Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 23.09.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 23.09.2016, Blaðsíða 28
Hillary lætur Trump eftir sviðið Eitt af því sem fréttaskýrendur hafa bent á sem ástæðu fyrir þeim við- snúningi sem átt hefur sér stað er að Clinton var lítt sýnileg í ágúst Í stað þess að fylgja vel heppnuðum landsfundi eftir með fundaherferð um lykilfylki kosningabaráttunnar beindi Clinton nær allri athygli sinni að fjáröflun en samkvæmt kosn- ingaskrifstofu Clinton hélt hún alls 37 fjáröflunarfundi í mánuðinum. Clinton eyddi tíma sínum í kokteil- boðum og fjáröflunarkvöldverðum með vellauðugum stuðningmönn- um sínum, vinum og velunnurum í stað þess að mæta á kosninga- fundi með almúganum í smábæjum Bandaríkjanna. Afraksturinn var alveg hreint skínandi, sé hann mældur í dollur- um. Alls safnaði Clinton 143 millj- ónum bandaríkjadollara í ágúst, sem var met. Til samanburðar safn- aði Obama ekki nema 66 milljón- um dollara í ágúst 2008. Fjáröflun Trump í ágúst skilaði svo 90 millj- ónum dollara. Og það sem meira er, fylgistölur Clinton virtust ekki líða fyrir fjarveru hennar en það breytti því ekki að í fjarveru hennar átti Trump sviðið einn. Rommel eða Dukakis? Með því að einblína á stuðning hinna auðugu var Clinton að taka ákveðna áhættu. Í stað þess að hitta kjósend- ur í eigin persónu og fá ókeypis um- fjöllun í fylkis- og héraðsmiðlum í tengslum við kosningafundi valdi hún að safna digrum kosningasjóð- um sem gætu borgað fyrir þéttriðið net kosningaskrifstofa og auglýs- ingaherferðir í sjónvarpi á lokametr- um kosningabaráttunnar. Forskot hennar í könnunum virtist benda til að hún hefði efni á að hverfa af sjón- arsviðinu í nokkrar vikur. Það verður ekki að fullu ljóst fyrr en í nóvember hvort Clinton veðj- aði á réttan kost í þessari stöðu. En eins og Glenn Thrush, dálkahöfund- ur á Politico.com, bendir á mun sú ákvörðun Clinton að einbeita sér að fjáröflun í ágúst vafalaust verða um- fjöllunarefni stjórnmálaskýrenda um langa framtíð. „Ef hún vinnur kosningarnar munu menn benda á fjáröflunarherferðina og þá holskeflu anti-Trump sjónvarsauglýsinga sem hún mun borga fyrir, sem dæmi um snilli Clinton og herkænsku. En ef hún tapar mun þessi ákvörðun enda einhverstaðar á toppi listans, ásamt Michael Dukakis í skriðdrekanum.“ (Sjá myndatexta) Trump verður „forsetalegri“ Meðan Hillary heimsótti auðmenn í The Hamptons virðist Trump hafa ákveðið að nú skyldi hefja alvöru kosningabaráttu og um miðjan ágústmánuð skipti hann í annað sinn á stuttum tíma um kosninga- stjóra. Við stjórninni tóku Steve Bannon, sem hafði stýrt Breitbart Media og Kellyanne Conway en Trump réði Conway sérstaklega til að milda yfirbragð framboðsins og bæta ímynd þess. Í stað þess að eiga í stöðugum útistöðum á félagsmiðlum hefur Trump verið tiltölulega rólegur frá því í byrjun ágúst. Að vísu hefur hann ekki hætt að skrifa undarlegar Twitterfærslur á tímum þegar flest- ir sofa, dreifa samsæriskenningum, móðga minnihlutahópa eða setja fram fullyrðingar sem eru óumdeil- anlega rangar, en í samanburði við það sem fjölmiðlar og kjósendur áttu að venjast frá Trump hefur hann verið því sem næst yfirvegaður og hófstilltur í samanburði. Trump hefur líka haldið nokkra blaðamannafundi þar sem hann hef- ur haldið sig við fyrirfram skrifað handrit og skýra punkta, og einnig flutt ræður með útfærðum stefnu- málum. KosningafundirTrump eru eftir sem áður undarlegt spunaleik- hús með „orðasalötum“, en þó hafa blaðamannafundir, eins og sá sem Trump hélt með forseta Mexíkó í lok ágúst, hjálpað