Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 10.12.2016, Page 14

Fréttatíminn - 10.12.2016, Page 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10.desember 2016 Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Vildís: „Það myndast sterk tengsl milli okkar og fólksins sem við fylgjum. Við förum fyrst í vitjun heim til þeirra þegar barnið er viku til hálfsmánaðar gamalt, og kom- um svo aftur stuttu síðar. Eftir að við höfum heimsótt fólkið tvisvar, mætir það reglulega með barnið til okkar á heilsugæsluna. Á þeim tíma kynnumst við aðstæðum þess vel.“ Ungbarnavernd á Íslandi er eitt af því fáa í heilbrigðiskerfinu sem flestir eru sammála um að virki vel. Íslendingar hafa í áraraðir verið með eina lægstu tíðni ungbarna- dauða í heiminum. Það er meðal annars vegna þess að foreldrar og nýfædd börn þeirra njóta, sér að kostnaðarlausu, aðstoðar svo sem heimavitjana skömmu eftir fæðinguna og fá regluleg samtöl við fagfólk á heilsugæslunni þar til barnið er fjögurra ára gamalt. Þeir sem starfa í ungbarnavernd, og Fréttatíminn hefur rætt við, eru uppteknir af því að brýna fyr- ir fólki að úrræðið sé ekki bara eftirlit, eins og það var einu sinni kallað, það sé umfangsmeira og í því felist einnig víðtæk ráðgjöf um þau mál sem upp koma þegar barn kemur í heiminn. Í heimavitjun- um sé farið yfir ýmis öryggismál inni á heimilum og hjúkrunar- fræðingarnir reyna að skima fyr- ir slysagildrum. Foreldrum sé líka veitt ráðgjöf um svefnöryggi barna. Þær Vildís og Erna kannast vel við eldfima umræðu um Efra- Breiðholtið og vilja ekki á nokkurn hátt segja að hverfið sé verra en önnur hverfi í borginni. Þar búa fleiri innflytjendur en í flestum öðrum hverfum borgarinnar og þar eru fleiri sem þurfa félagslegan stuðning. Það þýðir ekki að fólkið sé öðruvísi. Vildís: „Öllum þykir vænt um börnin sín og það skiptir ekki máli hvar fólkið býr. Vandamálin hér eru ekkert endilega fleiri, en þau eru hugsanlega öðruvísi en í öðr- um hverfum.“ Erna: „Hinsvegar eru fordómar út- breiddir og ég vona að við séum með minni fordóma en margir aðr- ir, því við sjáum svo margt jákvætt og flott í starfinu.“ Í Fella- og Hólahverfi eru 8.500 íbúar og þeim fæðast um 150 börn á ári. Erna segir að þær stöllur kynnist nýbökuðum mæðrum af fjölbreyttum uppruna en stærsti hluti innflytjenda í Breiðholtinu sé frá Austur-Evrópu. Vildís segist að mörgu leyti vera hrifin af háttarlagi þeirra innflytjenda sem hún hefur kynnst varðandi komu nýs barns í fjölskylduna. Vildís: „Við verðum að setja okk- ur inn í siði og hefðir hjá fólki en þær eru ólíkar eftir því hvaðan það kemur. Sem dæmi eru margir af nepölskum uppruna í Breiðholtinu. Við höfum kynnst nokkrum þeirra og séð að þau hafa serimóníur sem eru talsvert frábrugðnar því sem við eigum að venjast. Hjá þeim er algengt að móðirin haldi alfar- ið til í rúminu fyrstu dagana eftir Þær Erna Bjargey Jóhannsdóttir og Vildís Bergþórsdóttir vinna við að skoða nýfædd börn og fylgjast með þeim dafna. Þær starfa við ungbarnavernd á heilsugæslunni í Efra-Breiðholti og kynnast uppeldisaðferðum sem eru afar ólíkar eftir uppruna foreldranna. Oft hrifnar af aðferðum innflytjenda Þær Vildís Bergþórsdóttir og Erna Bjargey Jóhannsdóttir kynnast því vel hvernig fólk af ólíku þjóðerni hugsar um ungbörn sín. Þær segja hefðir útlendinga oft skemmtilegar og talsvert frábrugðnar þeim íslensku. Mynd | Rut „Öllum þykir vænt um börnin sín og það skiptir ekki máli hvar fólkið býr. Vandamálin hér eru ekk- ert endilega fleiri, en þau eru hugsanlega öðruvísi en í öðrum hverfum.“

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.