Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 60
Alla laugardaga Gerður lofuð í Noregi Drápa, ljóðabók rithöfundarins Gerðar Kristnýjar, kom út í Noregi fyrr á árinu. Einn kunnasti gagnrýnandi Norðmanna, Henning Howlid Wærp, segir Drápu eina af bestu bókum ársins þar í landi. „Gerður Kristný er meðal þeirra fremstu í nýrri bylgju íslenskra bókmennta ... Drápa er óhugnanleg en heillandi,“ segir hann. As We Grow til Japans Markaðssetning í fullum gangi Íslenski hesturinn of lítill fyrir Ben Affleck Tökur á stórmyndinni Justin League fóru sem kunnugt er fram á Ströndum í október. Á fjórða hundrað manns voru við tökurnar þegar mest lét og meðal þekktra leikara voru Amber Heard og Ben Affleck. Sá síðarnefndi fer með hlutverk Leðurblökumanns- ins, Batman, og þurfti að gera sérstakar ráðstafanir fyrir tökur hans hér. Í myndinni ríður Bat- man um á hesti en Affleck er fremur hávaxinn, 192 sentímetr- ar, og þótti líta kjánalega út á hinum smávaxna íslenska hesti. Því var brugð- ið á það ráð að fá lágvax- inn erlendan aukaleikara til að hlaupa í skarðið og sitja íslenska hestinn í gervi Bat- mans. Frá Mið- og Suður Ameríku Arial reg. 8 pt Línubil 10Ylur og krydd frá Gvatemala. Jólailmur, hlátrasköll og gott kaffi. Hátíðakaffi kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a hátíðí bæ FYRIR OKKUR Sérvalið fyrir íslenskar aðstæður. Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is As We Grow, handhafi hönnunar- verðlaunanna 2016, hefur hafið útrás í Japan en Japanir hafa sýnt merkinu mikinn áhuga frá upphafi. „Í janúar förum við á sýningar til Japans, Danmerkur og Parísar að kynna næstu línu en nú þegar erum við komnar með umboðsmann í Japan sem er á fullu að markaðssetja okkur þar,“ segir Gréta Hlöðvers- dóttir framkvæmdastjóri en hún stofnaði As We Grow árið 2012 ásamt Guðrúnu Rögnu Sigurjóns- dóttur fata- og prjónahönnuði og Maríu Th. Ólafsdóttur fatahönnuði. „Við erum með lykilmanneskju hér á landi sem hefur aðstoðað okkur dyggilega við að koma okkur á fram- færi þar, þar er annar hugsunar- háttur og önnur menning svo það skiptir miklu máli að hafa einhvern innfæddan með okkur,“ segir Gréta. Í upphafi vann As We Grow einungis með alpaca ull en á undan- förnum misserum hafa bæst við fleiri náttúruleg efni eins og hör og bómull. „Við höfum verið að bæta við fleiri léttari vörum fyrir sumrin og það kemur svolítið til vegna Jap- an, það er náttúrulega svo ofboðs- lega heitt þar yfir sumartímann.“ Hugmyndafræði As We Grow byggir á ábyrgum um- hverfissjónarmiðum og afstöðu gagnvart líftíma og endingu framleiðslu- vöru á tímum ofgnóttar. Gæði umfram magn. Gréta Hlöðversdóttir og Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir. Nýjasta lína As We Grow eru hettur og slár fyrir fullorðna úr alpaca ull.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.