til við að gera Trump „forsetalegan“ í augum margra kjós- enda. Skandalar Clinton Önnur meginástæða þess að Clint- on hefur tapað forskoti sínu er fremur neikvæð fjölmiðlaumfjöllun. Í lok ágúst vöknuðu spurningar um að Clintonhjónin hefðu veitt þeim er gáfu fé til góðgerðarstofnunar þeirra, The Clinton Foundation, óeðlilega pólitíska fyrirgreiðslu, og í byrjun september birti banda- ríska alríkislögreglan skýrslu um rannsókn á tölvupóstsamskiptum Clinton meðan hún var utanríkis- ráðherra. Að vísu var ekkert glæpsamlegt að finna í þessum uppljóstrunum, né í raun nýjar fréttir, en umfjöllun- in renndi stoðum undir þá tilfinn- ingu margra kjósenda að Clinton væri að fela eitthvað og að það væri ekki hægt að treysta henni fyllilega. Trump hefur alla kosningabaráttuna hamrað á því að Clinton sé óheiðar- leg og slagorðin „Crooked Hillary“ og „Hillary for Prison“ voru áber- andi á landsfundi Repúblikana- flokksins. Samsæri og Lunganbólgu-gate Þriðja skýringin á vandræðum Clint- on, og sú nærtækasta, eru veik- indi hennar, aðsvifið sem hún fékk sunnudaginn 11. september og svo sú staðreynd að hún hélt veikind- um sínum leyndum. Þessar fréttir orsökuðu tvennt. Annars vegar ýttu þær enn frekar undir þá tilfinningu margra að Hillary Clinton væri lífs- ins ómögulegt að koma hreint fram og að hún væri að leyna almenning einhverju. Hins vegar kynntu þær undir sam- særiskenningum sem höfðu verið á sveimi yst á hægri vængnum í nokk- ur ár um að Clinton væri fársjúk. Þessar kenningar, sem Breitbart News hefur verið ötult við að dreifa, ganga ýmist út á að Clinton þjáist af Parkinsons, hún sé með heilaskaða af einhverjum ástæðum, fái reglu- leg flog og sé líklega við dauðans dyr. Einn angi kenninganna gengur út á að hin „raunverulega“ Hillary Clint- on sé of farlama til að birtast opin- berlega, og að hún láti tvífari sinn sjá um opinberar uppákomur. Á Breitbart News var fjarvera Clinton í ágúst talin styðja þessa kenningu 28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. september 2016 Magnús Sveinn Helgason ritstjorn@frettatiminn.is Fyrir rétt rúmlega mánuði síð- an voru stjórnmálaskýrendur og stuðningsmenn HillaryClinton svo gott sem búnir að afskrifa Donald Trump. Sigur virtist nánast öruggur, því forskot Hillary á Trump á lands- vísu var allt að 9%. Spurningin virt- ist ekki hvort Hillary myndi sigra, heldur hversu stór sigurinn yrði. Demókratar gældu jafnvel við að sigur Hillary yrði svo stór og ósigur Trump svo alger, að það myndi sópa stórum hluta þingflokks Repúblik- ana út úr báðum deildum þingsins. Sögulegur stórsigur virtist vera í sjónmáli. Í dag er staðan allt önnur. Lítið hefur sést til Clinton allan ágúst- mánuð, á meðan Trump virðist hafa tekið sig á, er örlítið agaðri og ábyrgari á félagsmiðlum og á kosn- ingafundum. Í síðustu viku beindist hið neikvæða kastljós svo að Clinton, því í kjölfar þess að hún hneig niður á minningarathöfn um hryðjuverka- árásirnar 11. september í NewYork snérist öll stjórnmálaumræða í Bandaríkjunum um heilsufar henn- ar og tilraun um til að halda veikind- um hennar leyndum. Afleiðing alls þessa er að forskot Hillary er nánast horfið. Mikil um- fjöllun er um gerbreytta stöðu í kosningunum og það er ekki laust við að ákveðinnar örvæntingar gæti í herbúðum Demókrata: Trump á allt í einu raunhæfan möguleika á að sigra í nóvember. Úr nærri 10% forskoti í innan við 1% Samkvæmt meðaltali Real Clear- Politics á skoðanakönnunum er munurinn á frambjóðendunum núna innan við eitt prósent. Á mánu- dag sýndi meðaltal RCP á könnunum að fylgi Trump