál – gráfíkjumúslí með kókosrjóma beint úr bókinni. Hún hafði glímt við ýmsa heilsu- kvilla um hríð, suma frá unga aldri, en tengdi þá ekkert endilega við lífsstíl sinn eða mataræðið. Það var ekki fyrr en hún ákvað að gera róttækar breytingar á mataræðinu, og fór á plöntumiðað fæði, að hún áttaði sig á því að það var ekki eðlilegt að upplifa stöðug líkamleg óþægindi. „Það var svo margt sem ég hafði lært að lifa með. Þegar ég var yngri þá var ég til dæmis alltaf fyrst til að grípa allar flensur og greindist líka með iðraólgu, sem lýsir sér með meltingarkrömpum og hægðatregðu. Vildi ekki liggja veik Fyrir um fimm árum var Júlía orðin virkilega slæm af iðraólg- unni, hún var alltaf veik og þrátt fyrir að sofa mjög mikið var hún alltaf þreytt. Þá var hún farin að þjást af liðverkjum sem öftruðu henni frá því að hlaupa – eitt- hvað sem hún elskaði gera. „Ég greindist síðar með latan skjald- kirtil sem hægir á brennslunni og getur valdið áðurtöldum ein- kennum. Síðan greindist ég með PMS, sem er hormónaójafnvægi sem getur raskað tíðahringnum, dregið úr líkum á barneignum og valdið fjölda annarra einkenna. Þegar ég var komin með þetta allt þá sá ég bara að ég varð að breyta einhverju. Ef ég myndi ekki gera það, þá þyrfti ég að fara á lyf. Mig langaði til að ferðast í lífinu og mig langaði ekki að vera með meltingarkrampa á ferðalögum mínum, eða þurfa að liggja veik uppi á hótelherbergi. Þannig ég ákvað taka glútein, allar mjólkur- vörur, sykur og egg út úr fæðunni og fór á hreint og plöntumiðað fæði. Eftir bara viku á því matar- æði fann ég hvað mér leið miklu betur. Ég var orkumeiri, ég var farin að vakna á undan vekjara- klukkunni, magakramparnir og verkirnir í fótunum hurfu. Og mér leið bara virkilega vel, sem hvatti mig til að halda áfram.“ Gerði góða matinn hollari Júlía viðurkennir þó að það hafi komið tímabil þarna í upphafi þar sem hún fór út af sporinu í nýja mataræðinu, fékk sér pítsu eða annað óhollt. En henni leið svo hræðilega eftir á að það hvatti hana bara enn frekar áfram á beinu brautinni. Þó löngunin í sætindi og óhollan mat hyrfi vissu- lega ekki á nokkrum dögum. „Ég var búin að finna hvað mér gat liðið vel og ég vildi ekki fórna því. Í kjölfarið fór ég svo að þróa upp- skriftir þar sem maturinn missti ekki góða bragðið á kostnað holl- ustunnar. Ég tók matinn sem ég borðaði dagsdaglega og gerði hann hollari með því að nota önnur hráefni. Þetta má nefnilega ekki vera matur sem maður þarf að pína ofan í sig. Þá er maður ekki að njóta og líklegt að maður gefist upp. Mér fannst flókið að átta mig á því hvernig ég ætti að breyta lífs- stílnum og var það einn hvatinn að skrifa bókina. Ég vildi einfalda öðrum leiðina að bættum lífstíl og sanna að hægt væri að borða virki- Var sykurfíkill Júlía segist hafa verið háð sykri og var dugleg að borða skyndibita. Það kom niður á heilsu hennar og dag einn ákvað hún að grípa í taumana. Mynd | Hari Var komin með fleiri heilsukvilla en hún hafði tölu á Júlía ákvað að breyta um lífsstíl í von um að líða betur. Árangurinn lét ekki á sér standa og lífsstíllinn varð að starfsferli. Hún sendi nýlega frá sér bókina Lifðu til fulls til að auðvelda fleirum leiðina að bættum lífsstíl og hollara mataræði. lega bragðgóðan mat án sykurs eða óhollustu sem væri fljótlegur og einfaldur líka.