Fréttatíminn - 10.12.2016, Síða 52
Júlía Margrét Einarsdóttir fetar í fótspor föður
síns, rithöfundarins Einars Kárasonar, og skri-
far skáldsögur. Hann sá snemma að hún hafði
sjálfstraustið sem þarf til að vera rithöfundur,
en sjálfur þarf hann stundum að vinna sér inn
sjálfstraust í skrifum sínum.
Aldrei með nefið
ofan í skrifum
hvor annars
Lík en samt ólík Einar og Júlía eru náin feðgin og mjög svipað andlega innréttuð. Þau eru hins vegar mjög ólíkir höfundar. Mynd | Hari
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Feðginin Einar Kárason og Júlía Margrét Einars-dóttir eru bæði skáld. Það var alls ekki meðvit-uð ákvörðun hjá Júlíu að
feta fótspor föður síns, hún hefur
einfaldlega alltaf haft unun af því
að skrifa og það lá því beinast við að
fara þessa leið. Þau reyna samt að
vera aldrei með nefið ofan í því sem
hitt er að gera, en Júlíu finnst fínt að
hafa pabba innan seilingar ef hún
vill bera eitthvað undir hann.
„Mér hefur alltaf fundist rosa
gaman að segja sögur og líður vel
með það. Þegar ég var í grunnskóla
voru sögutímar þar sem við áttum
að skrifa sögur. Ég skrifaði langa
framhaldssögu af flugbangsa, sem ég
á ennþá til. Ég sökkti mér algjörlega í
skrifin og talaði ekki við skólafélaga
mína á meðan. Þetta var eini tím-
inn sem ég talaði ekki í. Svo þróað-
ist þetta bara eftir því sem ég eltist
og fór að komast í tölvu,“ segir Júlía
um upphaf rithöfundarferils síns þar
sem við sitjum í stofunni heima hjá
Einari, umlukin bókum sem hillurn-
ar svigna undan.
Svipað andlega innréttuð
„Ég áttaði mig frekar fljótt á því að
mig langaði að skrifa og verða rithöf-
undur. Þegar ég hugsaði um framtíð-
ina þá fannst mér rithöfundarstarfið
temmilega venjulegt starf. Ég ætlaði
að verða kafari eða rithöfundur, en
ég tók smá tíma í að ákveða mig,“
bætir hún við. „Hún sá í hyggindum
sínum fljótt að fyrst ég gæti þetta þá
færi hún létt með þetta,“ skýtur Ein-
ar inn í og brosir til dóttur sinnar.
Það var því ekki hann sem atti henni
út í skrifin.
„Þetta er fjórða dóttirin á heim-
ilinu og henni var ekkert meira ýtt
út skrifin heldur en hinum þremur.
En við erum auðvitað þetta skyld
og svipað andlega innréttuð þannig
það er ekki skrýtið að þetta liggi fyr-
ir henni, fyrst það lá fyrir mér. Það
er ekkert skrýtið að þetta erfist að
einhverju leyti,“ segir Einar, en sjálf-
ur sendi hann frá sér bókina Passíu-
sálmarnir fyrir skömmu, sem hefur
fengið glimrandi góða dóma. Júlía
er hins vegar að leggja lokahönd á
skáldsögu sem kemur út á næsta ári.
Fann sjálfstraustið í Ameríku
Einar segir Júlíu reyndar hafa sagst
ætla að verða leikkona þegar hún
var 12 ára, en mamma hennar benti
henni á að stundum væri lítið að
gera í leiklistinni. Leikarar þyrftu að
sitja og bíða eftir því að leikstjórar
hefðu samband. Júlía sagði það lítið
vandamál, enda myndi hún bara
sjálf skrifa leikrit meðan hún biði.
„Þá hugsaði ég með mér að hún
hefði allavega sjálfstraustið sem
þarf í rithöfundafagið. En það er
mjög nauðsynlegt. Ég hef sjálfur oft
þurft að vinna mér inn sjálfstraust.
Ég man til dæmis þegar ég var að
byrja að skrifa Djöflaeyju-trílógíuna
og við fjölskyldan bjuggum í Dan-
mörku, þá háði það mér að ég hafði
ekki hitt ákveðna týpu af fólki og ég
hafði aldrei komið til Ameríku og
bækurnar áttu að vera innblásnar af
Ameríku. Ég djöflaðist við að skrifa
en var aldrei ánægður. Svo fattaði ég
að ef ég færi til Ameríku þá myndi ég
kannski fá nógu mikið sjálfstraust.
