Fréttatíminn - 10.12.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10.desember 2016
Myndlistarmaðurinn Unnar Örn
segir ríkari hefð fyrir óeirðum og
mótmælum á Íslandi en margur
haldi. Heimildirnar sem til eru
um margar þessara aðgerða eru
gögn sem lögreglan varðveitti til
að sakfella borgara fyrir einhvers
konar brot gegn valdstjórninni.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Unnar Örn myndlistarmaður hefur
undanfarin ár skoðað óeirðahefð-
ir Íslendinga og skapað myndlist-
arverk úr afrakstrinum. Hann setti
upp sýningar í Listasafni ASÍ árið
2014 og í Harbinger í september og
auk þess gaf hann út kver sem nefn-
ist “Þættir úr náttúrusögu óeirð-
ar”. Kverið inniheldur myndir af
samstöðufundum, kröfugöngum
og ýmiskonar mótmælaaðgerðum
frá áhugaverðum sjónarhornum.
Við þessa vinnu hefur Unnar skoð-
að fjölmargar heimildir um óeirð-
ir Íslendinga. Hann hefur legið
yfir þeim á Þjóðaskjalasafni, Ljós-
myndasafni Reykjavíkur og garfað
í gögnum frá rannsóknarlög-
reglunni.
„Innra með okkur öllum býr óeirð
en líka samstaða. Stundum, þegar
þessi öfl mætast, þá verða til hópar
sem standa fyrir einhverskonar að-
gerðum. Sameiningin gerist af ólík-
um ástæðum.“
Meðal þess sem ber á góma í
verkum Unnars eru sögufrægir at-
burðir svo sem óeirðirnar á Aust-
urvelli sem brutust út árið 1949 í
aðdraganda þess að Ísland varð að-
ildarríki að Atlantshafsbandalaginu.
Þar má einnig sjá myndir af kvenna-
frídeginum árið 1975, mótmælum
Heimildir sem snúast
í höndunum á valdinu
30. mars, 1949. Alþingishúsið eftir fjölmenn mótmæli gegn inngöngu Íslendinga í Atlantshafsbandalagið. Andstæðingar
inngöngunnar, stuðningsmenn hennar og aðrir almennir borgarar flykktust á Austurvöll til að sjá hvað verða vildi, en grjóti
og eggjum rigndi yfir Alþingishúsið. Lögregla beitti táragasi á mannfjöldann. Krossarnir sýna rúðurnar sem brotnar voru.
Verk eftir Unnar Örn.
23. desember, 1968. Þorláksmessuslagurinn voru átök sem brutust út þegar
Æskulýðsfylkingin og Félag róttækra stúdenta skipulögðu mótmæli gegn Víetnam
stríðinu í miðbænum. Þegar þau tilkynntu lögreglu um þessa fyrirætlun lagðist
hún gegn henni á þeirri forsendu að þannig myndi gangan lenda í miðri jólaösinni.
Mótmælendur vildu ekki breyta fyrirhugaðri gönguleið sinni. Þegar til kom mynd
aði lögreglan þrefalda röð þvert yfir Austurstræti á Lækjartorgi og þegar gangan
kom þar að brutust út átök sem lauk með handtökum tólf mótmælenda.
30, mars, 1949. Mótmæli gegn Nato
og inngöngu í Atlantshafsbandalagið.
Þarna sést táragasflóðið, lögregla
sprautaði táragasi á mótmælendur.
Handtökur, ákærur sem síðar urðu að
miklu deilumáli sem vatt uppá sig og
varð mjög pólitískt hitamál.
1. maí, 1947. „Bankarnir í þjónustu
þjóðarinnar“ var krafan á baráttu
degi verkalýðsins þetta árið. Hér
sést gangan um Vonarstræti í miðbæ
Reykjavíkur. Höfundur: óþekktur.
gegn Kárahnjúkavirkjun, ýmiskon-
ar aðgerðum í sjálfstæðisbaráttu Ís-
lendinga, stúdentabyltingu í Stokk-
hólmi, kjarabaráttu, kröfugöngum
og samstöðufundum sem minna er
vitað um.
„Fólki af minni kynslóð hefur ver-
ið talin trú um að Íslendingar væru
svo friðelskandi, að hér væri engin
hefð fyrir mótmælum. Að samstaða
til mótmæla væri sjaldgæf. Þegar ég
fór að skoða þetta sá ég að þetta
Bergstaðir
Kolaport
Ráðhúsið
Stjörnuport
Traðarkot
Vesturgata
Vitatorg
Í KVÖLD, 10. DESEMBER.
OPIÐ TIL KL. 22:00.
AFGREIÐSLUTÍMI FRÁ
15. DES. TIL JÓLA:
10:00–22:00.
Kósíkvöld í
miðborginni
Röltu í bæinn og gerðu
jólainnkaupin í hátíðlegu
umhverfi. Þar finnur þú lifandi
tónlist, léttar veitingar og
fjölbreytt úrval verslana.
Tilvalið tækifæri til að klára
jólagjafirnar og tylla sér svo
niður á einu af veitingahúsum
miðborgarinnar og bragða
á gómsætum jólaréttum.
VERUM, VERSLUM OG
NJÓTUM ÞAR SEM
MIÐBORGARHJARTAÐ SLÆR
WWW.MIDBORGIN.IS
NÆG BÍLASTÆÐI OG
MUNIÐ BÍLASTÆÐAHÚSIN
15:00 við Kjörgarð.
15:30 á göngugötu
Skólavörðustígs.
Jólasveinar verða á vappi og
jólakórar hefja upp raust sína.
Þá minnum við á ratleik
Jólavættanna, skautasvell
Nova á Ingólfstorgi og
ævintýri Aðventuapans á
facebook.com/midborgin,
þar sem þú getur unnið gjafa-
kort Miðborgarinnar okkar.
SNUÐRA OG TUÐRA
SKEMMTA BÖRNUNUM
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VERÐ FRÁ 255.000.- Í VIKU
MEXICO ALLT ÁRIÐ
PLAYA DEL CARMEN
Þú ferð þegar þú vilt eins lengi og þú vilt
Pálmatré, hvítar strendur og kristaltær sjór.
Karíbahafið eins langt og augað eygir. Þar má
auk þess sjá Maya pýramída, frumskóg, tær lón
og neðanjarðarhella, veitingahús, verslanir og
næturlíf. Þú finnur allt i Playa Del Carmen.
Er þetta aðeins hluti af því fjölmörgu í þessu
stórbrotna umhverfi sem heillar ferðamanninn.
Rétt utan við ströndina er svo næst stærsta
kóralrif heims með öllum sínum litaafbrigðum
og ótrúlegum fjölda fiska í öllum regnbogans
litum.
Við bjóðum uppá glæsilegt 4*hótel og allt
innifalið, yfir 40 atriði