Fréttatíminn - 16.12.2016, Page 1
Bók Björns Jóns Bragasonar
verður líklega í jólapökkum
starfsmanna Samherja, en bókin
fjallar einmitt með gagnrýnum
hætti um rannsókn Seðlabanka
Íslands á Samherja
vegna gjaldeyris-
viðskipta.
Valur Grettisson
Valur@frettatiminn.is
„Jú, Samherji keypti upplag af
okkur, og ég geri nú ráð fyrir því
að þeir gefi bókina í jólagjöf,“ segir
útgefandinn Jónas Sigurgeirsson,
sem á og rekur útgáfuna Almenna
bókafélagið, en Samherji
keypti upplag af nýrri
bók sagnfræðingsins
Björns Jóns Bragasonar;
Gjaldeyriseftirlitið – vald
án eftirlits?
Bókin hefur ratað
nokkuð í fréttir undan-
farið en hún fjallar að
drjúgum hluta um rann-
sókn Seðlabanka Íslands
gegn Samherja fyrir
nokkrum árum síðan,
vegna gruns um brot á
gjaldeyrisviðskiptum. Rannsókn á
brotunum var látin niður falla, en
forstjóri Samherja, Þorsteinn Már
Baldvinsson, hefur kært starfsfólk
Seðlabankans fyrir rangar sakar-
giftir í tengslum við rannsóknina.
Eins var greint frá því að einstak-
lingar tengdir svokölluðu Aserta-
máli hafi gert slíkt hið sama.
Jónas vill ekki gefa upp hversu
mörg eintök Samherji keypti af
bókaútgáfunni, en ef markmiðið
er að gefa starfsfólki bókina í jóla-
gjöf má slá því á föstu að eintökin
séu nær þúsund talsins. Hafi bókin
verið keypt á markaðsvirði má gera
ráð fyrir því að Samherji hafi greitt
hátt í þrjár milljónir fyrir jólagjöf-
ina.
Björn Jón Bragason er ánægð-
ur með viðtökur bókarinnar en
segir kaup Samherja á bókinni
ekki rýra trúverðugleika hennar á
neinn hátt. „Samherji styrkti ekki
útgáfu bókarinnar, það gerði það
enginn. Ég er sjálfstætt starfandi
fræðimaður og skrifa bara það sem
ég hef áhuga á,“ útskýrir Björn Jón
sem hefur ekki síður vakið athygli
landsmanna fyrir framgöngu sína
sem framkvæmdastjóri Samtaka
kaupmanna og fasteignaeigenda
við Laugaveg og baráttu þeirra
gegn lokun Laugavegar fyrir um-
ferð.
Ekki náðist í forsvarsmenn Sam-
herja þegar eftir því var leitað.
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
90. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 16.12.2016
56
Þótt enginn sé jólasnjórinn hefur jólaundirbúningurinn sett svip sinn á bæinn. Á skautasvellinu á Ingólfstorgi leika börnin sér á milli þess sem þau
fylgja foreldrum sínum í búðir. Framundan er stærsta verslunarhelgi ársins, síðasta helgin fyrir jól. Þorláksmessa er á föstudaginn í næstu viku.
Mynd | Hari
Drengur í stúlkna-
veröld Alexander
Sigfússon var
fyrsti strákurinn
sem útskrifaðist
úr förðunar-
skóla
Glæsilegar
jólagjafir
michelsen.is
Með kæti fimmtu Kringlan fékk.
Hvar? Rétt fyrir neðan.
Þú gerir gjafa-stöðutékk,
og geymir hleðst á meðan.
Í Kringlunni er ein af 13
hraðhleðslu stöðvum ON.
Gefðu töfrandi stund í jólagjöf!
Gjafakort
Borgarleikhússins
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gat ekki lifað af kennara-
launum Anna Lára Páls-
dóttir hætti að kenna og
fór í ferðaþjónustuna
Hvað vilja
börnin í skóinn?
Annáll
íslenskra
hneyksl-
ismála
frá Hruni
14 32
amk fylgir Fréttatímanum
Bók Björns
Jóns hefur
fengið mikla
athygli vegna
efnistaka.
Samherji keypti upplagið
KRINGLUNNI ISTORE.IS
Phantom 4 Pro
Frá 229.990 kr.
Osmo Mobile
Frá 49.990 kr.
Við erum leiðandi í verðlækkunum á DJI vörum
á íslandi og bjóðum uppá sambærileg verð og
þú finnur hjá erlendum netverslunum, þar að
auki er 2ja ára ábyrgð og góð þjónsta.
iStore er viðurkenndur sölu- og dreingaraðili
DJI á íslandi.
Vaxtalaus kortalán til allt að
12 mánaða á öllum drónum.*
* 3.5% lántökugjald
Næsta kynslóð frábærra
dróna var að lenda!