Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 24.11.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016 ég væri þarna og fékk svarið að ég væri hættulegur glæpamaður. Eftir nokkra daga þarna var það ung kona, sálfræðingur sem fékk mig fluttan í eðlilegt fangelsi. Hún reyndist mér mjög vel, hún gaf mér bækur til þess að lesa, „Me talk pretty one day“ og „The night- listener“, það bjargaði mér alveg. Hún útvegaði mér líka naglaklipp- ur til þess að gæti klippt neglurn- ar og setti sig í hættu mín vegna. Lögfræðingurinn sem átti að annast mig var í fríi og ég beið í þrjár vikur þangað til að hann kæmi til starfa,“ segir Goran. Eftir 25 daga dvöl í þýsku fangelsi var honum sleppt lausum af því að það væri ekkert í fortíð hans sem gæti ógnað þýsku þjóðinni. Það hefur áður komið fram í Fréttatímanum að það var lög- reglan sem fylgdi Goran til Ham- borgar sem lét það hafa eftir sér að Goran væri tengdur hryðjuverka- samtökum, upplýsingar sem eiga ekki við nein rök að styðjast. Nostorf Flóttamannabúðirnar í Nostorf eru einar af tugum annarra í Þýska- landi sem notaðar eru sem fyrsti áfangastaður fyrir flóttamenn sem sækja um hæli í landinu. Þær liggja í miðjum skógi í fyrrum hermanna- búðum rétt fyrir innan gömlu austur-þýsku landamærin. Það er klukkustundar ganga í næstu mat- vörubúð. Þjóðverjar þykja almennt ekki standa sig vel í þessum svoköll- uðu móttöku-flóttamannabúðum. Ef flóttamaður fær hinsvegar hæli í Þýskalandi þá er móttökukerfi þeirra skilvirkara en í öðrum lönd- um. Lýsing Gorans á staðanum er á þennan veg: „Ég sef í herbergi með þremur öðrum, við megum ekki loka dyrunum, það er engin skáp- ur eða neinn staður þar sem við get- um geymt eigur okkar. Öllu stolið. Það er matur þrisvar á dag í mötu- neyti, mörg hundruð manns safnast saman í röð til að ná í skammtinn sinn af mjög ólystugum mat. Ef við viljum vatnsglas þá þurfum við að útvega okkur glas sjálf. Enginn fær mat fyrir utan settan matmálstíma. Allt er skítugt, rúmfötin, salern- in. Þetta er ekki fyrir fólk þetta er svínastía.“ Hermenn sem tala bara þýsku Móttöku-f lóttamannabúðirnar í Nostorf eru hugsaðar sem skamm- tímalausn. Þar ætti fólk að dvelja í hæsta lagi í þrjá mánuði. En reyndin er að margir dvelja í Nostorf langt á annað ár og fæstir fá hæli í Þýska- „Selfie“ sem Goran tók í febrúar á þessu ári í Gautaborg. Þarna er Goran á leið sinni til Íslands, en í Gautaborg svaf hann undir berum himni á bekk í vetrarkuldanum. Flóttamannabúðirnar í Nostorf eru ekki í alfaraleið en þegar nálgast er búð- irnar er algeng sjón að sjá fólk draga á eftir sér töskur og bera farangur á leið í búðirnar Mynd | Haukur Már Helgason í gær. Kvöldmatur, mánudagskvöld vikunnar í flótta- mannabúðunum í Nostorf/Horst. Mynd | Goran. Hádegismatur, síðasta mánudag í Nostorf/Horst. Mynd | Goran landi eftir vistina í búðunum. Búð- irnar vöktu fyrst eftirtektar árið 2010 þegar nokkrir flóttamenn fóru í hungurverkfall og mótmæltu að- búnaði í búðunum. Það fer engum sögum af því að hungurverkfallið hafi breytt neinu. Í kringum búð- irnar er há girðing sem aðskilur