Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 48
Jólatilboðsverð kr. 149.639,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Frábær gjöf fyrir
dömur á öllum aldri
Fáanleg í 12 litum
í fullorðins- og barnastærð.
Nánar um sölustaði á facebook
Helstu útsölustaðir í Reykjavík
Allar sundlaugar, Apótekarinn Mjódd,
Borgarapótek, Lyf og heilsa; JL húsi,
Kringlu og Austurveri, Minja,
Snyrtivörubúðin Glæsibæ, Mistý,
Lyfjaver, Reykjavíkur Apótek,
Árbæjarapótek, Urðarapótek,
Balletbúðin Arena.
Netverslanir Aha.is, Heimkaup,
Krabbameinsfélagið og Netsöfnun.
16 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Vika fjögur:
Innkaupalisti: Jólamaturinn.
Jólatré. Setjið upp tréð og skreytið.
Jólamaturinn. Kaupið inn allt í jólamatinn
ásamt drykkjarföngum.
Þrif. Klárið öll þrif.
Gjafir. Komið út jólagjöfum.
HALDIÐ GLEÐILEG JÓL.
Jólin 2016:
Sunnudagur 26. nóvember
– Fyrsti í aðventu
Sunnudagur 11. desember
– Stekkjastaur kemur til byggða
Föstudagur 23. desember
– Þorláksmessa
Laugardagur 24. desember
– Aðfangadagur
Ýmis verk þarf að vinna fyrir jólin sem bætast við oft
þéttskipulagða daga. Hér fylgir tékklisti sem hægt er að styðjast
við svo ekkert hafi gleymst þegar kemur að sjálfri hátíðinni. Hann
miðar við að fjórar vikur séu til stefnu og telur allt mögulegt til.
Hafið dagatal við höndina og skrifið inn þau verkefni sem þið
ætlið að klára fyrir jólin og hver ætlar að sjá um hvað.
Jólin skipulögð á 4 vikum
Með góðu skipulagi er hægt að losna við allt jólastress síðustu daga fyrir jól.
Vika eitt
Innkaupalisti: Jólakort, frímerki, gjafapappír, merki-
miðar, jólagjafir af netinu, jóladagatal.
Kostnaðaráætlun. Áður en haldið er af stað er gott að
sjá hversu mikla peninga þið hafið á milli handanna,
forgangsraða og athuga hvar er hægt að spara við sig.
Dagatal. Prentið út dagatal og setjið upp þar sem
allir í fjölskyldunni sjá það. Skráið inn alla viðburði
fjölskyldunnar fyrir jólin og raðið öllum jólaverkefn-
um inn á dagana. Til dæmis, hvenær á að baka, skrifa
jólakortin o.s.frv.
Jólakortin. Sendið kort í prentun, eða kaupið jólakort.
Byrjið á að skrifa utan á umslögin og setja á þau frí-
merki, sem sparar tíma þegar kemur að því að skrifa
jólakortin.
Innpökkun. Safnið öllu saman sem þarf til gjafa-
pakkninga á einn stað svo auðvelt sé að pakka inn
gjöfunum jafnóðum.
Gjafalisti. Byrjið á jólagjafalistanum og skrifið inn
hugmyndir að gjöfum og hvað þær mega kosta.
Gjafir. Kaupið inn allar gjafir sem þarf að panta af
netinu svo þær berist í tæka tíð.
Jólaföt. Farið með föt í hreinsun og viðgerð ef á þarf.
Gerið lista yfir það sem þarf að kaupa.
Póstsendingar. Gangið frá öllum pökkum sem þurfa
að fara til útlanda og sendið af stað.
Vika tvö:
Innkaupalisti. Jólaföt, jólagjafir, allt í baksturinn.
Jólakort. Klárið að skrifa kortin og setjið í póst.
Jólaföt. Kaupið jólaföt, skó, sokkabuxur o.fl., ef þarf.
Gjafainnkaup. Kaupið meirihlutann af jólagjöfunum
og pakkið inn jafnóðum.
Jólabakstur. Finnið lausa stund í þessari viku til að
baka smákökur, laufabrauð, sörur o.s.frv.
Jólamatur. Skrifið niður matseðil fyrir jólin ásamt
innkaupalista.
Jólaskraut. Byrjið að skreyta og skoðið hvort það
þurfi nýjar seríur eða jólakúlur á jólatréð.
Vika þrjú:
Innkaupalisti. Jólatré, skraut og seríur, jólagjafir, matur.
Jólaskraut. Klárið að skreyta.
Jólatré. Kaupið lifandi jólatré, ásamt skrauti og serí-
um, ef þarf.
Jólamatur. Búið til rauðkál, eftirrétti o.fl. sem má
geyma til jóla í kæli eða frysti.
Jólagjafir. Klárið að kaupa allar jólagjafirnar og pakk-
ið þeim inn.
Þvottur. Þvo rúmföt og borðdúka.
Þrif. Ef gerð eru góð alþrif í þessari viku, er auðvelt að
halda öllu hreinu fram að jólum.
Jólablað 2016