Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 24.11.2016, Side 12

Fréttatíminn - 24.11.2016, Side 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Konur 20-29 ára Höfuðborgarsvæðið Fullorðin í foreldrahúsum Karlar 20-29 ára Höfuðborgarsvæðið 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 Fjöldi samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% Leigjendur á almennum markaði 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Hlutfall í hverjumaldurshópi samkvæmt Hagstofu Íslands Breyting frá 2004-06 87% 170% 31% 97% 122% 103% 49% 0-15 ára 16-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára >64 ára Ungt fólk hefur dregist aftur úr öðrum aldurshópum í efna- hagslegu tilliti. Það naut ekki eins mikils efnahagslegs bata fyrir Hrun og þrengri tækifæri á atvinnumarkaði bitnuðu harðar á ungum en öðrum aldurshópum. Ein afleiðing þess er að ungt fólk í dag býr lengur í foreldrahúsum en áður hefur þekkst. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Hagstofan hefur tekið saman upp- lýsingar um fjölda ungs fólks sem býr í foreldrahúsum, en Fréttatím- inn hefur á undanförnum mánuðum fjallað ítarlega um þessa samfélags- breytingu og hvaða áhrif hún hefur á unga fólkið, fjölskylduna og foreld- rana. Í tölum Hagstofunnar kemur fram að ungu fólki í þessum aðstæð- um hefur fjölgað nokkuð eftir Hrun og einkum þá ungum konum á höf- uðborgarsvæðinu. Þótt ungu kon- urnar í foreldrahúsum séu enn færri en ungkarlarnir þá sækja þær á. Hrun og ferðamenn Þegar litið er yfir þróun síðustu ára sést að vandi ungs fólks tengist ekki aðeins tekjumissi vegna minni at- vinnu eða lægri launa. Vandinn verður vissulega til við Hrunið. Þá má sjá að ungu fólki í foreldrahús- um fjölgar. En breytingin er í raun meiri eftir 2013. Það má ekki skýra með aukinni skólasókn ungs fólks eða minni atvinnuþátttöku heldur tengist augljóslega bólunni á íbúða- markaðnum á höfuðborgarsvæðinu. Mest af leiguhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu hefur sögulega ver- ið í Reykjavík vestan Kringlumýrar- brautar. Þetta er svæðið þar sem mest aukning hefur verið á gisti- heimilum og íbúðum sem leigð hafa verið út í gegnum airbnb og aðrar slíkar síður á netinu. Fjölgun ferða- manna hófst um 2011, sprakk út 2013 og hefur síðan verið jöfn og mikil. Áhrif ferðamanna á leigumarkaðinn hafa verið umtalsverð. Leigjendur, sem að stórum hluta eru ungt fólk, hafa lent í samkeppni við ferðamenn um húsnæði í þeim hverfum sem eft- irsóttust eru af báðum hópum. Af eigendamarkaði Þegar horft er til undangenginna ára má því segja að ungt fólk hafi hrak- ist af eigendamarkaði vegna minni möguleika til að kaupa sér húsnæði. Fyrstu árin eftir Hrun skruppu tekj- ur unga fólksins saman meira en annarra. Það hafði minnsta starfs- reynslu og missti vinnuna fremur en aðrir. Það unga fólk sem kom úr skólum átti erfiðara að fá sér vinnu. Aðgerðir stjórnvalda til að stemma stigum við eigna- og lána- bólu héldu ungu fólki líka frá íbúðar- kaupum. Það átti ekki sparifé til að reiða fram upp í hærri kröfur um eigið fé í íbúðarkaupum. Á seinni hluta tímabilsins fer síðan hækkun fasteignaverðs að gæta. Þrátt fyrir auknar tekjur átti unga fólkið ekki auðveldara með að reiða fram út- borgun vegna þess að hún hækkaði í takt við hækkun húsnæðisverðs. Minni bætur Ríkisstjórnin sem tók við 2013 breytti skattkerfinu þannig að skatt- byrði á lægstu tekjur hækkaði vegna Mesta breyting undanfarin ár á högum ungs fólks hefur verið meðal kvenna á höfuðborgar- svæðinu. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar hefur sama þróun átt sér stað út á landi en í minna mæli. Ungum konum, á aldrinum 20 til 29 ára sem búa í foreldrahúsum, hefur fjölgað um 2600 frá meðaltali áranna 2004-06 eða um 75 prósent. Á sama tíma hefur ungkörlum í foreldrahúsum fjölgað um 1875 eða 35 prósent. Eftir sem áður eru karlarnir fleiri; um 7770 á móti 6100 konum. Við upphaf tímans voru ungkarlar í foreldrahúsum á höfuðborgarsvæðinu um 41 prósent fleiri en konurnar en í fyrra voru þeir aðeins 17 prósent fleiri. Ungu konurnar eru að verða líkari körlunum. Munur kynjanna er enn meiri úti á landi. Þar voru tvöfalt fleiri ungkarlar í foreldrahúsum í upphafi tímabilsins en 67 prósent við lok þess. Ekki var mikill munur á körlum á höfuð- borgarsvæðinu og úti á landi. Álíka hlutfall þeirra bjó í foreldrahúsum eða um 45 prósent í fyrra. Hins vegar bjuggu 29 prósent ungra kvenna í foreldrahúsum á landsbyggðinni í fyrra en 39 prósent ungra kvenna á höfuðborgarsvæðinu. Æ fleiri fullorðnir festast í foreldrahúsum Hér sjást breytingar á hlutfallslegum fjölda fólks sem býr í húsnæði á almennum leigumarkaði eftir aldurshópum. Það sem er sláandi er að fjöldi barna á almennum leigumarkaði hefur vaxið úr 5 prósent í rúm 14 prósent á skömmum tíma. Ástæðan er sú að foreldrakynslóðin, fólk á aldrinum 25 til 44 ára, hefur leitað út á almennan leigumark- að vegna þess að hún hefur ekki efni á að kaupa sér fasteign og hefur ekki aðgengi að leiguhúsnæði sem rekið er á félagslegum grunni. Fjöldi fólks á almennum leigumarkaði á aldrinum 25-34 hefur nánast tvöfaldast frá árunum 2004-06 og fjöldi fólks á aldrinum 35 til 44 ára tvöfaldast og vel rúmlega það. Reynsla Íslendinga af almennum leigumark- aði er almennt slæm, þótt undantekningar séu vissulega til. Fjöldinn lýsir óöryggi, tíðum flutningum og örum hækkunum á leiguverði. Það er því alvarlegt mál þegar börnum sem alast upp við þær aðstæður fjölgar ört. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Sýningareintak á staðnum. Úrval af lokuðum farangurskerrum frá Ifor Williams VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.