Fréttatíminn - 14.01.2017, Page 6
Ríkisskattstjóri segir skattskil
stórs hluta notenda aflandsfélaga
vera vafasöm. Skattaskjólssér-
fræðingurinn Torsten Fensby
segir aldrei hægt að réttlæta
notkun á skattaskjólum. Bjarni
Benediktsson er orðinn forsætis-
ráðherra þrátt fyrir eignarhald
sitt á aflandsfélagi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
„Það ætti að vera fullkomlega ósam-
ræmanlegt að einstaklingur í opin-
beru starfi sé á sama tíma tengdur
við fyrirtæki í skattaskjóli. Notkun á
aflandsfélögum er aldrei réttlætan-
leg og eðlileg,“ segir sænski skatta-
skjólssérfræðingur Torsten Fens-
by meðal annars aðspurður um þá
stöðu sem komin er upp á Íslandi
að Bjarni Benediktsson sé orðinn
forsætisráðherra Íslands eftir kosn-
ingarnar í október.
Bjarni tengdist skattaskjólsfé-
laginu Falson & Co. á Seychelles-
-eyjum, eins og Panamaskjölin
opinberuðu, en hann notaði það
félag í fasteignaviðskiptum í fursta-
dæminu Dúbaí. „Aflandsfélög eru
kannski ekki ólögleg í strangasta
skilningi. En ef maður notar félag
í skattaskjóli er markmiðið alltaf
að fara í kringum eitthvað, hvort
sem það eru skattar, reglur um pen-
ingaþvott, reglur á fjármálamark-
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017
Erlendir fjölmiðlar hafa bent á þá
staðreynd að það sé einkennilegt að
fyrrverandi forsætisráðherra Íslands,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
hafi sagt af sér vegna aðkomu sinnar
að félagi í skattaskjóli og að næsti
forsætisráðherra, Bjarni Benedikts-
son, hafi einnig tengst slíku félaginu.
Mynd | AFP
aði, siðferðisreglur, reglur um hags-
munaárekstrar eða eitthvað slíkt.
Ég ætla að koma með dæmi: Ef þú
kaupir þér hjól þá lætur þú aflands-
félag ekki eiga hjólið ef markmiðið
er ekki að fara í kringum einhverjar
reglur. Það væri hreint fáránlegur
lykkja á leiðinni að því að verða eig-
andi hjólsins.“
Fréttatíminn leitaði til Fensbys,
sem meðal annars hefur unnið fyrir
OECD að því að reyna í koma í veg
fyrir skattasniðgöngu, til að biðja
hann um álit á umfangi aflandsvið-
skipta íslenskra stjórnmálamanna
og Íslendinga almennt. Skattaskjól
hafa talsvert verið til umræðu í ís-
lensku samfélagi liðna daga og vik-
ur eftir að í ljós kom að ráðuneyti
Bjarna Benediktssonar fjármála-
ráðherra ákvað að sitja á skýrslu
um umfang skattaskjólseigna Ís-
lendinga erlendis og Panamaskjölin
í rúma þrjá mánuði, frá því í byrjun
október 2016 og þar til í byrjun jan-
úar 2017. Bjarni hefur sagt að hann
hafi viljað bíða með að kynna skýr-
sluna þar til hún gæti verið tekin til
umfjöllunar á Alþingi en slíkt var
ekki mögulegt í byrjun október þar
sem styttist í þinglok í aðdraganda
kosninganna í lok þess mánaðar.
Myndin sem Fensby teiknar upp
af notkun á fyrirtækjum í skatta-
skjólum er samræmanleg við niður-
stöðu embættis ríkisskattastjóra í
nýjasta hefti tímaritsins Tíund-
ar þar sem fjallað er um skattskil
þeirra sem notað hafa aflandsfélög
á Íslandi. „Það ætti ekki að koma á
óvart að skattskil stórs hluta þeirra
sem tengjast aflandsfélögum hafi
verið vafasöm.“ Í grein embættis-
ins er þessi ályktun dregin út frá
því að af skattskilum þeirra 230
íslensku aðila sem ríkisskattstjóri
skoðaði sérstaklega þurfti að óska
eftir frekari skýringum á skattskil-
um 128 þeirra eða ríflega 55 prósent
og voru svo endurákvarðaðir skatt-
ar á hluta þeirra fyrir samtals 1,5
milljarða króna. Þessi tala bendir til
að það geti almennt séð verið eitt-
hvað athugavert við skattskil meira
en helmings þeirra aðila sem nota
fyrirtæki í skattaskjólum.
Fensby segir hins vegar að þeir
sem eru vændir um lögbrot eða
spillingu séu saklausir þar til sekt
þeirra er sönnuð. Um stöðu Bjarna
vegna skýrslunnar segir hann hins
vegar að það sé regla í lýðræðissam-
félögum að stjórnmálamenn sem
lendi í slíkri umræðu eigi að stíga til
hliðar þar til búið er að skoða mál
þeirra. Í tilfelli Bjarna vék hann
ekki úr embætti ráðherra meðan
skattaskjólsskýrslan var unnin að
beiðni hans, jafnvel þó hann væri
í Panamaskjölunum. „Reglan er til-
komin svo að pólitískt vald eða op-
inber stofnun líti ekki tortryggilega
út eða að grafið sé undan henni.
Ef einstaklingurinn stígur ekki til
hliðar getur litið svo út að vinnan
sé unnin á forsendum eiginhags-
muna.“ Miðað við þetta svar Fens-
bys þá hefði Bjarni hugsanlega átt
að víkja úr embætti fjármálaráð-
herra við gerð skýrslunnar þar sem
efni hennar fjallaði óbeint um hann
sjálfan.
2011 9 9 0 40.657.604 5
2012 58 53 5 325.131.796 32
2013 44 43 1 1.030.676.620 8
2014 14 14 0 113.797.160 8
2015 3 3 0 - 3
Heimild: Tíund RSK
Rannsóknir ríkisskattstjóra á skattskilum aflandsfélaga
2011-2015 og hverju þær skiluðu í ríkiskassann
Gjaldár Fjöldi mála
Fjöldi
einstaklinga
Fjöldi
lögaðila
Gjalda-
breytingar
Fjöldi mála
með gjalda-
breytingu
Fararstjóri: Guðrún Bergmann
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Á Inkaslóðum í Perú
Í þessari ævintýraferð munum við fræðast um hina fornu
Inkamenningu Perú og heimsækja Cusco höfuðborg
Inkaveldisins, skoða minjar frá nýlendutímanum, hrífast
af yfirgefnu borginni Machu Picchu og hinu stórbrotna
Titicaca vatni. Dásamleg ferð sem gerir menningu og
mannlífi Perú góð skil.
Allir velkomnir á kynningarfund 16. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
sp
ör
e
hf
.
1. - 16. október
föstud. og laugard.
13. og 14. jan.
dansiball
www.kringlukrain.is
Kringlukráin
Kringlunni 4-12
Sími 568 0878
www.kringlukrain.is
„Notkun á aflandsfélögum
er aldrei réttlætanleg og
eðlileg.“
Ósamræmanlegt
að eiga félag í
skattaskjóli og vera
stjórnmálamaður
Torsten Fensby segir notkun á skattaskjólsfélögum aldrei eiga sér eðilegar skýringar.