Fréttatíminn - 16.12.2016, Blaðsíða 64
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Síðan ég man eftir mér hef ég alltaf fylgst með konunum í kringum mig mála sig, fyrst mömmu og svo vinkonunum mín-
um. Þegar vinkonur mínar voru að
mála sig þá fór ég að skipta mér af
og gefa mitt álit á því sem þær voru
að gera. Svo byrjaði ég að prófa að
mála yngri systur mína fyrir böll í
skólanum og í framhaldinu vinkon-
ur mínar,“ segir Alexander Sigurð-
ur Sigfússon sem í dag verður fyrsti
strákurinn til að útskrifast sem
förðunarfræðingur frá Reykjavík
makeup school.
Var áhugamál í fyrstu
Hann hefur alltaf verið mjög list-
rænn, teiknað mikið og sá fyrir
sér að fara í einhvers konar list-
nám. Honum datt samt ekki í hug
að hann myndi finna sína hillu í
förðunarfræði. Það var ekki fyrr
en ein vinkona hans fór í Reykjavík
makeup school og bar skólanum vel
söguna að hann fór að spá í námið.
Hann lenti á biðlista þegar hann
sótti um en komst inn á síðustu
stundu nú í haust.
„Þetta var fyrst eitthvað sem mig
langaði að prófa að læra, svona til
að hafa meðfram einhverju öðru,
kannski frekar sem áhugamál en
vinnu, en ég fílaði mig svo vel í
náminu að ég er búinn að ákveða
að þetta er eitthvað sem ég vil gera.
Ég sé því alveg fyrir mér að fara í
áframhaldandi nám. Ég ætla að sjá
hvernig þetta mun ganga hjá mér
í vetur og taka svo ákvörðun um
framhaldið,“ segir Alexander sem
er 21 árs og hefur starfað í versl-
uninni Spútnik á Laugavegi frá því
hann lauk stúdentsprófi frá MH á
síðasta ári.
Lærði meira en hann bjóst við
Þrátt fyrir að Alexander, eða Alex
eins og hann er alltaf kallaður, hafi
haft áhuga á förðun frá barnæsku
og prófað sig áfram síðustu ár,
þá segist hann í raun ekkert hafa
kunnað að farða. „Ég hafði verið
að horfa á myndbönd á Instagram
og Youtube en ég kunni í raun ekki
að nota vörurnar á réttan hátt. Þær
í skólanum kenndu mér það og ég
lærði miklu meira en ég bjóst við
að ég myndi gera. Þetta er með því
skemmtilegasta sem ég hef gert og
kennararnir eru þeir bestu í heimi.“
Námið stóðst því allar væntingar
hans og vel rúmlega það. „Ég bjóst
aldrei við því að ég myndi átta mig
á því að þetta væri það sem ég vildi
gera.“
Það var í raun eitt verkefni
sem gerði útslagið og sannfærði
Alex endanlega um að þetta væri
draumastarfið. En vinkona hans,
sem er í Ljósmyndaskóla Sissu, var
að gera lokaverkefni og bað hann
um að farða módelin fyrir sig. Þar
fékk hann nasaþefinn af því að
vera á setti með fyrirsætunum og
ljósmyndurunum. „Það var þá sem
ég áttaði mig á því að þetta vildi
ég gera. Ég er mjög spenntur fyrir
tímabilaförðun og tískuförðun. Ég
hef líka alltaf verið spenntur fyrir
tísku og fatnaði.“
Hálf rússneskur
Sem barn var í Alex Myndlistar-
skólanum í Reykjavík og það hef-
ur alltaf legið vel fyrir honum að
skapa í höndunum. „Ég teiknaði
mikið af portrettmyndum af stelp-
um og konum þar sem ég teiknaði
augnhár, eyeliner og skyggingar á
augnskugga mjög nákvæmlega. En
mamma mín er snyrtifræðingur og
átti naglastofu. Þannig áhuginn hef-
ur örugglega líka smitast frá henni.
Mamma sagði að ég hefði alltaf haft
þetta í mér og það voru allir í kring-
um mig mjög ánægðir með að ég
færi í þetta nám.“
Móðir Alex, Anastaia Pavlova, er
rússnesk og fluttist hingað til lands
18 ára gömul, með foreldrum sínum
sem störfuðu í rússneska sendi-
ráðinu. En faðir hans er Sigfús Sig-
urðsson, fyrrverandi landsliðs- og
atvinnumaður í handbolta.
Alex er fæddur og uppalinn á
Byrjaði að farða
litlu systur sína
Alex er fyrsti strákurinn til að útskrifast sem
förðunarfræðingur frá Reykjavík makeup
school. Hann hefur alltaf verið mjög listrænn
og stefndi á listnám en bjóst ekki við að finna
sig í förðunarnámi. Þetta átti bara að vera
áhugamál. Alex á rússneska móður en faðir
hans er Sigfús Sigurðsson, fyrrverandi lands-
liðsmaður í handbolta. Þeir eru góðir félagar
og einstaklega líkir í útliti.
