Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016
foreldra um að bjóða upp á raun-
verulegan valkost við kirkjuferðir
úr skólum á aðventunni og var bent
á mig, sennilega vegna þess að ég
vann lengi við að búa til barnaefni
og hef reynslu í því að halda fyrir-
lestra og koma fram,“ bætir hún
við.
Þessari ósk hafi hún strax svarað
játandi, án mikillar umhugsunar,
„því mér finnst mikilvægt að þessi
valkostur sé til staðar þó ég hafi
ekki sett mig gegn því að mín börn
fari í kirkju með sínum skóla.“
Ljós í myrkrinu
Brynhildur segir að með því að
styðjast við Grýlu í dagskránni væri
tækifæri til þess að skoða jólahá-
tíðina, uppruna hennar og tilgang
með öðrum hætti en gert væri í
kirkjunni. Um leið væri jólahaldið
tengt við grundvallaratriði í menn-
ingunni, ekki aðeins Grýlu, heldur
líka fyrirbæri eins og jólasveinana
og jólaköttinn.
„Það eru fleiri þættir í okkar
menningu sem snúa að jólunum en
sá kristilegi og það er merkingar-
bært og hátíðlegt að minnast þeirra
á þessum árstíma. Grýlustundin er
vel að merkja ekkert hræðileg,“ bæt-
ir Brynhildur við brosandi, „held-
ur fjallar meira um það hvernig
myrkasta stundin er notuð til að
fagna ljósinu. Og kannski líka að-
eins um það af hverju okkur langar
stundum að vera hrædd og hvaða
tilgangi það þjónar. Myrkasta stund-
in er rétt áður en fer að birta á ný
og þannig getur Grýla verið boð-
beri ljóssins, einmitt af því hún er
svo myrk,“ segir Brynhildur Björns-
dóttir.
Nýleg „hefð“ í Reykjavík
Blaðamaður hefur kannað hjá
prestum og skólastjórnendum
í höfuðborginni hvernig kirkju-
heimsóknum hefur verið háttað
og hversu löng hefð sér fyrir skipu-
lögðum skólaferðum á aðventunni.
Síðast var spurt fyrir jólin 2014,
þegar umræðan um kirkjuferðirnar
stóð hvað hæst og með hvað mest-
um hita, og sögðu þá margir skóla-
stjórnendur að slíkar heimsóknir
hefðu verið lagðar af. Á móti sögð-
ust flestir prestar segjast fá skóla-
börn í heimsókn í kirkjur sínar í
skipulögðum skólaferðum. Prestar
töldu almennt að svona heimsókn-
ir hefðu tíðkast í 15-30 ár, en skóla-
stjórar voru með tölurnar nokkurn
veginn þarna á milli og töldu al-
mennt að svona heimsóknir hefðu
tíðkast í um tvo áratugi.
Almennt var talið að hefðin væri
ekki ýkja löng. Prestarnir nefndu 15-
20 ár sem áður segir, en dæmi voru
um í svörum þeirra við fyrirspurn
blaðamanns um að slíkar heim-
sóknir hefðu tíðkast í mun skemmri
tíma. Einnig voru dæmi um hið
gagnstæða. Magnús Þór Jónsson,
skólastjóri Seljaskóla, nefndi þriggja
áratuga hefð hér fyrir ofan. Það
stemmir við svör forvera hans um
að kirkjuferðirnar í Seljahverfinu
hefðu tíðkast frá því um 1980 og í
Bústaðasókn er hefðin raunar enn
lengri. Sóknarprestur sagði blaða-
manni að þar hefðu kirkjuheim-
sóknir á aðventunni tíðkast í hátt í
fimm áratugi.
