Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
Fanney Snorradóttir og Ingunn B.
Arnarsdóttir vilja frekar segja starfi
sínu lausu en að fara í verkfall.
„Ég er ekki spennt fyrir
verkfalli og ætla frekar
að segja upp.“
Kjarabarátta kennara
Kennarastarfið
er dýrt hobbí
Tólf kennarar við Norðlingaskóla sögðu
starfi sínu lausu í gær, miðvikudag. Fanney
Snorradóttir og Ingunn B. Arnarsdóttir,
kennarar við Norðlingaskóla, vilja frekar
segja upp en fara í verkfall. Þær segja starfið
allt annað en það hafi verið fyrir 10 árum.
Foreldrafélag skólans styður kennarana og
nemendur sýna baráttunni skilning. Ragnar
Þór Pétursson, kennari og trúnaðarmaður
kennara við skólann, segir kennara vera
súpa seyðið af afleiðingum hrunsins.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Foreldrafélag Norðlingaskóla
styður kennara 100%
„Ég styð kennara algjörlega 100%.
Þeir eiga bara að fá hærri laun fyr-
ir alla þessa vinnu,“ segir Katrín
Garðarsdóttir, foreldri tveggja
barna í Norðlingaskóla. Katrín er
formaður foreldrafélags Norðlinga-
skóla og ein þeirra sem skrifuðu
undir stuðningsbréf foreldrafélags
skólans við kennara. Hún segir for-
eldrafélagið hafa fengið ótrúlega
jákvæð viðbrögð við stuðnings-
bréfinu, bæði frá foreldrafélögum
í öðrum skólum og frá þakklátum
kennurum.
„Við höfum mjög miklar áhyggj-
ur af þessu ástandi. Það virðist vera
komið að algjörum þolmörkum hjá
kennurum og við foreldrarnir verð-
um að styðja við bakið á þeim því
annars á þetta álag eftir að bitna á
börnunum okkar. Og ef til verkfalls
kemur þá á það eftir að bitna á öll-
um, sérstaklega börnum og foreldr-
um. Það eru alls ekki allir í stakk
búnir til að taka sér frí í vinnu til að
vera heima. Það er vitað að þó að
börn eru send heim með áætlun
og heimavinnu þá líta þau á svona
verkföll sem frí en það kemur bara
í bakið á þeim þegar líður á skóla-
árið. Þetta er gríðarlega mikið álag
á krakkana sem eru að stefna á að
komast í framhaldsskóla næsta vet-
ur. Við vonum innilega að önnur
foreldrafélög taki við sér og styðji
opinberlega við bakið á kennurum.
Þetta, ásamt leikskólakennurum og
heilbrigðiststarfsfólki, eru grunn-
stoðirnar í samfélaginu. Þjóðfélagið
getur ekki verið án þessa fólks, það
er nokkuð ljóst.“
Dóttir Katrínar, Andrea Rut Hall-
dórsdóttir, er nemandi í 10. bekk og
segist hún hafa miklar áhyggjur af
ástandinu. Hún stefni á að komast
í Versló næsta haust og vilji því alls
ekki missa úr skólanum.
En hvað finnst henni um að
kennarar skuli ganga út úr skólan-
um til að vekja athygli á kjarabar-
áttu sinni?
Mér finnst það í fínu lagi því
kennarar ættu að fá hærri laun fyr-
ir vinnuna sína.
Verkfall mun bitna á öllum
Katrin Garðarsdóttir, formaður foreldrafélags Norðlingaskóla, með börnum sínum tveimur, Andreu Rut Halldórs-
dóttur og Jóhanni Frank Halldórssyni. Andrea kvíðir mögulegu verkfalli því hún stefnir á að komast í menntaskóla
næsta haust og vill alls ekki missa úr námi.
Kennarar um allt land lögðu niður störf kl. 13.30 á þriðjudag til að vekja athygli á kjarabaráttu sinni. Hér sjást kennarar í Norð-
lingaskóla ganga út. Kennarar felldu tvo síðustu kjarasamninga og hafa því verið samningslausir frá því í sumar. Fundað hefur
verið stíft hjá ríkissáttasemjara án árangurs en samninganefnd kennara segir málið verða að vera leyst í byrjun desember.
Myndir | Hari
Fanney Snorradóttir og Ingunn
B. Arnarsdóttir voru meðal
þeirra kennara sem gengu út
úr Norðlingaskóla kl 13.30 á
þriðjudag. Þær hafa báðar yfir 10
ára starfsreynslu og segjast vera
löngu vera komnar með nóg.
„Við erum að vekja athygli á mál-
staðnum því við viljum eitthvað
verði gert í okkar málum. Þetta er
skemmtilegasta vinna í heimi en
þetta er orðið rosalega dýrt hobbí,“
segir Ingunn B. Arnardóttir en hún
hefur starfað sem kennari í rúm
10 ár.
„Við lifum ekki af þessum laun-
um,“ segir Fanney Snorradóttir.
Fanney hefur starfað sem kennari
í 15 ár en segist þurfa að leita sér að
aukavinnu til að ná endum saman.
„Þess vegna er ég með uppsagnar-
bréfið í vasanum. Að kenna er það
skemmtilegasta sem ég geri en þetta
er erfitt starf og er alltaf að verða
erfiðara. Maður reynir að vera eins
mikill fagmaður og maður getur en
það er ekki endalaust hægt að gefa
og gefa. Maður verður að fá eitthvað
til baka og nú er mælirinn fullur. Ég
er ekki spennt fyrir verkfalli og ætla
frekar að segja upp.“
Ingunn er algjörlega sammála
starfssystur sinni þó hún sé ekki
enn komin með uppsagnarbréf-
ið í vasann. „Verkfall er ekki inni
í myndinni hjá mér heldur og ég
er farin að huga að uppsögn, sem
mér finnst alveg grátlegt því mér
finnst svo gaman að kenna. En
starfið hefur breyst alveg rosalega
mikið frá því að ég byrjaði. Þetta
er gríðarlegt álag og utanumhald.
Þetta snýst orðið um svo miklu,
miklu meira en að bara kenna,“
segir Ingunn og Fanney tekur und-
ir.
„Það er allt þetta utanumhald
en svo er líka mikið af veikum
einstaklingum í skólakerfinu,“ seg-
ir Fanney. „Ég persónulega er til í
að vinna öll þau störf sem kennar-
ar þurfa að vinna því ég get það en
við erum alls ekki að fá það sem við
viljum fyrir það.“
Með uppsagnarbréfið í vasanum
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
www.gabor.is - facebook.com/gaborserverslun
Gæði &
glæsileiki
& margt fleira
skemmtilegt...
Snædís Rán
Hjartardóttir
í viðtali á
föstudaginn
alla föstudaga