Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10.desember 2016 Sóley Björk Stefáns- dóttir er bæjarfulltrúi VG á Akureyri. S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A S Ý N Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA Sölutímabil 2. – 16. desember Man ekki annað eins skilningsleysi Sigþrúður Guðmundsdóttir segir dóm héraðsdóms hafa slegið sig algerlega út af laginu. Kynferðisbrot „Þessi dómur er furðulegur í meira lagi,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir fram- kvæmdastýra Kvennaathvarfsins en Hæstiréttur ógilti í gær tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir karlmanni sem Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi fyrr á árinu fyrir heimilisofbeldi og nauðgun. Maðurinn var í héraði, sakfelldur fyrir nauðgun með því að þvinga konuna til munnmaka en sýknað­ ur af því að hafa nauðgað konunni í endaþarm nokkrum augnablikum síðar. Dómurinn taldi að maðurinn hefði staðið í þeirri trú að konan væri samþykk endaþarmsmökun­ um. „Þetta sló mig algerlega út af laginu,“ segir Sigþrúður. „Dettur einhverjum í hug að kona sem hef­ ur verið þvinguð til munnmaka, samþykki endaþarmsmök augna­ bliki siðar. Ég man ekki eftir að hafa rekist á annað eins skilnings­ leysi í einum dómi áður. Ekki vegna þess að sýknudómar hafi ekki oft gengið fram að mér, heldur vegna þess, að í þessu tilfelli er maðurinn þrátt fyrir allt sakfelldur fyrir einn hluta ákærunnar, þrátt fyrir svona furðulegt skilningsleysi á valdaó­ jafnvæginu milli þessara einstak­ linga.“ | þká Velferðarmál Ellilífeyrisþegar á Akureyri borga 13 þúsund krónum meira fyrir heimsendan mat en eldri borgar í Reykjavík, verði hækkun samþykkt. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Þetta eru ekki endilega mikl­ ar hækkanir, en þær skipta miklu máli fyrir marga,“ segir Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri, en hún gerði athugasemdir, á fundi bæjarráðs á fimmtudaginn, við verðhækkun á heimsendum mat til eldri borgara. Verðið á matnum hækkar um 170 krónur ef gjaldskráin verður sam­ þykkt á fundi bæjarstjórnar. Það þýðir að hver heimsendur matar­ Eldri borgarar á Akureyri þurfa að greiða meira fyrir heimsendan mat en aðrir, verði hækkunin samþykkt. Mynd | Hari Heimsendur matur eftir bæjarfélögum Kópavogur 1.360 kr. Akureyri 1.320 kr.* Akranes 1.152 kr. Reykjavík 880 kr. *Athugið að ekki er búið að samþykkja hækkunina á fundi bæjarstjórnar Akureyrar. Aldraðir á Akureyri borga 13.000 krónum meira fyrir matinn skammtur mun kosta eldri borgara 1.320 krónur, en til samanburðar þá kostar sambærileg heimsending 880 krónur í Reykjavík. Kópavogur er þó með dýrari matarbakka, hann kostar 1.360 krónur. Sóley Björk bendir einnig á að gjaldið hafi verið hækkað á síðasta ári um 75 krónur, því hefur matur til eldri borgara hækkað um 245 krón­ ur á þessum tveimur árum. Hún seg­ ir hækkunina í fyrra hafa verið um­ fram almennar verðlagshækkanir. Þetta þýðir að eldri borgari í fullu fæði þarf að greiða 7.500 krónum meira á mánuði fyrir matinn, sé litið til hækkunar síðustu tveggja ára. Heildarkostnaður vegna matarins yrði þá tæplega 40 þúsund krónur á mánuði á meðan eldri borgarar í Reykjavík greiða 13 þúsund krónum minna fyrir sambærilega þjónustu. „Það var enginn sem gat komið með rök fyrir þessari hækkun,“ seg­ ir Sóley en bæjarráð samþykkti að leita eftir skýringum á hækkuninni og leita leiða til þess að takmarka hækkanir sem snúa að hækkunum á verði þjónustu til eldri borgara. Sóley Björk segir mikilvægt að hækkanir á mat séu mjög hóflegar, og bendir á að málþing hafi verið haldið í byrjun nóvember þar sem rætt var um vannæringu