Fréttatíminn - 24.11.2016, Side 34
Fallegar gjafir
á góðu verði
Safnbúð Þjóðminjasafnsins
Óróar frá Laufabrauðssetrinu
Verð 995 kr. – 1295 kr.
Minnisbók 2.495 kr.
Safnbúðin
Eftirgerðir af munum frá Skriðu-
klaustri, unnir af Inga í Sign.
Hnappur 13.900 kr.
Lykill 17.900 kr.
Sérpakkað dökkt súkkulaði 695 kr.
Safnbúðin.
Jólatré 24.995 kr.
Jólapóstkort frá Þjóðminjasafni,
margar gerðir 200 kr.
Jólalínan 2016
frá Heklu
Kerti 1.995 kr.
Servíettur 995 kr.
Eldspýtustokkur 750 kr.
Falleg ílát frá sveinbjörg.is
Kaffibaukasett: 2.195 kr.
Kökubox: 1995 kr.
Vandaðar og endingargóðar ullar-
vörur fyrir börn frá As We Grow.
Húfa: 6.495 kr. Trefill: 5.250 kr.
Mikið úrval af vörum frá Hugrún -
islensk.is. Borðdregill úr hör og
bómullarblöndu með mynstri frá
sjónabók 8.995 kr.
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · Sími 530 2203 · www.thjodminjasafn.is · Hverfisgata 15 · 101 Reykjavík · Sími 530 2210 · safnahusid.is
2 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016
g held í ákveðnar hefðir en
hef ekki alltaf verið heima
hjá mér. Svo lengi sem
ég er með fjölskyldunni,
skemmtilegu og góðu fólki, þá er
ég ánægð,“ segir Valgerður Guðna
dóttir söngkona þegar hún er spurð
hvernig jólahald sé á hennar heim
ili.
Valgerður segir að allur gang
ur hafi verið á jólahaldi hjá sér í
gegnum árin, þó að ýmsar hefð
ir hafi haldist. „Eftir að ég eign
aðist börn hefur þetta verið alla
vegana. Stundum bara við fjöl
skyldan, stundum í útlöndum og
stundum með systkinum mínum
og systkinabörnum. Síðustu þrjú
árin höfum við verið uppi í sum
arbústað á jólunum og það var al
veg dásamlegt. Þá er maður bara í
jólalandi í kannski fimm daga, með
snjó og sleðaferðum. Það var ótrú
lega skemmtilegt að prófa þetta
og verður örugglega gert aftur. En
nú ætlum við að vera heima á að
fangadag,“ segir Vala.
Hún kveðst ekki vera föst í því
hvar hún heldur jólin. „En mér
finnst hins vegar gaman að halda
í einfaldar hefðir eins og að hlusta
á klukkurnar hringja inn jólin
í útvarpinu og að borða ham
borgarhrygg.“
Jólaundirbúningurinn hjá Völu
tekur líka alltaf mið af því að des
ember er annasamur mánuður hjá
tónlistarfólki. Að þessu sinni bera
hæst hjá henni tónleikarnir Óperu
draugarnir sem verða í Hörpu 29.
og 30. desember og á nýársdag. Þar
syngur hún með stórsöngvurunum
Gissuri Páli, Elmari Gilbertssyni
og Oddi Arnþóri. Óperudraugarn
ir koma fram ásamt strengjasveit
og píanóleikara sem jafnframt er
tónlistarstjóri, Óskari Einarssyni.
„Þetta er í þriðja sinn sem við
höldum þessa tónleika og þetta
hefur notið mikilla vinsælda. Þarna
eru bornir á borð allskonar gull
molar úr óperubókmenntunum,
frægar aríur og dúettar. Þetta eru
glæsinúmer en svo tökum við líka
sönglög með. Þetta verður mikill
glamúr og gleði,“ segir Vala sem
bæði syngur og er kynnir á tón
leikunum.
Hún segir að Óperudraugarnir
höfði til mjög fjölbreytts hóps af
fólki. „Þetta er flott músík, falleg og
skemmtileg. Ég veit um fullt af fólki
sem veit ekkert um óperur sem ætl
ar að mæta á Óperudraugana. Svo
verður víst töluvert af erlendum
Hélt jólin í sumarbústaðnum
Valgerður Guðnadóttir söngkona vill halda í fastar hefðir á jólunum en er
ekki bundin af því að halda þau heima hjá sér. Jólaundirbúningurinn mótast
af önnum í tónleikahaldi en í ár syngur Vala með Óperudraugunum í Hörpu.
Valgerður Guðnadóttir söngkona borðar alltaf hamborgarhrygg á
jólunum og hlýðir á klukkurnar hringja inn jólin í útvarpinu. Mynd | Hari
É
ferðamönnum líka, þeir eru farnir
að sækja í tónleika hér í auknum
mæli. Þá reynir líka meira á kynn
inn, það kemur sér vel að ég tala
svolitla frönsku ofan á enskuna.“
Auk Óperudrauganna kem
ur Vala fram á hinum og þessum
tónleikum í desember. Hún verð
ur með Þór Breiðfjörð á tónleikum
sem kallast Jól í stofunni, treður
upp með Davíð Ólafssyni bassa
söngvara og syngur djass með
kvartettinum Kurr svo eitthvað sé
nefnt. Meðfram tónlistarstússinu
reynir Vala svo að undirbúa
jólahaldið.
„Ég hef ekki haft mikinn tíma
síðustu ár en ég reyni alltaf að gefa
mér tíma til að baka eins og eina
sort af smákökum og fara sjálf á
tónleika. Ég hef alltaf ætlað að
fara á Mozart við kertaljós, það er
aldrei að vita nema mér takist það
núna. Svo er um að gera að reyna
að njóta aðventunnar aðeins, hún
líður alltaf svo hratt. Ég er mikið
jólabarn en því er ekki að neita
að þegar mikið er að gera í vinnu
nær maður ekki alveg að drekka í
sig jólastemninguna. Þetta er samt
alltaf frábær árstími og best er
þegar ég næ að eiga margar gæða
stundir með dætrum mínum.“
Forsíðumyndina tók Hari af Tinnu Þórudóttur Þorvaldar.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 •
ritstjorn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín
Bessadóttir, katrin@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er
prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Skautasvell
á Ingólfstorgi
Nova, í samstarfi við Samsung
og Reykjavíkurborg, opnar
skautasvell á Ingólfstorgi þann
1. desember næstkomandi. En
skautasvell var einnig á Ing-
ólfstorgi í fyrra og vakti það
mikla lukku. Ungir sem aldnir
skemmtu sér konunglega við að
renna sér á skautum í skamm-
deginu.
Líkt og í fyrra mun jólaþorp
umlykja svellið þar sem hægt
verður að kaupa mat og drykk.
Jólaskreytingar og jólatón-
list sjá svo um að skapa rétta
jólaandann. Það ættu því allir
að komast í alvöru jólaskap á
Ingólfstorgi í desember.
Svellið verður opnað þann 1.
desember, kl. 20, og opnunar-
tími verður frá kl. 12 til 22 alla
daga til og með 1. janúar.