Fréttatíminn - 10.12.2016, Side 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10.desember 2016
undur sér með flókin tækniatriði
skáldsagnaformsins í haganlega út-
hugsuðum fléttum. Sagan hefst á því
að sveitastrákurinn Einar er kynntur
til leiks en smám saman tekur Guð-
rún, eiginkona Einars, frásögnina
yfir og skuggarnir sem fylgdu henni
á unglingsárum eru orðnir að fyr-
irbæri sem nýútskrifaðir unglækn-
ar og læknavísindin takast á við.
Hugarheimur Guðrúnar leysir af
hólmi raunsannar lýsingar og frá-
sagnir af hversdagslífi fólks í sveit-
um og mönnum til sjós. Angela leik-
ur sér fimlega og á úthugsaðan hátt
með minningabrot sem vakna þegar
myndaalbúmi er flett. Minningar og
hugleiðingar Einars birtast lesend-
um í skáletruðum textabrotum í lok
hvers kafla. Aðalsmerki bókarinn-
ar verður þessi glíma við möguleika
skáldsagnaformsins og þannig verð-
ur til slungið bókmenntaverk.
Sérstæð og vönduð skáldsaga
Ekki er hægt að láta hjá líða að gera
málnotkun höfundar skil, því mál-
snið spænskunnar sem Angela beitir
fyrir sig er í senn afar fágað ritmál og
hversdagsmál samtímans, þar sem
mikið ber á samtvinnun margbrot-
ins orðaforða og fjölbreytni í stíl-
brigðum. Samhliða raunsæislegu
yfirbragði fléttast ósagður leyndar-
dómur saman við eins og um splitt-
aðan stálvír væri að ræða. Hver
persóna bókarinnar vísar til skynj-
unar utan eigin tilveru, tilvistar
handan við veruleikann. Hún getur
jafnt búið í marglesnum Íslendinga-
sögnum sem Guðrún geymir í kistli
sínum eða í hugarfylgsnum eða
reynsluheimi sögupersónunnar sem
lesandinn hefur ekki beinan aðgang
að en liggur hvarvetna til grundvall-
ar og myndar eins konar baksvið
sem myndaalbúmið geymir.
Hér er á ferðinni ein af sérstæðari
skáldsögum síðustu ára og ein sú
vandaðasta sem ég hef lesið í mörg
ár og eru þær þó allnokkrar. Sagan
er í senn sögð af fádæma innsæi
og þekkingu á sögu, menningu og
mannlífi á Íslandi. Það staðfesti dr.
Enrique Bernárdez, prófesor við
Complutense-háskólann í Madrid,
sem þýtt hefur fjölda íslenskra bók-
menntaverka yfir á spænsku, á
bókakynningu í Madrid í október
sl., þegar hann sagði að verki Ang-
elu væri best lýst sem íslenskri skáld-
sögu, þótt hún sé skrifuð á spænsku.
Fyrir áhugasama er bent á að bók-
ina má nálgast á Amazon, Kindle og
sem ebook (PDF). Forsíðu bókarinn-
ar prýðir mynd eftir Eggert Péturs-
son málara.
Heimildir má finna
á vefsíðu Hugrásar.
Í húsum við Tjörnina eru
málverk á veggjum og
litríkar ábreiður, en skyr,
harðfiskur og blóðmör á
heimili þeirra hjóna að
Álftavatni. Eldhræringar,
óveður, tilkomumiklir
fjallgarðar og beljandi
brim ramma svo frásögn-
ina inn í skærum litum.
Mynd | Hari
STÓRVERSLUN
SMÁRATORGI
VERÐDÆMI
DÖMU & HERRAFÖT
bolir 1.990,-
skyrtur 5.990,-
buxur 8.990,-
regnbuxur 2.990,-
softshellbuxur 8.990,-
fóðraðar buxur 6.990,-
snjóbuxur 9.990,-
flíspeysur 3.990,-
softshelljakkar 7.990,-
jakkar 5.990,-
warmloft jakkar 7.990,-
úlpur 14.990,-
fóðraðar kápur 13.990,-
BARNAFÖT
flíspeysur 3.490,-
softshelljakkar 6.990,-
softshellbuxur 6.990,-
snjóbuxur 9.990,-
fóðraðar buxur 6.990,-
regnbuxur 2.990,-
úlpur 9.990,-
fóðraðar kápur 9.990,-
OPIÐ
VIRKA DAGA 11–18
LAUGARDAGA 11–17
SUNNUDAGA 12–16
HEIMAKÆR
Ný kósífatalína fyrir alla fjölskylduna
Toppur
3.490 kr
Sloppur
7.690 kr
Draumur rúmföt
stærð140x200
9.990 kr
LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
TAKTU ÞÁTT Í AÐ BYGGJA
BRUNNA Í AFRÍKU
ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK!
SENDU HJÁLP NÚNA MEÐ ÞVÍ AÐ
- greiða valgreiðslu í heimabanka – 2500 kr.
- hringja í söfnunarsíma 907 2003 – 2500 kr.
- leggja til framlag á framlag.is
- gefa gjafabréf á gjofsemgefur.is
- leggja inn á söfnunarreikning okkar
0334-26-50886, kt. 450670-0499
PIPAR\TBW
A - SÍA - 165297