Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10.desember 2016
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Maria João Pires er eilítið yngri en íslenska lýðveldið, fædd í Lissabon 23. júlí árið 1944. Aðeins
fimm ára gömul kom hún fram á sín
um fyrstu tónleikum, síðan fylgdu
verðlaun fyrir unga tónlistarmenn
og víðtækt tónlistarnám í Þýska
landi. Eftir sextíu ára tónleikahald
tilkynnti Pires árið 2010 að hún
myndi draga nokkuð úr tónleik
um. Það eru því forréttindi fyrir ís
lenska tónlistaráhugamenn að hún
heimsæki Ísland en á tónleikunum
í Hörpu leikur Pires sónötur eftir
Schubert og Beethoven.
Hlý og huglæg
Maria João Pires er hæglát kona.
Hún talar blíðlega og fallega um
hlutverk tónlistarinnar við að móta
og bæta heiminn. Hún vill að sem
flestir kynnist töfrum sígildrar tón
listar en vill síður láta teyma sig út í
miklar umræður um tónverkin sjálf.
Nálgun hennar við tónlistina er
í grunninn heimspekileg, eins og
svo mikið af góðri list. Afi Pires
lagði stund á búddisma sem var
afar sjaldgæft í Portúgal um miðja
tuttugustu öld og faðir hennar lagði
stund á austræna heimspeki. Síðar
dróst Pires sjálf að búddismanum
en er feimin við að tala um sig sem
sem búddista, vill síður láta fella sig
í ákveðin hólf í trúarlegum efnum.
Henni er hins vegar tíðrætt um sið
ferði og mennskuna sem hún legg
ur áherslu á og gerir allt til að draga
fram með tónlist sinni. Hún er á því
að töfrar tónlistarinnar geti aukið á
samlíðan fólks með þeim sem minna
mega sín.
Glæstur ferill Pires hefði getað
orðið enn mikilfenglegri en hún er
ekki mikið fyrir að trana sér fram
og gagnrýnendum er tíðrætt um hve
laus hún er við allan sjálfbirgings
hátt, sem stundum einkennir pían
ista á stórum sviðum heimsins. Í
viðtölum er greinilegt að Pires þyk
ir ekkert sérstaklega skemmtilegt að
Portúgalski píanóleikarinn Maria Joao Pires á langan og farsælan feril að baki. Hún leikur píanósónötu nr. 32 í c-moll, op. 111
eftir Ludwig van Beethoven og píanósónötu nr. 21 í B-dúr, d. 960 eftir Franz Schubert. Mynd | Getty
Viðkvæm
portúgölsk
perla í Hörpu
Portúgalski píanóleikarinn Maria João
Pires er af mörgum talin einn fremsti
píanóleikari samtímans og upptökur
með henni vekja mikla aðdáun.
tala um sjálfa sig. Hún er að mörgu
leyti fínlegur píanisti en krafturinn
blossar upp þegar með þarf. Mestum
hæðum þykir hún hafa náð í túlk
un sinni á verkum tónskálda á borð
við Mozart, Schubert og Chopin.
Túlkunin er tær og einhvern veginn
mjúk, án þess að vera væmin.
Skólahald
Árið 1999 setti Pires upp tónlistar
skóla fyrir börn á sveitasetri sínu i
Portúgal. Þar var takmarkið að opna
heim tónlistarinnar fyrir börnum
sem gátu vegna fjárhags og félags
legra aðstæðna ekki notið tónlistar
náms eða menningar. Eftir nokkra
ára rekstur slettist upp á vinskapinn
milli hennar og yfirvalda, auk þess
sem illt umtal meðal menntamanna
heimalandsins varð til þess að hún
flutti frá heimalandi sínu.
Átökin í kringum skólahaldið
fóru hins vegar illa með heilsuna og
langan tíma tók fyrir píanistann að
byggja sig aftur upp. Hún flutti til
Brasilíu þar sem hún styður áfram
við áþekk verkefni sem snúa að því
að opna sígilda tónlist fyrir ungum
krökkum.
Að baki þessari hugsun býr trú á
tónlistina og fullvissa um að hún geti
hjálpað til við að opna augu fólks fyr
ir þeim áskorunum sem blasa við
mannkyni. Pires spyr sig hvað tón
listarmenn geti gert til að fólk horfist
í augu umhverfisvá og misskiptingu
auðs í heiminum.
Hverfur inn í sig
Maria João Pires er ekki manneskja
mikilla flugeldasýninga þegar hún
situr við hljóðfærið. Hún er gagn
rýnin á það hvernig sumir ætlast til
að stjörnupíanistar hagi sér og þol
ir illa píanókeppnir þar sem tækni
sýningar skjóta farsælum tónlistar
mönnum upp á stjörnuhimininn.
Pires lítur svo á að slíkar keppnir
hafi eyðilagt margan hæfileikarík
an tónlistarmann í gegnum árin.
Hún er algjörlega mótfallinn þeirri
hugmyndin að hægt sé að keppa í
listum.
Sjálf hverfur hún nánast inn í
sig þegar hún situr við hljóðfærið.
Rennur saman við tónlistina. Í við
tölum talar hún með sínu blíða brosi
um það hve tengslin við tónlistina
séu djúp og sterk. Aðeins með þeim
hætti næst í hennar huga full stjórn
og friður. Lykilinn er hógvær nálgun
að hverju tónverki fyrir sig.
Maria João Pires leikur á tónleik-
um í Hörpu á morgun, sunnudag,
klukkan 17.
Maria Joao Pires hefur átt í löngu og
góðu samstarfi við útgáfufyrirtækið
Deutsche Grammophon.
Klósettdagar
hjá Ísleifi Jónssyni
Súper tilboð – hagstæð innkaup – lægra gengi
Öllu skilað til neytenda
tilboðs
Hannað af
Philippe Starck
Duravit hefur um áraraðir
starfað með hönnuðum
sem hlotið hafa fjölda
viðurkenninga.
DURAVIT salernum fylgir hæglokandi seta
Rimless tækni - hljóðlát skolun
Seta losuð með einu handtaki - auðveldar þrif
Með allt á hreinu frá 1921
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Fylgir
frítt með
Starck 3
kr. 48.900
Lotus just·1
pakki af 5 laga
salernispappír
fylgir