eldri borg­ ara. Hún segir aukinn kostnað ekki hjálpa til hvað það varðar, sérstak­ lega í ljósi þess að fjölmargir eldri borgarar hafa ekki orku eða þrek til þess að elda fyrir sig á hverjum degi. Hún bendir á að ekki sé búið að sam­ þykkja hækkunina, „og ég á von á því að þessu verði breytt,“ segir hún. Haukur Haraldsson, formaður Félags eldri borgara á Akureyri, segir að hækkunin hafi ekki verið kynnt fyrir félaginu, þó félagsmenn hafi heyrt af fyrirhugaðri hækkun. „Ef þetta er tilfellið, þá þætti okk­ ur það miður og auðvitað óskum við eftir skýringum á því,“ segir hann. Efnahagsmál „Þetta er eitt af hættumerkjunum í íslensku efna- hagslífi,“ segir Bjarni Benedikts- son fjármálaráðherra. Fólk innan Samtaka ferðaþjónustunnar óttast annað hrun ef ekkert verð- ur að gert, vegna sterkrar krónu en einstakir gjaldmiðlar, svo sem breska pundið, hafa lækkað um 30 prósent gagnvart krónu en Bretar eru einna fjölmennastir í hópi ferðamanna á Íslandi. „Ég ætla ekki að spá öðru hruni en það er alveg ljóst að fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á útflutningi finna fyrir því þegar gengið styrk­ ist jafn mikið og það hefur gert síð­ astliðin tvö ár,“ segir Bjarni Bene­ diktsson. Bjarni segir mikilvægt að fara yfir peningastefnuna með hlið­ sjón af því hversu stór ferðaþjón­ ustan sé orðin í samfélaginu og þeim breytingum sem hafi orðið í samfélaginu jafnhliða því. „Við þurfum að spyrja hvort það sé nauðsynlegt að fylgja svona stífu verðbólgumarkmiði, það er brýnt að meta árangurinn af núverandi peningastefnu.“ Morgunblaðið vitnar til þess í gær að Seðlabankinn og vaxta­ stefna hans hafi verið harðlega gagnrýndur á fundi hjá Samtök­ um ferðaþjónustunnar í vikunni, Seðlabankinn tjáir sig ekki um vaxtastefnuna þar sem vaxta­ ákvörðun verður kynnt í næstu viku. Bjarni Benediktsson: Ætla ekki að spá öðru hruni Brýnt að meta árangurinn af núverandi peninga- stefnu. Mynd | Hari Dómsmál Lögmaður mótmæl- anda í Gálgahrauni segir að niður- staða Hæstaréttar Íslands galopni heimildir lögreglu til að handtaka friðsama mótmælendur. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is „Það er ekki spurning, Hæstiréttur er með þessum dómum að galopna heimildir lögreglu til að handtaka friðsama náttúruverndarsinna hvar og hvenær sem þeim sýnist, gegni þeir ekki tafarlaust fyrirmæl­ um lögreglunnar. Dómurinn styðst við mat lögreglunnar á aðstæðum á vettvangi og nauðsyn á handtökum í stað þess að leggja eigið mat á mál­ ið,“ segir Skúli Bjarnason, hæsta­ réttarlögmaður, sem flutti mál níu einstaklinga gegn íslenska ríkinu vegna handtöku þegar þeir voru að mótmæla í Gálgahrauni árið 2013. Dómur Hæstaréttar staðfesti úr­ skurði Héraðsdóms Reykjavíkur gegn níumenningunum sem kröfð­ ust skaðabóta vegna þess að þau voru handtekin við mótmælin og færð í fangaklefa fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Hæstiréttur Íslands tekur undir þau sjónarmið, og segir að í ljósi þess að þau hlýddu ekki fyrirmælum lögreglu, hafi ver­ ið heimilt að handtaka þau og færa á lögreglustöð. „Umbjóðendur mínir munu að sjálfsögðu skoða það af fullri alvöru að kæra þessa dóma til Mann­ réttindadómstóls Evrópu,“ bætir Skúli við. Skúli segir það áhyggjuefni ef lögreglan þarf ekki að gæta með­ alhófs í slíkum aðstæðum eins og í mótmælunum í Gálgahrauni, og hljóti það almennt að fæla nátt­ úruverndarsinna og aðra ábyrga einstaklinga frá því að taka þátt í aðgerðum af þessu tagi. Skúli Bjarnason segir dóminn gefa lögreglu fullmikið vald til þess að handtaka mótmælendur. Mynd | Hari Galopnar heimildir til að handtaka mótmælendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.