Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 50
18 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Chai Latte frá grunni
Ljúffengur
kryddaður
drykkur
Chai-latte á sérstaklega vel við á þessum árstíma.
Chai:
2 bollar vatn
2 tepokar af svörtu tei
2 negulnaglar
1 tsk. kanill
½ tsk. engifer
½ tsk. kardimommukrydd
½ tsk. múskat
2 msk. hlynsíróp
Latte:
½ bolli chai (uppskrift að ofan)
¾ bolli g-mjólk eða kókosmjólk
úr dós
1 msk hlynsíróp
Kanill
Chai-te inniheldur sömu krydd
og eru í piparkökum og ætti því
að teljast hinn fullkomni jóla-
drykkur. Chai nýtur hinsvegar
vinsælda allan ársins hring og
á uppruna sinn að rekja til Ind-
lands þar sem orðið chai þýðir
te. Þegar talað er um chai-te er í
raun verið að segja te-te, en það
að sjálfsögðu gert til aðgreina
Aðferð:
• Setjið vatnið og allt kryddið í
pott og þeytið í þar til suðan
kemur upp. Slökkvið á hitan-
um undir pottinum og leyfðu
kryddinu að standa í vatninu í
fimm mínútur.
• Þegar fimm mínútur hafa liðið
þá er kveikt aftur á hitanum
og tepokunum og hlynsíróp-
inu bætt út í. Leyfið suðunni að
koma upp og slökkvið svo undir.
Leyfið blöndunni að standa í
fimm mínútur. Veiðið tepok-
ana upp úr með sigti og leyfið
vatninu að leka af þeim ofan í
pottinn áður en þeim er fleygt.
Taktu ½ bolla af chai teinu til
hliðar en afganginn má geyma í
kæli í allt að tvær vikur.
• Hellið mjólkinni í pott, ásamt
hlynsírópi og örlitlu kanil. Leyf-
ið suðunni að koma rólega upp
og hrærið vel í á meðan. Um leið
og loftbólur fara að myndast og
springa á yfirborðinu, þá er tími
til að taka pottinn af hellunni.
• Notið mjólkurþeytara eða
töfrasprota til að þeyta mjólk-
ina og búa til froðu. Það er
líka hægt að hella mjólkinni í
krukku með loki og hrista vel
þar til froða myndast.
• Hellið chai-tei í hálfan bollann
og hellið mjólkinni og mjólk-
urfroðunni varlega yfir. Stráið
örlitlu af kanil yfir í lokin.
það frá öðrum te-drykkjum.
Hvort sem fólk neytir chai-latte
alla daga eða bara til hátíðar-
brigða þá er þetta tilvalinn
drykkur til að ylja sér á yfir
kertaljósi og draga að sér krydd-
aðan jólailm.
Margir eiga krydd í skápun-
um sem notuð eru í piparköku-
bakstur og eru tilvalin í Chai og
því er ekki úr vegi að að gæða
sér á chai á meðan dundað er
við baksturinn. Aðferðin er ein-
föld og fljótleg, þar sem hráefn-
in eru einfaldlega soðin saman
í potti. Chai má geyma í kæli í
loftþéttum umbúðum í allt að
tvær vikur.
Jólablað 2016
Búðu til þitt eigið jólatrésskraut
Einfalt og fallegt skraut sem fjölskyldan getur búið til saman.
Það er alltaf gaman að föndra sitt
eigið skraut á jólatréð og það þarf
alls ekki að vera flókið eða krefjast
mikils undirbúnings. Það er tilval-
ið fyrir fjölskylduna að eiga góða
stund saman á aðventunni, kveikja
á kertum, setja jólalög á fóninn og
föndra. Það er miklu skemmtilegra
að skreyta tréð með persónulegu
skrauti, sérstaklega sem börnin
hafa búið til sjálf. Hérna eru þrjár
skemmtilegar hugmyndir að jóla-
trésskrauti sem eru frekar auðveld-
ar í framkvæmd.
Jólakönglar
Könglar hafa verið notaðir í
jólaskreytingar í gegnum árin og
standa alltaf fyrir sínu. Það verður varla
einfaldara að útbúa sitt eigið skraut,
enda ættu allir að geta málað köngla.
Þeir þurfa ekki endilega að vera hvítir
og hægt er að nota þann lit sem passar
best við aðrar skreytingar
Þvottaklemmusnjókorn/stjörnur
Ótrúlega sniðugt skraut og það eina sem
þarf eru þvottaklemmur úr tré og lím.
Svo getur reyndar verið skemmtilegt að
mála klemmurnar hvítar, rauðar, gylltar
eða silfurlitaðar og jafnvel setja á þær
glimmer til að poppa þær upp.
Snjókarlar úr töppum
Það sem þarf í þetta skraut eru einfald-
lega tappar, til dæmis af öllum maltflösk-
unum sem drukknar eru með appelsíninu
á aðventunni, hvít málning, litir, límbyssa
og borðar í mismunandi lit. Þetta er skraut
sem allir í fjölskyldunni ættu að geta út-
búið og það er um að gera að gefa hug-
myndafluginu lausan tauminn þegar kem-
ur að því að mála og teikna á tappana.
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U
F A T L A Ð R A B A R N A
O G U N G M E N N A
S T Y R K TA R F É L A G L A M A Ð R A O G F AT L A Ð R A
Sölutímabil 2. – 16. desember
Casa – Kringlunni og Skeifunni
Epal – Kringlunni, Skeifunni og Hörpu • Hafnarborg - Hafnarfirði
Húsgagnahöllin - Reykjavík og Akureyri • Hverfisgallerí - Hverfisgötu 4
Kokka - Laugavegi • Kraum - www.kraum.is
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu og Kjarvalsstöðum
Litla jólabúðin - Laugavegi • Líf og list - Smáralind
Módern - Faxafeni 10 • Snúran - Síðumúla
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu • Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki • Norska húsið - Stykkishólmi
Póley - Vestmannaeyjum • Valrós - Akureyri
Netverslun – www.jolaoroi.is
Pottaskefill