Fréttatíminn - 24.11.2016, Side 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Það má víða sjá merki þess í samfélaginu að sáttmálinn er brotinn. Það er eins og við séum ekki lengur í saman liði. Vitum
ekki til hvers við ættum að vera það.
Sumir eiga erfitt með þennan
sáttmála, hugmyndina um að hann
sé yfir höfuð til. Það stríðir gegn
manngildis hugmyndum margra að
við séum saman í liði. Sumir leggja
áherslu á að mannfélagið byggist
ætíð upp af átökum milli stétta,
milli hagsmuna, milli kynja. Aðrir
vilja hafna hugmyndinni um samfé
lagið, það sé lítið annað en safn
haugur af einstaklingum.
En samt. Er samfélagið þarna. Við
getum kallað það límið milli okkar.
Það hefur teygst æði mikið á því
undanfarið. Of mörg þjóðþrifamál
lenda í þvargi milli fólks sem sæk
ir sjálfsmynd sína í að vera í sem
mestri andstöðu við þá sem það
ræðir við.
En merki þess að sáttmálinn sé
brotinn eða límið uppþornað sést
líka í kjaradeilu kennara. Sá hóp
ur hefur misst traust á vinnuveit
enda sínum. Hann hefur lært að
vinnuveitandinn, ríki og sveitar
félög, vinnur ekki af heilindum að
uppbyggingu skólastarfs og virðir
ekki starf kennarans. Virðir í raun
ekki stöðu venjulegs launafólks í
samfélaginu.
Atvinnurekandi sem hefur
misst starfsfólkið sitt í slíka stöðu
er í vondum málum. Þegar traust
brestur er fjári erfitt að líma það
sama aftur. Sérstaklega þegar límið
er orðið þurrt.
Það er að mörgu leyti staða okkar
í dag. Við þurfum að finna út úr því
hvað tengir okkur saman, hvert við
viljum fara og byggja sátt um það í
samfélaginu.
Gunnar Smári
BROTIÐ
SAMKOMULAG
3 ×
í viku
Lögregla Maðurinn sem lést á
Grandagarði sást á myndbands-
upptökum rétt áður en hann lést.
Á miðvikudagsmorgun í síðustu
viku fannst karlmaður látinn við
Grandagarð í Reykjavík. Fram
kvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu
í lengri tíma og fannst maðurinn lát
inn í skurði við gömlu verbúðirnar.
Í fyrstu stóð lögregla á gati en ekk
ert á vettvangi benti til að nokkuð
saknæmt hefði átt sér stað. Eftir að
borin voru kennsl á líkið kom í ljós
að maðurinn var á sjötugsaldri og
lét eftir sig þrjú uppkomin börn. Við
rannsókn málsins var farið yfir upp
tökur öryggismyndavéla á svæð
inu og sást þá frá að minnsta kosti
tveimur sjónarhornum að maður
inn var einn á gangi, skömmu áður
en andlát hans bar að. Talið er að
andlátið tengist veikindum. | þt
Myndband
náðist af
manninum við
Grandagarð
Kennarar Hjördís Albertsdóttir er
ein þeirra tólf kennara sem sögðu
upp í Norðlingaskóla í gær. Hún seg-
ir Láru V. Júlíusdóttur, sérfræðing í
vinnurétti, reyna að hræða kennara
með orðum sínum um að mót-
mælaaðgerðir þeirra séu ólöglegar
og láta kennara líta illa út í augum
almennings.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ekkert miðar áfram í kjaradeilu
kennara en fundað hefur verið hjá rík
issáttasemjara síðustu daga. Nú hafa
alls 52 kennarar sagt upp störfum og
er ástandið í Seljaskóla einna alvarleg
ast þar sem alls 19 kennarar hafa sagt
upp störfum. Á miðvikudag, bættust
12 nýjar uppsagnir við frá kennurum
í Norðlingaskóla. Hjördís er ein þeirra.
Hún hefði viljað halda áfram að kenna
er hefur fengið nóg af bágum kjörum.
„Ég hef kennt í átta ár, þar af sjö í
Norðlingaskóla en nú þarf ég að leita
á önnur mið eftir vinnu. Ég þarf meiri
laun og tíma til að sinna fjölskyldu
og börnunum mínum þremur. Ef ég
ætlaði mér að halda áfram í þessari
vinnu, þá þyrfti ég að taka að mér
aukavinnu. Mér finnst þetta sorglegt
og ég er hrygg yfir því að hætta störf
um með frábæru teymi. Ég sé ekki
fyrir mér að ég muni draga uppsögn
mína til baka.“
Á þriðjudag lögðu kennarar um allt
land niður störf kl. 13.30 til að vekja
athygli á kjarabaráttu sinni. Lára V.
Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður og
sérfræðingur í vinnurétti, sagði á RÚV
að aðgerðir kennara væru ólöglegar.
„Að sjálfsögðu verða þessir hópar að
fara eftir landslögum eins og aðrir og
það er í rauninni dálítið fáránlegt að
ekki skuli gripið í taumana hjá þeim
sem aðilum sem fara með það vald,“
sagði Lára.
„Hér við skólann eru unglingar
sendir heim, marga tíma á mánuði,
því það er yfirvinnubann hjá skólan
um. Það er lögbrot af hálfu Reykja
víkurborgar. Orð Láru voru tilraun
til að hræða kennara frá aðgerðum
og til að samþykkja eitthvað sem þeir
vilja ekki. Mín tilfinning er að hún hafi
verið að reyna að hræða mig og láta
mig líta verr út í augum almennings.
Hinsvegar kveikti þetta bara meira í
kennurum,” segir Hjördís.
