Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 Hrakningar á jólum Fullkomin jól eru ekki endilega það sem gerir jólin ógleymanleg. Oft er það einmitt þegar smáatriðin fara úrskeiðis að hátíðirnar verða skemmtilegar. Erla Sigurlaug Sigurðardóttir ritstjorn@frettatiminn.is „Þetta er sagan sem er sögð hver einustu jól heima hjá okkur. Ég var nú bara nokkurra daga gamall þá en hef heyrt hana ansi oft og það er alltaf mikið hlegið,“ segir Guðni Sigurðsson sem fæddist þann 20. desember 1982 og man því sjálfur ekki beint eftir málsatvikum. Guðni var þriðja barn foreldra sinna og á meðan mamma hans var á fæðingardeildinni, með hann nýfæddan, sá pabbi hans um tvo eldri bræður hans, þá 3 og 10 ára, og sá um að undirbúa jólin. „Mamma kom ekki heim af fæðingardeildinni fyrr en á að- fangadag. Pabbi var þarna skilinn eftir einn með öll jólin á sínum herðum. Við vorum nýflutt og það var allt enn í kössum og út um allt. Pabbi hafði þarna þrjá daga til að klára flutningana, kaupa jólagjaf- ir, skreyta, græja jólamatinn og redda þessu öllu. Hann keypti jólagjafirnar á hálftíma og þær voru frekar handahófskenndar. Föðurafi minn, sem var virðuleg- ur karl sem gekk ávallt í jakka- fötum með hatt, fékk til dæm- is svartan háskólabol – og allt í þessum dúr. Hann sást aldrei í bolnum. Jólatréð fékk pabbi hjá Sölunefnd varnarliðseigna sem seldi notað dót frá Kananum. Það var víst hrikalegt, svo hrika- legt að mamma og pabbi hafa oft talað um að þau sjái eftir að hafa hent því! Mamma lýsir því sem risastórum pípuhreinsi með vír og hárum, einhvers konar skakkt prik með grænum flöskuburstum sem stóðu út úr, virkilega ljótt. En pabbi hengdi jólakúlurnar á það. Svo sat mamma og sagði pabba til þegar hann var að elda ham- borgarhrygginn og það heppn- aðist, svona næstum því , hann brann víst bara smávegis. Pabbi var samt bara nokk- uð stoltur af því að hafa náð að klára þetta allt, einn og á met- tíma. Spurði svo mömmu yfir borðhaldinu „Jæja Vala mín, er þetta ekki gott?“ Þá kom bara svona þreytulegt bros frá mömmu, hún sagði ekki neitt, en þetta var líklega ekki besti hryggur sem hún hafði smakkað, en hann er örugg- lega sá eftirminnilegasti. Þetta er ein af skemmtilegustu minning- um foreldra minna þótt þessi jól hafi ekki verið alveg eftir bókinni.“ Þegar pabbi sá um jólin Guðni Sigurðsson rifjar upp skemmtileg- ustu minn- ingu foreldra sinna. Mynd | Rut Laugavegi 15 og Kringlunni - sími 511 1900 - www.michelsen.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.