Fréttatíminn - 24.11.2016, Síða 20
Á MORGUN
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3310
frettatiminn.is
20 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016
lega þegar hún fær veður af því
að illmennið Kilgrave sé komið til
borgarinnar. Ofurkraftar Kilgrave
eru hreinlega hvað hann er sannfær-
andi, hann getur stjórnað hverjum
sem er með sinni dáleiðandi rödd.
Hann er í raun freki kallinn hold-
gerður – er vanur því að fá allt sem
hann vill, allt frá barnæsku – og fljót-
lega kemur í ljós að hann hafði feng-
ið Jessicu líka á sínum tíma, þvert á
vilja hennar. Við förum að átta okk-
ur á því hvers vegna Jessica er jafn
drykkfelld og andfélagslynd og raun
ber vitni – þessir þættir fjalla í raun
öðru fremur um áfallastreiturösk-
un fórnarlambs nauðgunar, sem og
annarra fórnarlamba Kilgrave.
Þessir ofurkraftar Kilgraves reyn-
ast þannig metefóra fyrir misnotkun
– þar sem hann rænir fólk bókstaf-
lega vilja þess, yfir bæði eigin gjörð-
um og eigin líkama. Hjálparleysið
gegn valdinu er þannig lykilþema
þáttana um Jessicu, rétt eins og í
Daredevil, þótt í annarri mynd sé.
Skotheldur blökkumaður
Ofurhetjur Marvel urðu flestar til
á sjöunda áratugnum og hingað til
hafa bara gagnkynhneigðar hvít-
ar karlkynshetjur fengið sína eigin
bíómynd – þótt það muni fljótlega
breytast, bíómyndir um afrísku hetj-
una Svarta pardusinn og kvenhetj-
una Captain Marvel eru í bígerð.
En sjónvarps-Marvel tóku þó frum-
kvæðið – fyrst með Jessicu Jones
og þar kynnumst við einnig einum
elskhuga hennar, hinum þeldökka
Luke Cage – manninum sem kúlurn-
ar hrynja af. Cage er ósæranlegur og
nautsterkur – en í hálfgerðum felum.
Skýringarnar á því koma í ljós
í hans eigin þáttaröð sem frum-
sýnd var nú í haust á Netflix. Eft-
ir að hafa dvalið með Daredevil og
Jessicu í Hell‘s Kitchen á neðri hluta
Manhattan-eyju erum við kominn
upp í Harlem, mekka bandarískrar
blökkumenningar – og eiginlega er
serían óður til menningar blökku-
manna fyrst og fremst, barátta of-
urhetjunnar fellur þar í skuggann.
Cage og félagar hans á rakarastof-
unni skiptast á skoðunum um svarta
rithöfunda á borð við James Bald-
win og Ralph Ellison og aðrar hetjur
úr Harlem. Það er máski ekki farið
djúpt í skáldskap þessara manna,
en það breytir aðeins heimsýninni
þegar minna þekktir blökkuhöfund-
ar eru neimdroppaðir á jafn hvers-
dagslegan hátt og við bleiknefjarnir
erum vön með Hemingway og Fitz-
gerald.
Sú menning sem skiptir mestu
máli hér er tónlistin. Cage vinnur á
kvöldin sem uppvaskari í Harlem‘s
Paradise – þar sem helstu skúrkarn-
ir seríunnar hafa líka aðsetur. En
þangað mæta líka ótal flinkir tón-
listarmenn – og flestir skotbardagar
seríunnar eru klipptir saman við
fantafína músík.
Aðalskúrkurinn framan af, Cott-
onmouth, situr svo á efri hæðinni
og er ítrekað myndaður með risa-
stórt málverk af Biggie Smalls í bak-
grunni – þannig að kórónan á höfði
Biggie endar á höfði hans. Maðurinn
sem skapaði þættina, Cheo Hodari
Coker er einmitt tónlistarblaðamað-
ur að upplagi, skrifaði fyrir Rolling
Stones og skrifaði lykilbók um rapp-
arann Biggie – mann grunar þannig
á köflum að hann sjái sig frekar í
skúrknum með píanófingurna en í
aðalhetjunni.