Íslandi en talar reiprennandi rúss-
nesku og er duglegur að halda
henni við. Hann talar yfirleitt rúss-
nesku við mömmu sína og hefur
gert alveg frá því byrjaði að tala.
Honum finnst lítið mál að skipta á
milli tungumála þó rússneska og
íslenska séu mjög ólík tungumál.
„Ég kenndi sjálfum mér að skrifa og
lesa rússneskuna en ég kann ekki
stafsetningu og málfræði rétt. Svo
af því mamma er rússnesk og pabbi
íslenskur þá töluðu þau ensku sín á
milli. Þannig ég lærði líka ensku á
heimilinu.“
Ræktaði tungumálið
Alex segir það hafa komið sér á
óvart hvað margir tali rússnesku á
Íslandi, en þegar hann var í MH þá
voru fimm eða sex krakkar í skólan-
um sem höfðu einhverja tengingu
við Rússland eða töluðu rússnesku.
„Þegar ég var lítill þá gat ég farið
í hálfgerðan rússneskuskóla um
helgar. Og vinkona hennar mömmu
skipulagði reglulega viðburði fyrir
rússneska krakka sem bjuggu á Ís-
landi, til að hittast og rækta tungu-
málið. Það voru mjög margir sem
mættu á það. Ég er ánægður með
að rússnesku rótunum hafi verið
haldið svona vel við hjá mér. Ég
held að það muni alveg koma mér
að góðum notum í framtíðinni að
kunna rússnesku.“
Þegar Alex var yngri fór hann
alltaf til Rússlands á sumrin að
heimsækja ættingja sína, en það
hefur aðeins dregið úr því í seinni
tíð, eftir að hann byrjaði að vinna.
„Þegar foreldrar mínir skildu fór
mamma reyndar með mig í smá
tíma til Rússlands en svo komum
við aftur hingað svo ég gæti verið
í sambandi við ömmu og afa og
pabba, en foreldrar mínir eru mjög
góðir vinir. Ísland er líka svo góður
staður til að alast upp. Pabbi var
alltaf að spila handbolta úti þegar
ég var lítill en ég heimsótti hann
reglulega. Hann bjó meðal annars í
Þýskalandi og á Spáni.“
Ekki ýtt út í handbolta
Alex og faðir hans eru mjög líkir
í útliti og þeir eru góðir vinir þó
áhugamál þeirra séu kannski ólík.
„Foreldrar mínir reyndu að setja
mig í íþróttir þegar ég var lítill en
ég entist ekkert í því. Ég fór bara
í myndlistarskólann.“ Hann seg-
ir föður sinn alls ekki hafa orðið
svekktan yfir því að sonurinn hefði
ekki haft áhuga á að feta í fótspor
hans í handboltanum. „Honum var
alveg sama,“ segir Alex hlæjandi.
Það er greinilegt að þrýstingurinn
á að hann færi á handboltaæfingar
var ekki mikill. „Ég æfði samt ein-
hverjar íþróttir, eins og körfubolta
og karate, en foreldrar mínir vilja
að ég geri það sem ég hef áhuga á
og hafa alltaf stutt mig í öllu sem ég
geri.“
Að gera eitthvað öðruvísi
Þrátt fyrir að Alex sé fyrsti strák-
urinn til að útskrifast sem förðunar-
fræðingur frá Reykjavík makeup
school þá hafa fleiri strákar sótt um
að komast inn í námið. „Þeir hafa
Smitaðist af mömmu Móðir Alex er snyrtifræðingur og hann telur það hafa haft sitt að segja að áhugi hans á förðun kviknaði. Mynd | Rut
hins vegar allir hætt við af einhverj-
um ástæðum. Ég var sjálfur alltaf
með það bak við eyrað þegar ég
sótti um að það væri kannski skrýt-
ið að vera strákur í þessu námi.
Ég var ekki beint stressaður eða
smeykur en mjög meðvitaður um
að ég væri að gera eitthvað öðru-
vísi. En svo kom ég skólann og þess-
ar hugsanir hurfu strax.“
Alex er strax kominn með nokk-
ur verkefni sem förðunarfræðing-
ur, meðal annars með einum
kennara úr skólanum og svo mun
hann farða fyrir tískusýningu á
næstunni. Hann er spenntur að fá
að gera meira af því sem hann hef-
ur ástríðu fyrir. Og að áhugamálið
þróist yfir í starfsferill. „Ég ætla að
safna meira í möppu og skapa mér
eitthvert nafn. Það er frábært að
fá þessi tækifæri, mér finnst þetta
mjög gaman.“
Mikið úrval af fallegum
jólagjöfum
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2016
Ég er ánægður
með að rúss-
nesku rótunum hafi
verið haldið svona
vel við hjá mér. Ég
held að það muni
alveg koma mér
að góðum notum í
framtíðinni að kunna
rússnesku.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is.
Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.