Og það var nákvæmlega það sem
gerðist. Ég notaði ekkert úr ferðinni
en ég fann það þegar ég kom heim að
ég réð miklu betur við efnið,“ segir
Einar.
Tuskudýr sem sárabætur
Júlía hefur alltaf verið mikil pabba-
stelpa og henni fannst frekar leiðin-
legt hvað hann þurfti að ferðast
mikið út af vinnunni þegar hún var
lítil. „Hann bætti mér það reyndar
alltaf upp með því að kaupa handa
mér bangsa, en ég elskaði tusku-
dýr og lék mér eiginlega ekki með
neitt annað. Einn var alltaf í algjöru
uppáhaldi en það er blettatígur sem
pabbi keypti handa mér í París þegar
ég var þriggja ára og heitir „Hugga-
kisa““ segir Júlía en blettatígurinn
dró nafn sitt af hlutverki sínu, sem
var að hugga.
„Hún hefur alltaf verið frekar
hlynnt foreldrum sínum, það verð-
ur nú að segjast. Við áttum mjög
snemma skap saman og ég las fyr-
ir hana uppáhaldsbækurnar mínar
frá því ég var krakki. Henni fannst
það frábærlega skemmtilegt. Svo
voru alltaf miklir leikir í gangi þegar
við löbbuðum saman á leikskólann
og þá voru líka sagðar sögur,“ seg-
ir Einar.
Bannaði Reimleika
„Ég er náttúrulega örverpi þannig
naflastrengurinn hefur kannski ver-
ið lengst að slitna hjá mér. Ég eyði
rosa miklum tíma hér og upplifi mig
alltaf sem yngsta barn. Jafnvel þó að
ég sé að verða þrítug á næsta ári, þá
finnst mér ég alltaf vera tíu ára þegar
ég er í Barmahlíðinni,“ segir Júlía og
hlær þegar hún rifjar upp nýlega
sögu af því þegar pabbi hennar hafði
vit fyrir henni svo henni liði ekki illa.
„Ég er rosalega myrkfælin og
hef alltaf verið. Og þó að ég sé full-
orðin og löngu flutt að heiman þá
hefur alltaf verið passað vel upp
á mig þegar ég kem í heimsókn í
Barmahlíðina. Ég hef unnið í Þjóð-
leikhúsinu í nokkur ár og finnst
húsið æðislegt, en fæ stundum
óþægindatilfinningu þegar ég er
þar ein á ferli a kvöldin og mamma
og pabbi vita það. Um daginn var
ég heima hjá þeim þegar þáttur-
inn Reimleikar byrjaði og ég ætl-
aði að horfa. Þá var verið að fjalla
um draugagang í Þjóðleikhúsinu
svo pabbi slökkti á sjónvarpinu. Ég
sagðist hafa ætlað að horfa en hann
sagði: „Það kemur ekki til mála Júlía
mín, þú færð bara martraðir og sefur
illa elsku vina.““
Það fer því ekki á milli mála að
Einar lítur ennþá á Júlíu sem litlu
stelpuna sína, þó hún sé að verða
þrítug. „Mér finnst örstutt síðan
hún var pínulítil. Hún var alltaf litla
systirin og kunni að notfæra sér það.
Eldri systurnar voru voða hrifnar af
henni,“ segir Einar og Júlía grípur
orðið: „Þær voru allar frekar spennt-
ar fyrir því að eignast litla systur, en
ég hefði aldrei tekið slíkt í mál. Ég
vissi enga martröð verri en að ein-
hver fengi meiri athygli en ég. Það
var því mjög passlegt að ég væri
yngst.“ Þau hlæja bæði og vita að
þetta er rétt.
„Þeir einu sem hafa verið yngri
eru kettirnir,“ bætir Einar við,
en þau hafa alla tíð verið með að
minnsta kosti einn kött á heimil-
inu. Nú eru þeir tveir; Jón Stúart
og Dúlsínea, sem er reyndar tækni-
lega séð í eigu Júlíu, en hafa dvalið í
Barmahlíðinni í tvö og hálft ár. Það
var neyðarúrræði þegar Júlía var í
vandræðum með leiguhúsnæði. „Ég
fæ þau aldrei aftur. Mér var gert það
ljóst eftir tvær vikur að þetta gengi
vel og að ég fengi aldrei að taka þær
aftur héðan.“
Handritaskrif í New York
En það er kannski ágætt að kettirn-
ir séu í góðu yfirlæti í Barmahlíð-
inni því eftir áramót mun Júlía fara
lengra í burt frá fjölskyldunni en hún
hefur nokkurn tíma gert.