Cottonmouth er þó ekki eini
skúrkur seríunnar. Frænka hans,
pólitíkusinn Mariah, gæti mögulega
reynst kaldrifjuðust af þeim öllum
þótt hún sé alltaf að reyna að lifa
réttu megin við lögin. Yfirskúrk-
urinn Diamondback vitnar svo til
skiptis í 48 Laws of Power og Biblí-
una, svona rétt eins og erkitýpískur
nýfrjálshyggjumaður úr Biblíu-
beltinu. Fyrrnefnda bókin er raun-
ar ágætt dæmi um snertifleti glæpa
og stjórnunarfræða, enda ein vin-
sælasta bókin í bandarískum fang-
elsum. Í skugganum leynist svo
Shade, náfölur bleiknefur – og í
þessari nánast alsvörtu seríu er eitt-
hvað einkennilega ógnandi við þetta
náhvíta andlit.
En hvað stendur Cage sjálfur fyr-
ir? Nafnið segir sitt – og rétt eins og
Malcolm X valdi hann það sjálfur. Á
tímum hreyfingar á borð við Black
Lives Matter, þegar sífellt fleiri frétt-
ir berast af lögreglumönnum að
myrða blökkumenn, þá er svipmynd
af blökkumanni í hettupeysu sem
kúlur falla af ansi áhrifamikil – eða
eins og Coker orðar það í einu við-
tali: „heimurinn er tilbúinn núna
fyrir skotheldan blökkumann.“
Um leið er þetta þó líka saga um
gengjakúltúr og blökkumenn í stríði
hvor við annan – eða eins og rakar-
inn í hverfinu orðar það: „Þeir eiga
allir byssur. Engin þeirra á pabba.“
Borgin sem var
En þótt þetta séu nokkuð jarð-
bundnar nútímaofurhetjusögur
gerast þær í New York sem er löngu
horfin. Sú New York var vissulega til
einu sinni, á áttunda og níunda ára-
tugi síðustu aldar þegar borgin var
ein sú hættulegasta í heimi sökum
skuggalega hárrar glæpatíðni.
Það hefur gjörbreyst og þótt
ennþá megi finna hættuleg hverfi í
útjöðrum borgarinnar er Manhatt-
an núna heimur hinna ríku, uppa-
vædd hverfi sem fæstar aðalpersón-
ur þáttanna hefðu ráð á að búa í.
Manhattan sem varð uppavædd fyr-
ir löngu. Fyrir utan að sá risastóri
vígvöllur sem Hell‘s Kitchen virð-
ist vera er aðeins á stærð við Sel-
tjarnarnes.
Þetta er þó leyst ágætlega með
því að láta glæpamennina vera hálf-
gerða staðgengla bissnessmanna og
pólitíkusa, iðulega með lögguna í
vasanum, venjulegir borgarbúar
búa ennþá við ofríki, þótt eðli ofrík-
isins sé öðruvísi.
Áðurnefndur Frank Miller man
þó vel þá New York sem hann
orti um á sínum tíma í Daredevil
sögunum. Hann flúði borgina eftir
að hafa verið rændur þrisvar á ein-
um mánuði og þessi ótti við þessa
vofeiflegu borg gegnsýrir sögurn-
ar hans. En þegar maður rifjar upp
hversu fasísk skrif hans eru orðin í
seinni tíð þá veltir maður óneitan-
lega fyrir sér hvort það þurfi mögu-
lega alvöru fasista til þess að skrifa
almennilegar sögur um fasisma nú-
tímans.
Sögur um blindan mann, svartan
mann og kvenmann að berjast gegn
kapítalisma og spillingu á síðustu
árunum fyrir Trump, fólk sem er
að berjast við að ná endum saman í
ómennsku og gjörspilltu kerfi.
Luke Cage
heldur á einum
andstæðingnum.
Jessica Jones bíður eftir lestinni.
Tónelska illmennið Cottonmouth fyrir framan málverk af Biggie Smalls.
Angel
6.100 kr.
Glæsilegt skart frá Ítalíu
Laugavegi 15 og Kringlunni – sími 511 1900 – www.michelsen.is
Bella
6.100 kr.
Bella
10.400 kr.
Angel
7.400 kr.