Fréttatíminn - 10.12.2016, Side 60
Alla laugardaga
Gerður lofuð í Noregi
Drápa, ljóðabók rithöfundarins Gerðar Kristnýjar, kom út í Noregi fyrr á árinu.
Einn kunnasti gagnrýnandi Norðmanna, Henning Howlid Wærp, segir Drápu eina
af bestu bókum ársins þar í landi. „Gerður Kristný er meðal þeirra fremstu í nýrri
bylgju íslenskra bókmennta ... Drápa er óhugnanleg en heillandi,“ segir hann.
As We Grow til Japans
Markaðssetning í fullum gangi
Íslenski hesturinn of
lítill fyrir Ben Affleck
Tökur á stórmyndinni Justin
League fóru sem kunnugt er fram
á Ströndum í október. Á fjórða
hundrað manns voru við tökurnar
þegar mest lét og meðal þekktra
leikara voru Amber Heard og
Ben Affleck. Sá síðarnefndi fer
með hlutverk Leðurblökumanns-
ins, Batman, og þurfti að gera
sérstakar ráðstafanir fyrir tökur
hans hér. Í myndinni ríður Bat-
man um á hesti en Affleck er
fremur hávaxinn, 192 sentímetr-
ar, og þótti líta kjánalega út á
hinum smávaxna
íslenska hesti.
Því var brugð-
ið á það ráð
að fá lágvax-
inn erlendan
aukaleikara
til að hlaupa í
skarðið og sitja
íslenska hestinn
í gervi Bat-
mans.
Frá Mið- og Suður
Ameríku
Arial reg. 8 pt
Línubil 10Ylur og krydd frá Gvatemala.
Jólailmur, hlátrasköll og gott
kaffi.
Hátíðakaffi
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
FYRIR OKKUR
Sérvalið fyrir íslenskar aðstæður.
Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
As We Grow, handhafi hönnunar-
verðlaunanna 2016, hefur hafið
útrás í Japan en Japanir hafa sýnt
merkinu mikinn áhuga frá upphafi.
„Í janúar förum við á sýningar til
Japans, Danmerkur og Parísar að
kynna næstu línu en nú þegar erum
við komnar með umboðsmann í
Japan sem er á fullu að markaðssetja
okkur þar,“ segir Gréta Hlöðvers-
dóttir framkvæmdastjóri en hún
stofnaði As We Grow árið 2012
ásamt Guðrúnu Rögnu Sigurjóns-
dóttur fata- og prjónahönnuði og
Maríu Th. Ólafsdóttur fatahönnuði.
„Við erum með lykilmanneskju hér
á landi sem hefur aðstoðað okkur
dyggilega við að koma okkur á fram-
færi þar, þar er annar hugsunar-
háttur og önnur menning svo það
skiptir miklu máli að hafa einhvern
innfæddan með okkur,“ segir Gréta.
Í upphafi vann As We Grow
einungis með alpaca ull en á undan-
förnum misserum hafa bæst við
fleiri náttúruleg efni eins og hör og
bómull. „Við höfum verið að bæta
við fleiri léttari vörum fyrir sumrin
og það kemur svolítið til vegna Jap-
an, það er náttúrulega svo ofboðs-
lega heitt þar yfir sumartímann.“
Hugmyndafræði As We Grow
byggir á ábyrgum um-
hverfissjónarmiðum og
afstöðu gagnvart líftíma
og endingu framleiðslu-
vöru á tímum ofgnóttar.
Gæði umfram magn.
Gréta Hlöðversdóttir
og Guðrún Ragna
Sigurjónsdóttir.
Nýjasta lína As We
Grow eru hettur og
slár fyrir fullorðna úr
alpaca ull.