Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 14.01.2017, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 14. janúar 2017 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 2003 1. 81 5 1. 88 6 1. 93 3 1. 92 3 2. 12 0 2. 33 1 2. 65 6 3. 13 6 3. 69 5 4. 18 8 4. 82 9 5. 30 6 5. 51 6 2015 Þó að fjölgun tilkynntra tilfella um dánaraðstoð hafi verið nokkur á síðustu árum í Hollandi hefur hlutfall þeirra tilvika af heildarfjölda dauðsfalla farið minnkandi. Því veldur öldrun hollensku þjóðarinnar. Árið 2015 voru 5516 skráð tilvik hjá þessari 17 miljóna þjóð. Tilfelli um dánaraðstoð í Hollandi Við þurfum að spyrja: Hvernig vil ég deyja? Holland var fyrsta landið í heiminum til að heimila dánaraðstoð við þá sem haldnir eru ólæknandi sjúkdómi. Hollenski læknirinn Rob Jonquière þekkir vel til þessara mála og segir mikilvægt að heilbrigðisstarfsmenn og almenningur ræði opinskátt um það hvernig líkn fyrir dauðvona sjúklinga sé háttað. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Dánaraðstoð, það að binda enda á líf ein-hvers viljandi til að lina sársauka og þján-ingu, er líklega eitt- hvað sem fylgt hefur mannkyninu alla tíð, en þó yfirleitt þannig að það hefur farið fram í skugga og þögn. Blað var brotið í þessum efn- um þegar Hollendingar settu fyrst- ir þjóða sérstök lög þar sem dánar- aðstoð var heimiluð að uppfylltum sérstökum skilyrðum en lögin tóku gildi 1. apríl 2002. Samkvæmt lögunum þarf sjúk- lingur sem fer fram á slíka aðstoð að vera haldinn ólæknandi sjúk- dómi, hafa gert svokallaða lífs- skrá og vera með óbærilega verki sem engin leið er að lina. Ósk um dánaraðstoð þarf að vera ígrunduð og líkamlegt og andlegt ástand sjúklingsins vottað af tveimur læknum. Læknir þarf síðan að skila skýrslu, þegar dánaraðstoð hefur verið veitt, til nefndar sem fer yfir hvert mál fyrir sig. Vill opna umræðuna Rob Jonquière er hollenskur lækn- ir sem er framkvæmdastjóri heims- samtaka félaga um réttinn til að deyja. Hann er staddur hér á landi til að ræða um dánaraðstoð á fund- um og hitta ráðamenn um málið, en undir lok mánaðar er ráðgert að Rob Jonquière hefur fylgst náið með dánaraðstoð í Hollandi frá því snemma á áttunda áratugnum. Hann hvetur til umræðu um þessi málefni víða um lönd, líka hér á Íslandi. Mynd | Hari stofna ný íslensk samtök um dánar- aðstoð sem munu heita Lífsvirðing. „Ég fór fyrst að leiða hugann að því hvernig við kveðjum þetta líf á áttunda áratugnum,“ segir Rob Jonquière. „Þá hafði ég lært læknis- fræði og hafið störf sem fjölskyldu- læknir í Hollandi. Í læknanáminu höfðum við verið send inn á spít- ala til að hitta sjúklinga sem lágu fyrir dauðanum og ég man að mér fannst það sérstakt þegar sérfræði- læknarnir litu snögglega við hjá sjúklingnum, horfðu yfir skrán- ingarspjald hans, sögðu síðan að allt væri í lagi og héldu áfram för sinni milli sjúkrarúma. Ég man að ég vissi ekki alveg hvort ég átti að vera lengur hjá sjúklingnum eða halda bara áfram,“ segir Jonquière sem fannst þessi stofnanablær á síðustu andartökum sjúklinga heldur kaldranalegur. Jonquière fór því að leiða hugann að spurningunni um það hvernig við