Hún er nefnilega á leiðinni til New
York þar sem hún ætlar að læra sjón-
varpsþátta- og kvikmyndahandrita-
skrif í New York Film Academy. En
áður en hún fer út mun hún skila
inn handriti að fullvaxta skáldsögu
til bókaforlags, sem gefur bókina út
á næsta ári. Hún stefnir á að fara í
gegnum ritstjórnarferlið samhliða
náminu, en hún telur það hafa já-
kvæð áhrif að skipta um umhverfi.
Einar tekur undir það, enda gekk
honum sjálfum ekkert að skrifa
fyrstu skáldsöguna, Þetta eru asnar
Guðjón, fyrr en hann flutti til Dan-
merkur.
„Hún skilur mig eftir með
kettina,“ segir hann og brosir. Í sum-
ar teygðist þó aðeins á naflastrengn-
um hjá Júlíu þegar hún fór í tveggja
mánaða Evrópureisu með kærast-
anum sínum. „Mér fannst það alveg
skelfilegt. Ég var alltaf að hringja
heim og pabbi var duglegur að segja
mér fréttir af kisunum. Mér fannst
það mjög mikilvægt. En ég ætla nú
að fá pabba og mömmu í heimsókn
til New York,“ segir Júlía sem kvíð-
ir aðskilnaðnum augljóslega, þó að
hún sé spennt að hefja nýjan kafla
í lífi sínu.
Kvíðin fyrir frumsýningu
Einar og Júlía hafa einu sinni unnið
saman að verkefni, en þá fékk hún
að túlka sögupersónur úr bók hans,
Skálmöld, í samnefndri sýningu í
á baðstofuloftinu í Landnámssetr-
inu í Borgarnesi. Skálmöld var síð-
asta bókin af fjórum sem fjallaði
um Sturlungasögu og í henni var
mikið af kvenpersónum. „Kjartan
Ragnarsson fékk þá hugmynd að
dóttir Einars tæki þátt í sýningunni.
Ég er náttúrulega yngst og athyglis-
sjúkust og finnst rosa gaman þegar
fólk hlustar á mig blaðra, þannig það
lá beinast við að það yrði ég,“ segir
Júlía hreinskilin.
„Maður fer yfir ákveðinn þröskuld
í svona verkefni. Það vex mörgum
það í augum að koma inn í stofu þar
sem eru 80 manns og ætla að tala
upp úr sér í tvo klukkutíma. Ég var
sjálfur mjög kvíðinn þegar ég gerði
þetta fyrst, en af því mér tókst þetta
þá finnst mér ekkert mál að halda
ræður.“
Júlía fann einnig fyrir þessum
kvíða á frumsýningunni. „Þá var ég
ákveðin í því að ég ætlaði að opna
dyrnar og segja fólki að því miður
yrði engin sýning. Mér fannst engin
leið til þess að ég gæti haldið þetta
út. Ég var svo stressuð, sem er mjög
skrýtið því ég á að auðvelt með að
koma fram.“
Ólíkir höfundar
Júlía segir þau feðginin mjög ólíka
höfunda, með ólíkan stíl og vinna
með ólíkt efni. „Ég áttaði mig á
því þegar ég byrjaði að skrifa af
alvöru, í meistaranámi í ritlist uppi
í HÍ, að mig langaði oft að skrifa á
ákveðinn hátt og langaði að setja mig
í einhverjar stellingar. Mér finnst til
dæmis pabbi hafa rosalega flottan
stíl og er mjög hrifin af hans skrifum.
Ég væri stundum til í að geta skrifað
eins og hann, en ég áttaði mig á því
þegar ég fór að þróast sem höfundur
að ég er aldrei jafngóð og þegar ég
geri nákvæmlega það sem mér finnst
réttast að gera. Og útkoman er gjör-
ólík pabba verkum. Ég hef því aldrei
speglað mig í honum þó við séum
bæði skáld.“
viðtal. 4 | helgin. LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2016
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is • Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn:
Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. helgin. er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.