Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 56
56 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. desember 2016 Börnin ræða um hvað sé best í skóinn að telja upp hluti sem hún hefur fengið í skóinn þetta árið. „Fyrst fékk ég frá Stekkjastaur, en, æ, ég er búin að gleyma hvað það var. Giljagaur gaf mér svona langt band með slímhöndum sem labba niður allt og lilli brósi fékk líka þannig. Síðan fékk ég frá Stúfi, perlur sem lýsa í myrkri og svona Poppy spjöld. Frá Þvörusleiki fékk ég ballerínu- band, prik með litríkum spaða sem maður getur dinglað svona í kringum sig með þokka. Ef ég mætti óska mér fimm hluta sem ég fengi í skóinn frá jólasveininum þá myndi það vera: 1 Litríkur hringur sem skiptir um lit eftir skapi. Spjald fylgir með sem segir hvaða litur er hvaða tilfinning. Þegar hring urinn er rauður er maður reiður. Hr- ingurinn veit allt. Ég átti hann einu sinni. Og vissiru það? 2 Poppyspjöld en þau voru einmitt ein ósk. Litli bróðir minn fékk Poppy í dag og bat- manregnhlíf. 3 Úr, nei ég var að grínast, ég á úr. Mig langar í svona litla bangsakisu. 4 Jólasveinahúfa með ljósum á. Ég á enga, bara lilli bróðir. 5 Andlitsmálningu til að mála sig eins og tígrisdýr til dæmis. Ég á eina en hún er búin. Það versta sem maður getur fengið í skóinn er prumpublaðra. Eða nei, það er líka það besta. Mig langar í hana og ekki.“ Hún segist aldrei hafa fengið kartöflu í skóinn. „Mamma mín fékk einu sinni þegar hún var lítil og hún var svo reið að hún henti henni út um gluggann. Frænkurn- ar mínar eru systur hennar og þær sáu þetta.“ „Alvarlegur svipur kemur Mel- korku. Hún færir sig nær blaða- manni og hvíslar. „Á ég að segja þér eitt? Ein stelpa sagði mér að um daginn hefði hún verið að öskra í skólanum og hún öskraði svo hátt að þegar hún vaknaði þá stóð í bréfi frá Stekkjarstaur: Þú verður að passa þig að hafa ekki svona hátt. Ég heyrði þetta. Þú varst næstum því búin að fá ljótustu kartöfluna. Hún er í þriðja bekk!,“ æpir Melkorka. „Í sama skóla og ég!“ Verst að fá lirfu í skóinn „Ég fékk dótabíl í skóinn. Svona járnbíl. Eins og alvörunni bílar nema litlir. Svo fékk ég rúllukefli í dag og líka svona stóran sleikjó. Ég er ekki búinn að borða sleikjóinn en kannski næst þegar ég er með kósí- kvöld,“ segir Oliver Helgi Gíslason. 1 Besta gjöf sem ég gæti fengið í skóinn væri dótabyssa. Með svona kúlum og svo ýtir maður á takka og þá skjótast þær út. Ekkert vont því þetta eru bara gúmmískot. 2 Mig myndi líka langa í dóta- iPhone. Dóta, bara dóta. 3 Líka dótamyndavél sem er ekki hægt að taka alvöru mynd- ir á. Það kemur bara alltaf sama myndin. Eins og af jóla- sveinunum. 4 Ég hugsa mikið um svona YooHoo bangsa. Stundum eru það kisur, páfagaukar, uglur eða skjaldbökur. Mér finnst hundur- inn sætastur. Hann er ógeðslega mikið krútt. 5 Í fimmta sæti er eitt sem kemst eiginlega bara í stígvél: Dóta- -iPad. Ég hef séð svoleiðis. Það er svona Youtube, smáleikir og Strætóappið, en það er ekki hægt að fara inn í hann. Bara plast. Það versta sem hægt er að fá í skó- inn er dótakúkur. Eða nei, það er ekki dótakúkur. Það er besta. Þá getur maður þóst vera að kúka. Ég myndi kannski bara segja lirfa væri verst.