viljum enda líf okkar. „Þetta er spurning sem við erum skiljanlega oft smeyk við, enda er dauðinn út- skúfaður í nútímanum, hann er falinn okkur flestum. Foreldrar mínir voru meðlimir að hollensk- um samtökum sem heita Rétturinn til að deyja, en þau voru stofnuð árið 1973, þannig að ég hafði velt þessu nokkuð fyrir mér. Á þessum tíma var umræðan um dánarað- stoð mikil innan heilbrigðisgeirans í Hollandi og þegar sjúklingar mín- ir voru greindir með ólæknandi sjúkdóm þá vandi ég mig á að opna fyrir þessa umræðu, fá viðkomandi til að velta fyrir sér hvernig hann sæi fyrir sé endalokin. Jafnframt gerði ég viðkomandi ljóst að ég væri tilbúinn að ræða dánaraðstoð þó svo að það væri ekki löglegt fyr- irbæri á þessum tíma. Þetta leiddi til þess að á áttunda áratugnum aðstoðaði ég tvo einstaklinga við að binda enda á þjáningar sínar og veikindi. Atburðirnir eru mér auð- vitað mjög minnisstæðir en ég er ánægður með þær ákvarðanir þótt ég hafi brotið lög.“ Helgi lífsins Í rökum þeirra sem leggjast gegn dánaraðstoð og geta ekki séð fyrir sér að yfirvöld komi upp reglum um slíka líkn fyrir alvarlega veika einstaklinga, er algengt að rekast á umræðu um helgi lífsins. Lífsandi mannsins er þannig álitinn helgur og ekki í mannlegu valdi að taka hann frá einstaklingnum. En hvernig svarar Rob Jonquière slíkum gagnrýnisröddum sem jafn- vel segja að hollensk stjórnvöld hafi gengið alltof langt í þessum efnum? „Sumir halda því fram að lífið sé guðsgjöf og að við eigum ekki að skipta okkur að guðsvilja. Í hinum frjálslyndu samfélögum nútímans er sú skoðun samt ekki rétthærri en aðrar sem snúast um stjórn sár- sjúkra einstaklinga yfir eigin lífi. Trúaða einstaklinga, sem velja að fá dánaraðstoð, hef ég líka heyrt segja að lífið kunni að vera guðs- gjöf, en þá geti þeir líka ráðstafað þeirri gjöf með þessum hætti.“ Jonquière segir kristin rök um helgi lífsins ekki á starfssviði lækna. „Læknar græða sár og draga úr þjáningu. Þeir gera lífið betra fyrir sjúklinga sína. Ef eina leiðin við að minnka þjáningar er að binda enda á lífið þá ættum við að geta gert það, ef viðkomandi fer fram á slíka aðstoð. Lagaramminn þarf líka að vera skýr og vandað- ur. Læknirinn leggur aldrei slíkt til en hann getur aðstoðað ef við- komandi biður um slíkt örþrifaráð. Beiðnin er alltaf lykilatriði.“ „Þetta er spurning sem við erum skiljanlega oft smeyk við, enda er dauðinn útskúfaður í nú- tímanum, hann er falinn okkur flestum. SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 14-28 Íþróttabolur * Stærðir 14-22 4.990 KR Dry Fit jakkapeysa * Stærðir 14-32 10.990 KR Sport Leggings * Stærðir 14-22 6.990 KR Hettupeysa * Stærðir 14-26 5.990 KR Íþróttatoppur * Stærðir 14-24 6.990 KR Dry-fit Íþróttabolur * Stærðir 14-32 6.590 KR NÝ SENDING MEÐ JÓLAKJÓLUM Mikið úrval í stærðum14-28 eða 42-56 Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is VERTU VELKOMIN Í VERSLUN CURVY AÐ FÁKAFENI 9 EÐA SKOÐAÐU ÚRVALIÐ OG PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS VERTU FLOTT Í RÆKTINNI! CURVY BÝÐUR UPPÁ FLOTTAN ÍÞRÓTTAFATNAÐ Í STÆRÐUM 14-32

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.