er 44% á landsvísu, meðan fylgi Clinton er 44,9%. Fylgi Clinton hefur ekki mælst minna, né munurinn á frambjóðendunum, síð- an í lok júlí, rétt fyrir upphaf lands- fundar Demókrataflokksins. (Sjá rammagrein). Frá upphafi kosningabaráttunn- ar hafði Hillary forskot á Donald en fylgi Trump jókst þó eftir því sem leið á prófkjörsslag Repúblikana- flokksins. Á meðan kjósendur á hægri vængnum fylktu sér um Trump leið Clinton fyrir átök stuðn- ingsmanna sinna og Bernie Sanders. Trump tókst hins vegar að glutra fylgisaukningunni niður í júní, ekki síst vegna eilífra deilna við for- ystu flokksins. Stjórnmálaskýrend- ur bentu á fylgishrun Trump í júní sem sönnun þess að sú strategía sem hann hafði beitt í prófkjörum flokksins, þ.e. að æsa upp grasrótina með stóryrðum og bægslagangi, virkaði ekki á aðra kjósendur. Um miðjan þann mánuð rak Trump svo kosningastjóra sinn, Corey Lewandowski, sem hafði stýrt fram- boðinu í gegnum prófkjörsslaginn. Fylgið tók aftur að stíga í júlí og tók svo kipp upp á við í kjölfar lands- fundar Repúblikanaflokksins í lok mánaðarins. Landsfundarkippur- inn, „the convention bounce“ varð hins vegar skammvinnur fyrir Trump, því Demókrataflokkurinn hélt sinn landsfund skömmu eftir að Repúblikanar höfðu lokið sínum. Meðan Hillary Clinton naut góðs af jákvæðri umfjöllun um landsfund Demókrataflokksins hélt Trump áfram illdeilum við leiðtoga síns eigin flokks og efndi til nýrra, t.d. með Twitterrifrildi við fjölskyldu látins hermanns af múslimskum uppruna. Í byrjun ágúst var staðan sú að Trump var kominn undir 40% fylgi og Hillary komin í 50%. Undir lok ágústmánaðar tók hins vegar að halla undan fæti hjá Hillary. Trump á raunverulegan möguleika á sigri Örvænting meðal Demókrata eftir að forskot Clinton er nánast horfið. Donald Trump á kosningafundi í Ohio 12. september. Sigur Trump veltur á því að vinna stuðning hvítra kjósenda í fylkjum þar sem lítill munur er á fylgi frambjóð- endanna. Árásir Trump á innflytjendur og fólk af suður-amerískum uppruna skaða Trump fyrst og fremst í fjölmennum fylkjum sem Clinton er hvort sem er örugg um að vinna. Myndir | Getty Gary Johnson, frambjóðandi Frjálshyggjuflokksins, ásamt ungum stuðnings- manni í Purdue-háskóla. Kannanir sýna að Johnson nýtur stuðnings 15-20% yngsta kjósendahópsins, en þessir kjósendur voru einn mikilvægasti hluti kosn- ingabandalags Obama 2008 og 2012. 50 48 46 44 42 40 Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Hillary Clinton Donald Trump 26 maí Trump innsiglar sigur í prófkjörum Repúblíkanaflokksins 6 júní Clinton innsiglar sigur í próf­ kjörum Demókrataflokksins. 20 júní Trump rekur kosn­ ingastjóra sem stýrði í prófkjörsslagnum. 18 júlí Landsfundur Repúblíkana hefst. 30 júlí Illdeilur Trump við Khanfjöl­ skylduna á Twitter hefjast 2 sept FBI birtir skýrslu um rannsókn á tölvu­ póstaskandal Clinton. 11 sept Hillary fær aðsvif og upplýsir um lungna­ bólgu smit. 17 ágúst Trump skiptir um kosningastjórn. Steve Bannon frá Breitbart Media tekur við. Fylgi Hillary Clinton og Donald Trump á landsvísu. Meðaltal skoðanakannana, samkvæmt Real Clear Politics 25 júlí Landsfundur Demókrata hefst. Heimild | realclearpolitics.com 7. júlí Yfirmaður FBI ber vitni fyrir þingnefnd vegna tölvu­ póstaskandals Clinton. Meðan Hillary Clinton naut góðs af jákvæðri umfjöllun um landsfund Demókrataflokksins hélt Trump áfram illdeilum við leiðtoga síns eigin flokks og efndi til nýrra, t.d. með Twitterrifrildi við fjölskyldu látins hermanns af múslimskum uppruna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.