Koma sem vilja
Einn sóknarprestur orðaði svar
sitt svo: „Þessar heimsóknir hafa
tíðkast í 15-20 ár eftir því hvaða
skóla er átt við. Þess ber að geta að
fyrir þann tíma tíðkaðist gjarnan
að prestar kæmu í skólann og yf-
irleitt voru það prestar Þjóðkirkj-
unnar sem kenndu kristin fræði
í íslenskum grunnskólum. En þá
var samstarf kirkju og skóla mik-
ið um kennslu í kristinfræðum og
fermingarfræðsla fór gjarnan fram
í skólunum.“
Af svörum presta má ráða að
mismunandi er hvort allur skólinn
komi saman eða einstakir árgangar
eða bekkir, þar sem þetta hefur
tíðkast. Einnig taka sumir fram að
þau börn komi ekki, sem það ekki
vilja. Aftur á móti er ekki annað á
prestum að heyra en að þeir taki á
móti skólahópum, og raunar leik-
skólahópum einnig á aðventunni.
Fengu „allt í einu“ hugmynd
„Svo virtist að margir kennarar og
skólar fengju allt í einu þessa hug-
mynd. Þetta er rannsóknarefni því
að ekki eru kirkjuheimsóknir á að-
ventu hluti af menningu íslenskra
grunnskóla – það er klárt,“ segir
einn skólastjóra í Reykjavík. Skóla-
stjórar töldu almennt að kirkjuheim-
sóknirnar tíðkuðust ekki lengur, þ.e.
þeir sem svöruðu blaðamanni, en þó
voru á því undantekningar.
Byrjaði rétt fyrir aldamót
Svör skólastjórnenda voru þó mis-
munandi og sumir nefndu ekki
hversu lengi svona heimsóknir
hefðu tíðkast, þótt þess hefði ver-
ið getið að ekki væri lengur farið í
kirkju á aðventu. Gjarnan vísaðu
skólastjórnendur í reglur borgar-
innar um samskipti skóla og kirkju
í því sambandi. Hins vegar hefðu
þessar heimsóknir alla jafna ekki
hafist fyrr en fyrir um það bil
tveimur áratugum, á tíunda ára-
tug síðustu aldar. „Þær voru ekki
tíðkaðar fyrir þann tíma. Síðan
varð aukning á þessum kirkjuferð-
um á þessari öld þegar kirkjan fór
að leggja áherslu á þessar ferðir
og þá var tekið á móti nemendum
með sérstakri dagskrá,“ segir einn
skólastjórinn.
Trúarsamkoma eða vettvangsferð?
„Um tíma var tekið á móti nemend-
um þannig að um eiginlegar trúar-
samkomur var að ræða. Eftir að um-
ræða og síðan reglur komu til um
kirkjuheimsóknir þá varð kirkju-
ferðin að vettvangsferð þar sem
kirkjan var sýnd og fræðsla veitt um
trúarsiði kristinna manna,“ bætti
sami skólastjóri við.
Margir skólastjórar greindu frá
því að svona ferðir hefðu almennt
verið farnar á aðventu, en þetta
hefði lagst af undanfarin ár. Einn
sagði að síðast hefði verið farið árið
2008, annar nefndi árið 2010 og
enn annar 2011.
Þar sem farið er til kirkju voru
jafnframt dæmi um að ákvörðun
um slíkar heimsóknir væri í hönd-
um einstakra bekkjarkennara.
Systkinin Hrafntinna Rán í 2. bekk og Unnsteinn Dýri í fyrsta bekk kynntu sér
Grýlu á bókasafni Seljaskóla undir handleiðslu Brynhildar Björnsdóttur.
Af svörum presta má ráða
að mismunandi er hvort
allur skólinn komi saman
eða einstakir árgangar
eða bekkir, þar sem þetta
hefur tíðkast. Einnig taka
sumir fram að þau börn
komi ekki, sem það ekki
vilja. Aftur á móti er ekki
annað á prestum að heyra
en að þeir taki á móti
skólahópum, og raunar
leikskólahópum einnig á
aðventunni.
mjúkt, safaríkt og bragðmilt
Jólin eru tími elskulegrar íhaldssemi þegar við viljum vera viss um
að allt sé eins og það á að vera. Þess vegna velja tugþúsundir
Íslendinga SS birkireykta hangikjötið á jólaborðið, því það er
mjúkt, safaríkt og bragðmilt.
Gleðileg jól!
www.ss.is
Fí
to
n
/ S
ÍA