„Það er allt satt og rétt sem Lára
segir um lögin, en þetta átti ekki að
koma neinum á óvart því það var
góður fyrirvari á þessum aðgerðum,“
segir Ragnar Þór Pétursson, trúnað
armaður í Norðlingaskóla. „Það sem
fólk er í örvæntingu sinni að
reyna að gera er að fyrirbyggja
frekari uppsagnir því skaðinn
sem hlýst af fjöldauppsögnum
verður svo stórkostlegur. Það
er hugmyndin með þessum
aðgerðum. Það vill enginn að
þetta fari þessa hefðbundnu
leið og endi í verkfalli.
Skólinn og mannskapurinn
er orðinn það brothættur
að það yrði óafturkræfur
skaði ef spilað yrði eftir leik
reglum.“ Nánar á bls. 14
Heilbrigðismál Þrír eigendur
Læknisfræðilegrar myndgrein-
ingar hafa fengið rúmlega 108
milljónir í arð á mann á fjórum
árum. 312 milljóna greiðsla frá
ríkinu í fyrra.
Þrír læknar fá samtals tæplega 100
milljóna króna arð út úr einkarekna
heilbrigðisfyrirtækinu Læknisfræði
legri myndgreiningu ehf. í ár. Fyrir
tækið skilaði rúmlega 107 milljóna
króna hagnaði í fyrra og greiddi þá
út tæplega 83 milljóna króna arð til
hluthafa, samkvæmt ársreikningi fyr
irtækisins.
Læknisfræðileg myndgreining er
fyrirtæki sem tekur meðal annars
röntgenmyndir af fólki og kemur
langstærsti hluti tekna fyrirtækisins
frá hinu opinbera í gegnum Sjúkra
tryggingar Íslands. Því er um að ræða
einkarekstur sem fjármagnaður er af
hinu opinbera. Landspítalinn rekur
einnig eigin myndgreiningardeild en
hún annar ekki ein eftirspurn eftir
læknisfræðilegum myndatökum og
því eru starfandi einkarekin fyrirtæki
á þessu sviði.
Með ætlaðri arðgreiðslu þessa
árs hafa hluthafar fyrirtækisins tek
ið út 323 milljóna arð á fjögurra ára
tímabili eða sem nemur tæplega
108 milljónum fyrir hvern hluthafa.
Eigendurnir eru röntgenlæknarnir
Einfríður Árnadóttir, Arnþór Heimir
Guðjónsson og Árni Grímur Sigurðs
son.
Fyrirtækið er eitt af 20
arðbærustu fyrirtækjum
landsins, samkvæmt árleg
um lista Lánstrausts. Í fyrra
var reiknað með því á fjár
lögum að 312 milljónir króna
myndi renna til
þess frá hinu opin
beru. Þetta þýðir
að tæplega 1/3 hluti
af greiðslum ríkis
ins til fyrirtækisins
í fyrra rennur út til
hluthafa þess í formi arðs. Einfríður
Árnadóttur hefur sagt opinberlega að
hún telji að rekstur fyrirtækisins sé
hagkvæmur fyrir íslenska ríkið.
Sú ákvörðun Kristjáns Þórs Júlí
ussonar, fráfarandi heilbrigðisráð
herra, að banna arðgreiðslur úr
einkareknum heilsugæslustöðv
um hefur ekki mælst vel fyrir
hjá mörgum heimilislæknum þar
sem arðgreiðslur út úr öðrum
einkareknum heilbrigð
isfyrirtækjum, eins
og Læknisfræðilegri
myndgreiningu, verða
áfram leyfðar. | ifv
100 milljónir til þriggja lækna
Kristján Þór Júlíusson
Gagnrýnin kveikir
reiði kennara
Hælisleitendur „Við hittum ráðuneytisstjórann,
Ragnhildi Hjaltadóttur, og afhentum rúmlega fimm
þúsund undirskriftir,“ segir Elín Árnadóttir, lögmaður
Saad og Fadilu sem reynt var að flytja úr landi fyrir
skömmu, en myndband af atburðinum vakti hörð
viðbrögð almennings.
Börn þeirra Saad og Fadilu fæddust hér á landi, en dótt
ir þeirra heitir meðal annars íslensku nafni. Börnin eru
aftur á móti ríkisfanglaus.
Elín vildi vekja athygli innanríkisráðherra á málinu,
en hún komst ekki til þess að taka á móti undirskriftun
um vegna veikinda.
Staða fjölskyldunnar, sem er ættuð frá Tógó og Gana,
er óbreytt, en Elín segist engin svör fá hjá ríkislögreglu
stjóra eða Útlendingastofnun um brottflutning fjöl
skyldunnar. Réttaráhrifum verður ekki frestað þó mál
þeirra hér á landi sé óklárað, því er líklega að fjölskyld
an þurfi að fara til Ítalíu, þar sem ekkert bíður þeirra
nema flóttamannabúðir eða hörð vist á götum úti.
„Það er bara ömurlegt að geta ekkert sagt þeim um
stöðuna,“ segir Elín sem segir fjölskylduna bíða í von og
ótta heima hjá sér eftir að verða flutt af landi brott. | vg
Hjördís Albertsdóttir
kennari sagði upp í Norð-
lingaskóla í gær.
5000 vilja stöðva brottvísun
Saad og Fadila hafa verið hér á landi á þriðja ár. Mynd | Hari
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
Opið virka daga 11-18
Laugardaga 11-16 Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
grillbudin.is
Grill, garðhúsgögn, jólaljós,
útiljós, aukahlutir, reykofnar,
yfirbreiðslur, kjöthitamælar,
ljós á grill, reykbox
varahlutir o.fl. o.fl.
Mikill afsláttur
af öllum vörum
föstudag og laugardag