Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 68

Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 68
36 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016Jólablað 2016 ér finnst best að blanda um það bil 60% malt á móti 40% appelsíni. Þannig verður maltið ráð- andi en appelsínið nægilega mik- ið til að lyfta blöndunni og gæða hana meira lífi,“ segir Margrét Arnardóttir, framkvæmdastjóri Öl- gerðarinnar. Eins og margir telur hún skipta máli hvorum drykknum er hellt fyrst út í. „Ég blanda drykkj- unum saman í stafrófsröð í mjórri könnu, appelsínið fyrst og ég vil hafa drykkina ískalda. Það er lykil- atriði að kannan sé úr þunnu gleri, þannig verður drykkurinn ferskari og áferðin fallegri. En ekki biðja mig samt um að sanna þessa kenningu með vísindalegum niðurstöðum,“ segir hún glettin. Hún segist hafa komið flestum í fjölskyldunni upp á lagið með þessa uppskrift, með einni undantekningu.“ Sá 17 ára vill meira gos og ég stend hann stund- um að því að fikta í blöndunni, en þó ekki fyrr en hún er komin í glas- ið hans.“ Malt og appelsín er oftast á borðum yfir jólin hjá Margréti þó maturinn sé ekki alltaf sá sami. „Við drekkum malt og appelsín með laufabrauðinu, konfektinu og meira segja grjónagrautnum sem stundum er gripið til þegar krakk- arnir hafa fengið of mikið af reykt- um og söltuðum mat. Annars hefur sú hefð skapast hjá okkur, að krakk- arnir fá að borða eitthvað sem þau elska og fær til dæmis einn úr hópn- um hamborgara að eigin ósk, eins skringilega og það kann að hljóma.“ Aðspurð um jólaðhefðir frá því Margrét var lítil stendur hjálpar- starf sem móðir hennar stóð fyrir upp úr. „Þorláksmessa var alltaf sér- stök á heimili foreldra minna, þar sem kvöldið fór í að pakka inn tug- um jólagjafa sem móðir mín hafði sankað að sér til að færa heimilis- lausu fólki á aðfangadag. Gjöfunum safnaði hún með hjálp góðra aðila, fyrst og fremst heildsala sem gáfu henni ýmsan varning sem hún fór með til lögreglunnar sem hjálpaði til við að koma gjöfunum til skila. Eftir að gistiskýlin komu til sögunn- ar lagði hún leið sína þangað og ger- ir enn í þeim tilgangi að gleðja fólk sem á fáa að. Það skapaðist alltaf sérstakt og hátíðlegt andrúmsloft við að pakka gjöfunum inn, með jólatónlist í gangi og malt og appel- sín á borðum í anda jólanna. Ég er ótrúlega stolt af móður minni fyrir þetta frábæra framtak og ég veit að hún hefur glatt marga.“ Jólasiðir Skiptar skoðanir eru á hvernig á að blanda saman malti og appelsíni til að kalla fram besta bragðið. Margrét Arnardóttir, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, telur sig haf náð tökum á hinni fullkomnu blöndu sem höfðar til allra, eða næstum allra. Blandar eftir stafrófsröð Malt og appelsín hafa verið hluti af jólahaldi Margrétar Arnardóttur allt frá því hún aðstoðaði lítil stelpa við að pakka inn jólagjöfum til handa heimilislausu fólki. Mynd | Hari Við drekkum malt og appelsín með laufa- brauðinu, konfektinu og meira segja grjóna- grautnum sem stund- um er gripið til þegar krakkarnir hafa fengið of mikið af reyktum og söltuðum mat. M Ómissandi í jólamatinn Villijurtir Frábært á lambalærið um jólin. Kryddleggið í 4 -5 daga. Eðal-kjúkllingakrydd Ein vinsælasta krydd- blanda Pottagaldra frá upphafi, hentar einnig á steiktan fisk. Kalkúnakrydd Þúsundir íslendinga nota Kalkúnakrydd í fyllinguna í kalkúninn um jólin, hentar einnig í kjúklingafyllingu. Eðalsteik- og grillkrydd Frábær á lambalundir, nautasteikina og margt fleira. Húsið ilmar á meðan kjötið er marinerað. Arabískar nætur 7 krydda blandan frá Líbanon. Notið á græn- meti, kjúkling, lambakjöt og svínakjöt. Frábært á hnettusteikina Töfrakrydd Dásamleg kryddblanda í pottréttinn og á afganginn af lambalærinu. Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.