Fréttatíminn - 16.12.2016, Page 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
Viðskipti Holland, Lúxemborg og
Kýpur eru ofarlega á lista Oxfam
yfir verstu skattaskjól í heimi.
Samskip, Alcoa á Íslandi og Sam-
herji stunda viðskipti í gegnum
þessi ríki. Skattastefna, eins og
íslensk stjórnvöld hafa verið með
og leiddi meðal annars til samn-
inga við Alcoa á Reyðarfirði, fær
falleinkunn í skýrslunni.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Fyrirtæki á Íslandi stunda viðskipti
í nokkrum af verstu skattaskjólum
heims, samkvæmt lista sem alþjóð-
legu hjálparsamtökin Oxfam birtu
í nýrri skýrslu þann 12. desember.
Í skýrslunni er fjallað um áhrif
skattaskjóla á skatttekjur í heim-
inum og útskýrt af hverju tiltekin
fimmtán ríki eru verstu skattaskjól
heimsins en eyjan Bermúda er í
efsta sæti. Oxfam tekur sem dæmi
að bandarísk fyrirtæki hafi komið
80 milljörðum dala í skattaskjól á
Bermúda árið 2012.
Eitt af því sem vekur athygli er að
Evrópusambandslönd eins og Hol-
land og Írland eru í þriðja og sjötta
sæti á listanum, fyrir ofan ríki eins
og Ermarsundseyjuna Jersey og
Bresku Jómfrúareyjar. Þá er Kýpur
í tíunda sæti en útgerðarrisinn Sam-
herji hefur um árabil stundað
útgerð í Afríku í gegnum fyr-
irtæki á Kýpur. Ástæðan
fyrir stöðu Hollands á list-
anum er sú að hollensk yf-
irvöld bjóða fyrirtækjum
og fjárfestum upp á sér-
stök úrræði í skattamálum
til að fá þá til að vera með
starfsemi í landinu auk
þess sem engan
tekjuskatt
þ a r f að
greiða
þar, sam-
kvæmt
Oxfam.
Einn af þeim íslensku kaupsýslu-
mönnum sem notast hefur við
fyrirtæki í Hollandi í gegnum tíð-
ina er Ólafur Ólafsson í Samskip-
um en eignarhald hans á þessu
stærsta skipafélagi Íslands, og sjö-
unda stærsta fyrirtækis Íslands út
frá tekjum, er í gegnum hollenskt
eignarhaldsfélag, Samskip Holding
BV. Samskip er með tæplega 90
milljarða króna tekjur á ári og
greiðir út arð sem lendir í Hollandi.
Eignarhaldsfélag Ólafs í Hollandi
fékk til dæmis einn milljarð króna í
arð á árunum 2012 og 2013. Þá not-
aði Ólafur einnig félag í Hollandi
til að halda utan um hlutabréf sín í
Kaupþingi á árunum fyrir hrun og
fékk greidda tvo milljarða króna í
arð til þess á árunum 2006 og 2007.
Lúxemborg er í sjöunda sæti á
listanum en margir einstaklingar
og fyrirtæki á Íslandi hafa í gegn-
um árin notast við Lúxemborg í
viðskiptum. Ein af aðalástæðun-
um fyrir veru Lúxemborgar á list-
anum er, að því er Oxfam segir, að
„sönnunargögn bendi til þess að
miklum hagnaði hafi verið komið
þangað“ frá öðrum löndum. Þetta
er sérstaklega áhugavert í íslensku
samhengi þar sem eitt af álfyrir-
tækjunum sem er með starfsemi
á Íslandi, Alcoa á Reyðarfirði, hef-
ur greitt um 60 milljarða króna í
vexti af lánum sínum til móð-
urfélags síns í Lúxemborg á
síðustu þrettán árum. Slík
viðskipti eru kennd við
„þunna eiginfjármögnun“
þar sem hagnaði af rekstri
er skotið undan sem vöxtum.
Vaxtagreiðslurnar nema rúmlega
öllu bókfærðu tapi Alcoa á Íslandi á
þessu tímabili en vegna taprekstr-
ar hefur Alcoa aldrei greitt fyrir-
tækjaskatta á Íslandi.
Þrátt fyrir að Oxfam segi brýnt
að setja reglur til að bregðast við
þessari gerð viðskipta með reglu-
setningu þá gæti slíkt ekki gagn-
ast íslenskum stjórnvöldum til að
bregðast við háttsemi Alcoa þar
sem það er bundið í samninga rík-
isins við Alcoa að ekki megi banna
fyrirtækinu að draga vaxtagreiðsl-
ur frá tekjuskattsstofni sínum. Slíkt
frumvarp til að reyna að takmarka
þunna eiginfjármögnun liggur nú
fyrir til umræðu og samþykktar á
Alþingi Íslendinga.