“ Maðurinn líka á beinu brautinni Eftir nokkur hliðarspor varð Júl- ía fljótt heltekin af nýja lífsstíln- um og hún ákvað að mennta sig á þessu sviði, en fyrir hafði hún lært viðskipta- og hagfræði. Og þannig varð lífsstíllinn að starfsferli. „Eftir þessa uppgötvun hjá mér langaði mig að hjálpa öðrum og ég fann að aðrir upplifðu það sama og ég,“ segir Júlía og brosir. Hún er nú al- veg laus við verkina, þreytuna og vanlíðanina sem hún glímdi við í mörg ár. Sumt lagaðist mjög fljótt, en það tók lengri tíma að ná skjald- kirtlinum í jafnvægi og að losna við einkennin vegna PMS. Maðurinn hennar Júl- íu hefur einnig tekið sig á í mataræðinu, en þá vegferð hóf hann ekki fyrr en hann hafði greinst með áunnið glútein- og mjólkuróþol. „Maðurinn minn vill ekki vera svona öfgakenndur. Hann vildi ekki fara alveg út í vegan lífsstíl. Ég prófaði sjálf að fara alveg út í vegan lífsstíl en nú borða fisk einu sinni í viku. Ég get vissulega fengið öll þau næringarefni sem ég þarf með því að vera vegan, en ég er alin upp við fisk, finnst hann góður og sé ekki ástæðu til að neita mér um hann.“ Snýst um að venja sig Júlía og maðurinn hennar borða alltaf hreina fæðu heima. Hann borðar hins vegar kjöt af og til og svo auðvitað fisk. „Þetta er maður sem lifði á kóki, mjólk, kókópöffsi og pítsum, en í dag drekkur hann hrísmjólk og finnst hún betri. Þetta snýst mikið um að venja sig á nýja fæðu og ekki byrja með því hugar- fari að þetta sé vont. í dag finnst mér maturinn minn miklu betri en sá sem ég borðaði áður og að upplifa vellíðan af einhverju sem bragðast vel er dásamlegt. Aðspurð segir Júlía það ekki hafa valdið neinum árekstrum í hjóna- bandinu að mataræðið sé ólíkt. „Þegar við förum út að borða þá kaupir hann sér stundum ham- borgara á meðan ég kaupi mér eitthvað sem mér líður vel af og fullkomlega sátt við það. Hann seg- ir oft að sér líði illa eftir matinn, en það er bara hans ákvörðun,“ segir Júlía og hlær. „Ég þvinga ekki mínum ákvörðunum upp á hann. En mataræðið hans er samt allt öðruvísi en það var. Hann er í holl- ustunni 80 prósent af tímanum. Sem sýnir bara að öll okkar þurf- um að finna okkar takt í breyttum lífsstíl.“ Vildi ekki vinna fyrir aðra Áður en Júlía hellti sér út í heilsu- fræðin vissi hún ekki alveg hvað hún vildi gera í lífinu. Hún var ekki ánægð í starfi og það var ekki bæt- andi á líkamlegu vanlíðanina sem hún var að upplifa. „Ég var í vinnu sem var ekki að uppfylla mín- ar þarfir. Ég var ekki ánægð og á ákveðnum tímapunkti ákvað ég að ég ætlaði mér ekki að vinna fyrir einhvern annan frá 9 til 5, við eitt- hvað sem ég hafði enga unun af. Eftir að ég tók þessa ákvörðun datt ég niður á skóla þar sem ég lærði heilsumarkþjálfun og næringar- og lífsstílsráðgjöf.“ Eftir að Júlía lauk náminu fór hún strax út í að stofna sitt eigið fyrirtæki sem hefur vaxið og dafnað síðan. Hún er dugleg að viða sér nýrri þekkingu og sæk- ir reglulega námskeið í nýjustu straumum og stefnum í heilsum- ataræði. „Mér finnst mjög gaman að læra. Það veitir mér hamingju. Ég held að ég muni aldrei hætta að læra.“ …viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2016 Eftir þessa upp­ götvun hjá mér langaði mig að hjálpa öðrum og ég fann að aðrir upplifðu það sama og ég Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.