Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Í lok síðasta árs, ákvað Gor-an að flýja úr kúrdíska hern-um. Hann kemur frá borginni Sulaymaniyah í íraska hluta
Kúrdistan. Hann hafði starfað við
gagnasöfnun um einstaklinga undir
PUK, sem er stærsta stjórnmálaaflið
í þessum hluta Kúrdistan. Borgin
Mosul sem hefur verið hersetin og
mikið í fréttum er í þriggja tíma
akstur fjarlægð frá Sulaymaniyah.
Vinna Gorans fólst í því að færa
upplýsingar um fólk inn á tölvu-
tækt form. Hann óskaði eftir því að
hætta í starfinu hjá PUK en hann
fékk ekki að fara og samið var við
hann að vinna sem túlkur fyrir her-
inn um einhvern óákveðinn tíma.
Goran talar fimm tungumál.
Byssufóður á vígvellinum
Í staðinn fyrir að vinna sem túlkur
þá var Goran sendur beint út á víg-
völlinn að berjast við ISIS. En Kúrd-
ar berjast til dæmis um borgina
Mosul sem ISIS hreyfingin hefur
náð undir sig. Goran hefur enga
herþjálfun og sá vini sína í hernum
fellda hvern af öðrum. Þeir voru
eingöngu byssufóður og tímaspurs-
mál hvenær hann myndi deyja.
Hann ákvað að flýja eins langt frá
þessum ósköpum og hægt væri og
Ísland varð hans takmark. Bara
nógu fjarri PUK, kúrdíska hernum
og vígvellinum. Í byrjun árs skolaði
honum á eynna Lesbos og var þar
staddur við hlið Þórunnar Ólafs-
dóttur hjálparstarfsmanns og bauð
fram aðstoð sína, hann gæti túlkað.
Þegar Þórunn spurði hann hvert för
hans væri heitið svaraði hann henni
að óvörum að hann stefndi á land
sem héti Ísland.
Ekkert val
Goran ferðaðist í gegnum Þýska-
land og Svíþjóð á leið sinni til
landsins fyrirheitna. Í báðum lönd-
um voru tekin af honum fingraför
og þau skjalfest eins og merkingar
á fénaði og það sem verra var að
hann hafði ekki hugmynd um að
hann missti um leið við þetta valið
um að fá hæli á Íslandi. Eina sem
hann hugsaði um var að komast til
Íslands. Eftir sjö mánaða dvöl á Ís-
landi var honum tilkynnt að hon-
um yrði flogið aftur til Þýskalands,
hann ætti heima þar sem fingrafar-
ið hans væri niðurkomið.
Djúpt inn í skógi eru flóttamannabúðir
Það var ekki rauði dregillinn sem beið Gorans
Renato þegar hann lenti í Hamborg. Fyrst í stað
var hann hnepptur í fangelsi fyrir stórglæpa
menn í Hamborg og beðinn afsökunar á þeim
mistökum. En í framhaldinu var hann færður
í alræmdar flóttamannabúðir langt út í skógi
þar sem hinum landlausu og fátæku er haldið
frá og úr augsýn hinna efnameiri.
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Goran Renato ræður engu um eigin örlög.
Á Íslandi vill hann búa þar sem hann
er umvafinn vinum sínum og öryggi.
En Ísland sendi hann til Þýskalands í
alræmdar flóttamannabúðirnar, Nostorf.
Mynd | Alda Lóa
Í staðinn fyrir að vinna
sem túlkur þá var Goran
sendur beint út á vígvöll-
inn að berjast við ISIS. En
Kúrdar berjast til dæmis
um borgina Mosul sem
ISIS hreyfingin hefur náð
undir sig.
Gámar þar sem flóttafólki er komið fyrir til bráðabirgða í Nostorf. Gámunum er lýst
sem heilsuspillandi, annaðhvort veikist fólk af kulda eða óhreinindum.
Mynd | Haukur Már Helgason í gær.
Flugið út
„Tveir lögreglumenn fylgdu mér
í flugvélinni til Hamborgar,“ seg-
ir Goran, „þeir voru óeinkennis-
klæddir en höfðu hengt á sig merkti
lögreglunnar. Þannig að öll flug-
vélin hugsaði með sér að það væri
verið að fylgja stórglæpamanni úr
landi. Ég hugleiddi að biðja þá að
taka niður lögreglumerkið en ég
kom mér ekki til þess að biðja þá.
Ég gat ekkert talað, ég horfði bara
út um gluggann á landið sem ég var
að yfirgefa, þar sem vinir mínir eru
og allt góða fólkið sem ég treysti,
og mér leið skelfilega illa og grét.“
Upplýsingar sem Goran fékk
frá Útlendingaeftirlitinu á Íslandi
voru á þá leið að þýsk yfirvöld væru
með allar upplýsingar um hann og
að hann fengi hæli í Þýskalandi.
„Þessu var öllu lýst svo eðlilega,
allt myndi ganga vel fyrir sig. Þjóð-
verjar tækju á móti mér og ég fengi
landvistarleyfi og ef ég hefði áhuga
þá gæti ég sótt aftur um hæli á Ís-
landi í framhaldinu.“ Bara ekki vera
með mótþróa eða draga athygli að
brottför þinni, það borgar sig ekki
ef þú vilt koma aftur. Ég var farinn
að sjá fyrir mér rauða dregilinn
þegar ég myndi stíga á þýska jörð,“
tjáði Goran Fréttatímanum í símtali
um síðustu helgi.
Stungið inn
Í staðinn fyrir rauða dregilinn var
Goran hnepptur í fangelsi. Föt og
eigur hans voru teknar af honum.
„Það var hreint á rúminu,“ segir
Goran „en þetta fangelsi var ramm-
girt og ætlað forhertum glæpa-
mönnum. Ég spurði af hverju
BORÐAPANTANIR: 552-1630
HVERFISGÖTU 56, 101 RVK
AUSTURINDIA.IS
DIWALI
FIMM RÉTTA HÁTÍÐARMATSEÐILL