Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 71
| 39FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016 Jólablað 2016
Jóhann Jónsson, eigandi OstabúðarinnarHrefnusteik, einn eftirlætis réttur Jóa. Hægelduð gæsalæri með villibráðarbollum.
Hin eina sanna jólageit
er í Ostabúðinni
Veitingastaður Ostabúðarinnar við Skólavörðustíg opnaði í sumar eftir breytingar
og hafa vinsældirnar aldrei verið meiri – og voru þó miklar fyrir.
Unnið í samstarfi við Ostabúðina
„Við vorum varla búin að opna
þegar allt varð stútfullt, þetta
hefur gengið ótrúlega vel. Í sum-
ar komust Íslendingarnir bara
því miður ekki að,“ segir Jóhann
Jónsson, eigandi Veitingastaður
Ostabúðarinnar við Skólavörðustíg,
er nú í óðaönn að setja kvöldseð-
ilinn í jólabúning – þar ber hæst
jólageitin eina sanna. „Hún Jó-
hanna á Háafelli í Hvítársíðu bað
okkur að vinna úr kjötinu og nú
höfum við fundið rétta bragðið.
Hún slátrar við 5-6 mánaða aldur,
þá er þetta „ullarbragð“, sem sumir
finna, ekki komið í kjötið. Það er
ekki sama hvernig þetta er gert,“
segir Jói. Hægelduð gæsalæri með
villibráðarbollum er einn vinsæl-
asti réttur Ostabúðarinnar. „Sá
réttur er algerlega að slá í gegn hjá
okkur og hann er auðvitað mjög
jólalegur,“ segir Jói. Einn eftirlætis-
réttur Jóa er á forréttaseðlinum,
hrefnusteikin sem er að hans sögn
alveg sjúklega góð og vinsældirn-
ar eftir því. Hann segir fiskréttina
haldast á seðlinum óbreyttir um
hátíðirnar þó að sumir kjötrétt-
anna muni uppfærast í jólabúning.
„Fólk er að borða kjöt út í eitt öll
jólin og það er eftirspurn eftir létt-
ari réttum eins og fiskréttum. Við
viljum því halda því inni.“
Gæsin orðin fastur liður
hjá mörgum
Ostabúðin hefur einnig að geyma
ótrúlega gott úrval af allskon-
ar gómsætri gjafavöru og það er
fastur liður í undirbúningi margra
að koma við í Ostabúðinni og
kaupa góðgæti til þess að gæða sér
á á aðventunni eða gefa í gjafir.
Upp úr miðjum desember breyt-
ist kjallarinn í körfugerð og allt fer
á fullt við að pakka gúmmelaði í
fallegar gjafakörfur. „Það er svo
mikil stemning í því og mikill hasar
og læti, kúnnunum finnst gaman
að fylgjast með,“ segir Jói. „Það er
heldur ekkert hvar sem er sem þú
gengur inn og færð að smakka áður
en þú kaupir.“ Vinsælustu vörurn-
ar eru heitreykta gæsin og aðrir
forréttir sem Ostabúðin sérhæfir
sig í. „Gæsin okkar er orðin fastur
liður hjá ansi mörgum um jólin.
Fólk pantar hana með góðum fyr-
irvara en við erum auðvitað með
takmarkað magn. Við erum þó
farin að geta annað eftirspurninni
ansi vel þó að það sé ansi lítið eftir
þegar jólin eru búin. „Framleiðslu-
getan er orðin ansi sterk hjá okkur
þannig að ef við þurfum að bæta
í er það vanalega lítið mál,“ segir
Jói og bætir við að úrvalið auk-
ist alltaf frá ári til árs. Ostabúðin
hóf nýverið innflutning á merkinu
Noble sem framleiðir ákaflega góm-
sætt belgískt súkkulaði og nýlega
hóf fyrirtækið einnig framleiðslu á
ostakexi sem þykir með því betra
á markaðnum í dag. „Það er líka
verið að selja það í Fjarðarkaup-
um og Melabúðinni og það hefur
komið rosalega vel út, það eru ekki
allir sem komast endilega hingað til
okkar svo það er gott að geta boðið
upp á eitthvað af úrvalinu annars
staðar.“
Opið á gamlárs- og nýársdag
Nú nýbreytni verður í ár að hafa
opið á gamlárskvöld og nýárskvöld
til þess að komst til móts við þann
mikla fjölda ferðamanna sem kýs
að eyða áramótum hér á landi.
Ákvörðun var þó tekin að vel
ígrunduðu máli. „Þetta gerum við
að sjálfsögðu í samráði við starfs-
fólkið okkar, það er enginn píndur
í vinnu á svona hátíðum. En það
gekk vel að manna svo við héldum
þessu til streitu. Það verður keyrsla
frá 18-21 þannig að starfsfólkið fer
eftir það bara heim í sparigallann
að sprengja árið burt!“