Þarna er komið að öðru atriði sem
Oxfam gagnrýnir í skýrslu sinni: Að
stjórnvöld í löndum heimsins verði
að hætta að gera sérstaka skattalega
hagkvæma samninga við einstaka
fyrirtæki. „Hættið að bjóða skatta-
lega hagkvæma samninga. […] Allir
samningar eiga að vera með endur-
skoðunarákvæði til að koma í veg
fyrir gróða einkaðila til langs tíma
og skaða fyrir almenning.“
Ólafur Ólafsson, stjórnarfor-
maður Kjalars. Holland er
ofarlega á blaði yfir verstu
skattaskjól heims,
samkvæmt Oxfam, en
kaupsýslumaðurinn
Ólafur Ólafsson
hefur stundað
viðskipti á Íslandi
í gegnum Holland
um árabil.
Verstu skattaskjól
í heimi:
1. Bermúda
2. Cayman-eyjar
3. Holland
4. Sviss
5. Singapúr
6. Írland
7. Lúxemborg
8. Kúrasaó
9. Hong Kong
10. Kýpur
11. Bahama-eyjar
12. Jersey
13. Barbados-eyjar
14. Máritíus-eyjar
15. Bresku Jómfrúareyjar
Fyrirtæki í verstu
skattaskjólum heims
Í nýrri skýrslu hjálparsamtakanna Oxfam er fjallað sérstaklega mikið um þá alþjóðlegu meinsemd sem felst í því að
fyrirtæki flyti hagnað sinn til skattaskjóla til að losna við skatta. Bandarísk fyrirtæki fluttu til dæmis 80 milljarða dollara
til Bermúda árið 2012 og á Íslandi hefur álfyrirtækið Alcoa komið sér hjá greiðslu fyrirtækjaskatts með um 60 milljarða
vaxtagreiðslum til móðurfélags síns í Lúxemborg.
Sjávarútvegur „Þetta er hálfgerð
þegnskylduvinna að láta menn
vinna við að skila þessum afla á
land. Menn fá ekkert fyrir það,“
segir Valmundur Valmundsson,
formaður Sjómannasambands
Íslands, um VS-aflann svokallað
en samtökin hafa stefnt út-
gerðinni Þorbirni hf. í Grindavík
til að fá úr því skorið hvort aflinn
brjóti í bága kjarasamninga og
sjómannalög. Málið verður tekið
fyrir við Héraðsdóm Reykjaness
eftir áramót.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
VS-aflinn svokallaði rennur í Ver-
kefnasjóð sjávarútvegsins en
bróðurpartur af tekjum sjóðsins
rennur áfram til verkefna á veg-
um Hafrannsóknarstofnunar. Lög
um VS-aflann heimila skipstjóra
að ákveða að hluti aflans reiknist
ekki til aflamarks skipsins. Heim-
ildin takmarkast við hálft prósent
uppsjávarafla og fimm prósent af
öðrum sjávarafla. Valmundur segir
að sambandið hafi lengi reynt að fá
einhvern sjómann til að kæra út-
gerð vegna VS-aflans þar sem sam-
bandið getur ekki kært slíkt upp á
sitt eindæmi. Hann segir að ástæða
þess að samtökin stefni einungis
Þorbirni sé vegna þess að umrædd-
ur sjómaður starfi hjá þeirri útgerð.
„Við teljum að það eigi allavega
að gera upp við sjómennina á réttri
skiptaprósentu. Varðandi þennan
VS-afla þá fá sjómenn einungis gert
upp úr 20 prósent af aflaverðmæti,
sem ætti að vera 70 prósent. Við
viljum að sjómenn fái að fullu gert
upp úr þessum afla, eins og öðrum
afla. Útgerðin má koma með þetta í
land og sjómennirnir vinna aflann.
Samkvæmt lögum og kjarasamn-
ingum eiga menn að fá gert upp að
fullu úr öllu sem komið er á land,“
segir Valmundur.
Sjómenn stefna Þorbirni
Valmundur segir VS-aflann þegnskyldu.
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Aðeins 9.900 kr.
Notalegar og
hlýjar jólagjafir
Komdu í Dorma
TVENNUTILBOÐ
Dúnsæng og dúnkoddi
Sæng 140x200 cm. 85% smáfiður
og 15% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 9.900 kr
Koddi 50x70 cm. 70% smáfiður
og 30% hvítur andadúnn. 100% bómullarver.
Fullt verð: 4.900 kr.
Fullt verð samtals: 14.800 kr.
ÓTRÚLEGT
jólatilboð
Dúnsæng + dúnkoddi