“ Myndi vilja síma Karitas Lóa Þórðardóttir segist vera búin að fá fullt af nammi í skóinn þetta árið og er greinilega alsæl með það en óskalistann er eftirfarandi: 1 Af öllum hlutum í heiminum myndi ég vilja fá síma í skóinn. Ég myndi nota hann til þess að hringja og fara í leiki. 2 Bók um lóuna, fuglinn. Ég heiti einmitt Karítas Lóa. 3 Skopparabolti með glimmeri og dýr inni í. 4 Hárbursta því minn er svo lélegur. 5 Tölvu. Bara fyrir mig. Stóru systur mínar eiga báðar tölvu. Sægræn skál á óskalistanum Mentos, mandarínur og herðatré eru þeir hlutir sem koma fyrst upp í huga Lísu Ingólfsdóttur af því sem hún hefur þegar fengið í skóinn þetta árið. „En fimm bestu hlutirnir í skóinn væru: 1 YooHoo bangsi sem eru svona bangsar á lyklakippum sem maður setur á skólatöskuna. Ég á nú þegar einn. Fiskur væri flottur. 2 Það næstbesta sem ég gæti fengið væri jólasveinahúfa. Systir mín á svoleiðis og er oft með hana í skólanum. 3 Geisladiskur með ævintýri. 4 Sægræn skál fyrir penna og liti. 5 Leslampi er líka á óskalistanum. Lítill lampi sem maður getur haft á skrifborði til að lýsa á bók. Þá sér maður betur. Uppá- haldslesefnið mitt eru Galdra- stelpurnar.“ Lísa er ekki lengi að hugsa sig um þegar hún er spurð að því versta sem hægt er að fá í skóinn. „Skó- horn.“ Róbert Gylfi er greinilega hrifinn af dýrum enda dýr áberandi á óskalistanum hans. Melkorka veit upp á hár hvaða hluti hana langar í og þykir varhugavert að fá kartöflu í skóinn. Oliver segir það versta en jafnframt það besta að fá í skóinn sé dótakúkur. Karitas Lóa er ekkert að skafa utan af hlutunum og segir bestu gjöf- ina í skóinn vera iPhone. Á óskalista Lísu eru meðal annars sægræn skál og leslampi. Myndir | Hari Birna Guðmundsdóttir birna@frettatiminn.is Glimmerbolti með risaeðlu „Ég er mjög ánægður með það sem ég hef fengið í skóinn. Fékk til dæmis skopparabolta sem er nú ekki beinlínis skopparabolti, en sko hann er bolti sem skoppar ekki mikið. Er með risaeðlu inn í og glimmeri. Gulur á litinn,“ segir Ró- bert Gylfi Stefánsson. „Síðan vaknaði ég í nótt, klukkan held ég korter yfir fjögur, og kíkti í skóinn og fann súkkulaði sem ég tók með mér upp í rúm svo það bráðn- aði. Síðan setti ég það inn í ísskáp. Ég borðaði það í morgun.“ Róbert segir að sig langi í eftirfar- andi í skóinn: 1 Mig langar í bók. Ég er mik- ið fyrir að skoða bækur. Hún mætti vera um nashyrninga eða fíla. 2 Kannski einhverja mynd upp á vegg. Til dæmis af sebrahesti Fréttatíminn tók nokkur sex ára börn á tali og ræddi við þau um mál málanna: Hvaða fimm hluti þau vilji helst fá í skóinn. Listarnir eru misjafnir, allt frá glimmer skopparabolta til dóta- iPads en krakkarnir deildu því líka hvað þeir hafi nú þegar fengið og hvað það sé sem er verst að fá. sem er uppáhalds dýrið mitt. Eða kannski bara einhverju. 3 Í fyrra fékk ég legó en það var eins og ég átti. Jólasveinninn var aðeins að ruglast og þá þurfti bara að skipta því út. Ég á tvær fullar skúffur af legó. Dýralegó væri skemmtilegt. 4 Box með mynd af síma á. Svona gamaldags síma sem hangir uppi á vegg þar sem maður tek- ur tólið af og setur við eyrað. Dálítið eins og hlustunarpípa. 5 Fleiri mandarínur. Ég fékk nokkrar frá Giljagaur en ég fæ aldrei nóg. Skaphringur sem skiptir um lit Melkorka Björk Iversen byrjar á því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.