Fréttatíminn - 10.12.2016, Qupperneq 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10.desember 2016
eru ekki einstakir atburðir á
margra ára fresti heldur ein samfelld
saga af óeirðum í heila öld. Það verð-
ur ákveðinn veldisvöxtur í mótmæl-
unum frá 1968 og þá fjölgar þeim og
þau verða meiri með hverju árinu.“
Unnar segir táknræna staði oft-
ast vettvang aðgerðanna. „Svo sem
Stjórnarráðið, Alþingishúsið og
Austurvöll og í sjálfstæðisbaráttunni
voru líka ítrekaðar aðgerðir á Þing-
völlum og við Reykjavíkurhöfn.”
Á sýningu Unnars í Listasafni ASÍ
fyrir tveimur árum, valdi hann ljós-
myndir sem sýndu verksummerki
á vettvangi óeirðanna, eftir að þau
höfðu lognast útaf.
„Ég safnaði saman myndum úr
opinberum gagnabönkum sem safn-
að var, til að sakfella borgara fyrir
einhverskonar brot gegn valdstjórn-
inni. En svo með tímanum kemur
hefnd heimildarinnar og hún felst
í því að myndinar verða einu sjón-
rænu heimildirnar um að þessir
atburðir hafi átt sér stað. Því það
er alltaf málað yfir sletturnar og
skipt um gler. Mér finnst áhugavert
hvernig heimildin snýst í höndun-
um á valdinu. Valdið safnar þannig
heimildum sem gjaldfellir það því
með tímanum felst umsnúningur-
inn í því hver raunveruleg ástæða
óeirðarinnar var,“ segir Unnar.
Hann vísar í að í stjórnsýslulögum
sé sérstök meðalhófsregla sem ætluð
er sem áminning til valdsins. „Því
valdið fer líka fram úr sér og þarf að
passa sig.”
Bókina Þættir úr náttúrusögu
óeirðar má nálgast í Mengi og
Harbinger, auk verslunum helstu
listasafna höfuðborgarinnar.
9. maí, 1965. Að lokinni Keflavíkurgöngu var gerður aðsúgur að Jóhannesi úr
Kötlum er hann tók upp á því að lesa upp Sóleyjarkvæði. Höfundur: óþekktur.
21. janúar, 2009. Fjölmargir mótmælafundir voru haldnir reglulega á Austurvelli
haustið 2008, eftir bankahrun. Eftir áramótin, þegar þingið kom saman á ný eftir
jólafrí, færðist meiri harka í mótmælin. Á þessari mynd sjást mótmælendur sem
var heitt hamsi og höfðu fært sig frá Austurvelli að Þjóðleikhúsinu. Mynd: Goddur
24. apríl, 1970. Átök í menntamálaráðuneytinu. Þann 20. apríl höfðu íslenskir
stúdentar ráðist inn í sendirráð Íslands í Stokkhólmi og tekið það yfir. „Stúdenta-
bylting“ var skrifað í blöðin en námsmennirnir mótmæltu bágum kjörum sínum
í útlöndum vegna gjaldeyrishafta og skorts á námslánakerfi. Nokkrum dögum
síðar réðust nokkrir mótmælendur inn í menntamálaráðuneytið í Reykjavík til
að berjast fyrir bættum kjörum námsmanna. Mótmælendurnir settust þar niður
þar til lögregla handtók þau og flutti af vettvangi.
12. júní, 1913. Reykjavíkurhöfn. Liður
í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga var
barátta um íslenskan fána. Að morgni
fimmtudags 12. júní 1913 reri 26
ára verslunarmaður að nafni Einar
Pétursson báti í Reykjavíkurhöfn með
hvítbláinn við hún. Vildi þá svo til að
sjóliðar Danska varðskipsins Islands
Falk stöðvuðu för Einars og skipherr-
ann gerði fánann upptækan. Mynd:
póstkort.
29. júní, 1907. Þingvallarfundurinn
var fjölmennasti fundur sem haldinn
hafði verið frá upphafi frelsisbarátt-
unnar fyrir sjálfstæði Íslands. Mynd:
póstkort.
VIÐ SÉRHÆFUM OKKUR Í
DEMANTSHÚÐSLÍPUN
GÓÐUR ÁRANGUR
OG GOTT VERÐ
HVERNIG KEMUR ÞÚ UNDAN SÓLINNI!
AF HVERJU AÐ SÆTTA SIG VIÐ SÓLASKEMMDIR OG
ÓTÍMABÆRAR LITABREYTINGAR, VIÐ GETUM LAGAÐ
ÁSTAND HÚÐARINNAR
RAUÐUR ÞEGAR HEITT ER
OG BLÁR ÞEGAR KALT ER?
ÞAÐ ER HÆGT AÐ FJARLÆGJA
HÁRÆÐASKEMMDIRNAR
HÁRÆÐASLITSMEÐFERÐIR :
Við höfum fjármagnað margra milljóna króna
hljóðbylgjutæki og eina tækið sinnar tegun-
dar á Íslandi sem sérhæfir sig í að fjarlægja
allt háræðaslit í andliti með sérhæfðum
hljóðbylgjum sem þurrka upp blóðprótein í
skemmdum háræðum og lokar þeim punkt
fyrir punkt. Það krefst stöðugrar og mikillar
nákvæmi. Þessar sérhæfðu hljóðbylgjur
loka 100% háræðastjörnum, háræðasliti,
blóðblöðrum ofl.í andliti, hálsi, bringu og
höndum. Oftast þarf 3-4 meðferðir til að
loka þeim endanlega en eftir 3ju meðferð
eru háræðaslitsmeðferðirnar (á sama
meðferðarsvæði) fríar.
DEMANTS-HÚÐSLÍPUN:
Húðslípun vinnur á ótímabærri öldrun
húðar, sólarskemmdum, litabreytingum og
öldrunar-blettum.og örum eftir bólur, ójafnri
og óhreinni húð, Blóð- og næringarflæði til
húðfrumna eykst sem stuðlar að heilbrigðari
og unglegri húð.