Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 46
46 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10. desember 2016
Höfundur Spice Girls gerir
bandarískt SKAM
Simon Fuller er mað-
urinn á bak við Idol og
setti einnig saman Spice
Girls hljómsveitina.
Maðurinn á bakvið Spice Girls og
Idol ætlar að búa til bandaríska
útgáfu af norsku unglingaþátt-
unum SKAM.
Simon Fuller, einn stærsti sjón-
varpsþáttaframleiðandi í heimi,
ætlar að búa til bandaríska útgáfu
af norsku vefsjónvarpsþáttunum
SKAM. Þættirnir eru skapaðir af
Julie Andem og norska ríkissjón-
varpinu og engan óraði fyrir að þeir
yrðu það vinsælasta sem sjónvarps-
stöðin hefur nokkru sinni búið til.
Vinsældir SKAM hafa farið eins og
eldur í sinu um heiminn á undan-
förnum mánuðum. Í Noregi er allt
á hliðinni vegna þáttanna og varla
talað um annað en aðalpersón-
urnar. Hægt er að fylgjast með lífi
þeirra á samfélagsmiðlum og ný
brot úr þáttunum birtast daglega á
heimasíðunni
skam.p3.no
Íslendingar
hafa ekki far-
ið varhluta af
þessu brjálæði
og eru aðdá-
endahópar
þáttanna sístækkandi á Facebook.
Þá þykir skyndilega orðið ægi-
lega töff að tala norsku í íslenskum
menntaskólum.
Simon Fuller setti saman Spice
Girls hljómsveitina. Hann er auk
þess skapari Idol-stjörnuleitarinn-
ar og dansþáttanna vinsælu So
you think you can dance. Fyrir-
tæki Fullers, XIX Entertainment,
hefur keypt réttinn til að framleiða
bandaríska útgáfu af SKAM.
Og fyrir forfallna SKAM-aðdáend-
ur, voru að berast þær gleðifréttir
að fjórða þáttarröðin
er í smíðum og verður
sýnd næsta vor. | þt
Í húsbíl um jólin
Fjóla býr í húsbíl í Laugardalnum yfir háveturveturinn en kvartar
ekki undan veðrinu. Draumurinn er að komast í eigin íbúð með
öllu dótinu sínu.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Ég mun líklega halda jólin í húsbílnum. Það er ekkert annað í boði en að halda jólin hér. Ég mun samt líklega
borða heima hjá börnunum
mínum á aðfangadag,“ segir
Fjóla sem hefur búið í húsbíl á
tjaldstæðinu í Laugardalnum
síðan í ágúst.
Fjóla sat við tölvuna að púsla
þegar Fréttatíminn bankaði
upp á. Húsbílinn er heimilis-
legur en þó býr hún þröngt
í bílnum. „Það er frekar lítið
pláss hérna til að púsla púsl. Ég
er að reyna að gera þetta svo-
lítið huggulegt til að lífga upp á
aðstæðurnar en hér er þröngt
og lítið skápapláss. Eins og þið
sjáið þá er drasl um alla bekki
hérna.“ Að sögn Fjólu tekur
á að vera í kerfinu á Íslandi
og þurfti hún því að taka til
sinna eigin ráða. „Ég er öryrki
og hef ekki miklar tekjur og
þess vegna hef ég ekki tök á að
leigja á frjálsum markaði. Ég
hef verið að sækja um íbúð hjá
Féló í tvö ár og það er ekkert að
frétta. Ég er orðin hundleið á
að bíða eftir þessari íbúð.“
Fjóla er ekki sú eina sem hef-
ur flutt búslóð sína í Laugar-
dalinn. Að sögn Fjólu býr þar
líka par og leigubílstjóri. „Það
er mjög góð aðstaða hérna,
flottar sturtur og sameiginleg
eldhús. Ég tek stundum vaktir
á farfuglaheimilinu til að ná
mér í nokkra aura.“ Veðrið
hefur verið einstaklega gott nú
í desember og er tjaldsvæðið í
fyrsta skipti opið yfir allan vet-
urinn. „Það er yndislegt veður
hérna og alltaf hlýtt í bílnum,
það er nú ekki hægt að kvarta
yfir því. Svo sér maður bara
hvað gerist þegar það byrjar að
snjóa og bílinn fer í kaf,“ segir
Fjóla og hlær.
Það er yndislegt
veður hérna og alltaf
hlýtt í bílnum, það
er nú ekki hægt að
kvarta yfir því. Svo
sér maður bara hvað
gerist þegar það byrj-
ar að snjóa og bílinn
fer í kaf,
Fjólu finnst erfitt að vera í kerfinu á Íslandi og er orðin óþreyjufull eftir íbúð. Myndir | Rut.
Tjaldsvæðið er í fyrsta skiptið opið yfir allan veturinn vegna góðs veðurs.
F Æ Ð A S E M
F O R V Ö R N
Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka) og Þórunn
Steinsdóttir eru þekktar fyrir áhuga sinn á
matargerð, hollum lifnaðarháttum og forvörnum
gegn krabbameini og öðrum sjúkdómum. Þær
hafa fengið til liðs við sig lækna og annað fagfólk
til að skrifa bók sem getur nýst öllum sem vilja
efla heilsuna og varnir líkamans gegn vágestum.
Í þessari bók er að finna mikinn fróðleik um
næringu og heilbrigðar lífsvenjur, ásamt fjölda
girnilegra, aðgengilegra og hollra uppskrifta
sem henta allri fjölskyldunni.
1 Matreiðslubækur
29.11.– 5.12.2016
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39