hina fátæku og landlausu frá hin- um öruggu og efnameiri sem búa utan girðingarinnar. Hjálparsamtök flóttafólks og aktívistar mótmæla reglulega fyrir utan girðinguna. Í þýskum vefmiðlum eru ekki fal- legar lýsingar á búðunum og styðja þær framburð Gorans. Fyrir utan lélegan aðbúnað þá er það líklega viðmót starfsfólksins sem er verst. Eitt er að hermenn í fullum her- mannaklæðum vakta búðirnar sem getur varla talist tillitssamt við fólk sem er meira og minna að koma frá stríðshrjáðum svæðum. Hitt er að starfsfólk búðanna beygir sig ekki undir að brúka annað en þýsku við flóttafólkið sem öllum er kunnugt að talar hvorki þýsku né skilur hana. „Konan í móttökunni talaði bara þýsku við mig, ég gerði henni skiljanlegt að ég talaði ekki tungumálið en hún hélt áfram að tala á þýsku og benti á skilti upp á vegg þar sem einhverjar húsregl- ur stóðu skrifaðar á þýsku,“ segir Goran og telur viðmótið einkenn- ast af rasisma. Það er ekki talað við fólk heldur yfir hausamótum þess, ekkert samtal, skipanir og öskur og mannfyrirlitningin er lýsingin á samskiptunum á vefmiðlum. Þannig er fólk niðurlægt og skilið eftir hjálparvana. Annað sem hef- ur þótt gagnrýnisvert við búðirn- ar er einangrun og fjarlægðin bæði við læknishjálp og alla réttargæslu sem þarf að sækja langt fyrir utan búðirnar. Á þessum ömurlega stað í óvissu um óákveðinn tíma bíður Gor- an eftir afgreiðslu á hælisumsókn sinni. Verður mál Gorans afgreitt eftir mánuð eða ár? Verður næsti áfangastaður hans innan Þýska- lands eða verður hann sendur aft- ur til Kúrdistan þar sem ógnin býð- ur hans? Goran sjálfur hefur ekkert val um eigin örlög. Hann þarf bara að bíða. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is H ér e r a ðe in s sý nd ur h lu ti af b ílu m í bo ði . F ul lt ve rð e r v er ð hv er s bí ls m eð a uk ab ún að i. Au ka bú na ðu r á m yn du m g æ ti ve rið a nn ar e n í a ug lý st um v er ðd æ m um . * Fi m m á ra á by rg ð gi ld ir ek ki m eð a tv in nu bí lu m . KJARAKAUP 2.750.000 kr. VW Caddy Maxi 1.4 TGI / MetanBensín / Beinskiptur* Fullt verð: 3.210.000 kr. 460.000 kr. Afsláttur KJARAKAUP 3.190.000 kr. VW Cross Polo 1.2 TSI / Bensín / Sjálfskiptur Fullt verð: 3.580.000 kr. 390.000 kr. Afsláttur KJARAKAUP 3.190.000 kr. Skoda Octavia G-Tec Ambition 1.4 TGI / MetanBensín / Beinsk. Fullt verð: 3.510.000 kr. 320.000 kr. Afsláttur KJARAKAUP 8.595.000 kr. Audi A4 B9 Avant 4x4 Sport 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Fullt verð: 9.550.000 kr. 955.000 kr. Afsláttur KJARAKAUP 4.950.000 kr. MMC Outlander Intense / 4x4 / Dísil / Beinskiptur Fullt verð: 5.590.000 kr. 640.000 kr. Afsláttur Afsláttur KJARAKAUP 2.890.000 kr. VW Golf Trendline 1.4 TGI / MetanBensín / Beinskiptur Fullt verð: 3.190.000 kr. 300.000 kr. HEKLA býður einstök kjör á takmörkuðu magni nýrra sýningarbíla, reynsluakstursbíla og valdra bíla frá Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Audi – allir með mm ára ábyrgð. Nýttu tækifærið og fáðu þér nýjan gæðabíl fyrir jólin! Nú er tækifærið að fá sér nýjan bíl!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.