Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 73

Fréttatíminn - 24.11.2016, Page 73
| 41FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 24. nóvember 2016 Jólablað 2016 „Það ætti að vera auðvelt a ð finna jólafötin á alla og eitthvað flo tt í jólapakkana.“ Einstakt úrval af jólafötum og jólagjöfum Í verslunum Vila, Vero Moda, SELECTED, Jack & Jones, name it og vefversluninni www.bestseller.is er að finna allt sem þarf til að klæða fjölskylduna um jólin og allt í jólapakkana. Unnið í samstarfi við Bestseller. Vöruúrvalið í verslunum Vila, Vero Moda, SELECTED, Jack & Jones og barnafataversluninni name it í Kringlunni og Smára- lind er einstaklega víðfeðmt og fjölbreytt. Þar er að finna föt fyrir öll tækfæri, skó, fylgihluti, nærföt, náttföt, íþróttaföt og margt fleira á alla í fjölskyldunni. „Það ætti því að vera auðvelt að finna jólafötin á alla og eitthvað flott í jólapakk- ana,“ segir Lovísa Anna Pálma- dóttir, markaðsstjóri Bestseller. Nýjar vörur vikulega „Vörumerkin okkar eru þekkt fyrir flotta hönnun og tísku sem er „relevant“ núna. Við fáum nýjar vörusendingar í hverri viku og það er alltaf eitthvað nýtt að sjá. Sum- ar af þessum vörum fara í búð- irnar en aðrar fara inn á vefversl- unina Bestseller.is en þar versla til dæmis margir sem ekki eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Lovísa. Meðal helstu nýjunga eru buxur með fjölbreyttu sniði og litir eins og vínrauður og karrígul- ur. „Tískan hefur sennilega aldrei verið jafn fjölbreytt og núna og það er svo margt spennandi í boði. Þar liggur einmitt okkar styrkur, að bjóða upp á sem mest og vera sífellt að endurnýja og bjóða upp á nýjar vörur,“ segir Lovísa. Pallíettur og rúllukragabolir hluti af jólatískunni í ár „Það sem er flottast í jólatískunni í ár eru rúllukragabolir við bla- serjakka á herrana og pallíettur og blúndur fyrir stelpurnar,“ segir Lovísa. „Annars eru kjólar alltaf mjög vinsælir hjá konunum og við gætum þess að eiga nóg af þeim. Jakkaföt seljast líka alltaf vel fyrir jólin, en í ár erum við með mikið af fallegum jakkafötum í bláu og gráu.“ Þægilegt að fá að- stoð frá starfsfólki. Lovísa segir að fólk eigi ekki að hika við að leyfa starfsfólkinu að að- stoða sig. „Fólk á að nýta sér það að starfsfólkið er þjálfað til að átta sig á hvað fer þér vel og finna eitthvað sem þér líkar. Það er enginn sem veit jafnvel hvað er að finna í versluninni og starfsfólkið. Og ekki gleyma að biðja um gjafaöskju fyrir jólin en þær fylgja með í kaupunum á meðan birgðir endast, og þá þarftu ekki einu sinni að pakka inn gjöfunum,“ segir Lovísa. Lovísa Anna Pálmadóttir, markaðsstjóri Bestseller.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.