Fréttatíminn - 14.01.2017, Síða 32
4 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
Eimskip og samfélagið –
órjúfanleg heild
Samfélagsábyrgð spilar stóran þátt í starfsemi Eimskips og byggir á gildum félagsins.
Unnið í samstarfi við Eimskip
Á undanförnum árum hef-ur Eimskip tekið auk-inn þátt í samfélags- og umhverfismálum og er í
fararbroddi er varðar samfélags-
lega ábyrgð.
Allt frá stofnun Eimskipafé-
lagsins árið 1914 hefur félagið
látið samfélagsmál til sín taka.
Áherslur í samfélagsmálum hafa
tekið breytingum í gegnum ára-
tugina og tekið mið af þeim að-
stæðum og þekkingu sem verið
hefur til staðar á hverjum tíma.
Sem dæmi má nefna að um það
leyti sem félagið var stofnað var
það mikilvægt samfélagslegt
mál fyrir Íslendinga að öðlast
sjálfstæði. Stofnendur Eimskipa-
félagsins og þjóðin öll vissu að
án tryggra samgangna til og frá
landinu væri borin von að eyland
eins og Ísland gæti staðið á eigin
fótum og landið yrði alltaf undir
ákvörðunarvaldi annarra þjóða.
Með stofnun Eimskips gátu Ís-
lendingar loks valið þær þjóðir
sem þeir vildu vera í viðskiptum
við, sem leiddi af sér aukið frelsi
og þróun samfélagsins.
Eimskip skilgreinir samfélag-
ið sem einn af haghöfum félags-
ins. Samfélagsábyrgð félagsins
spilar stóran þátt í starfseminni
og byggir á gildum félagsins,
en umhverfismál eru þar mikil-
vægur þáttur. Samfélagsábyrgð-
in tekur bæði á siðferðilegum
viðmiðum í viðskiptum og þeirri
almennu ábyrgð sem félagið axlar
í því samfélagi sem það starfar í
hverju landi fyrir sig.
Á undanförnum árum hefur
Eimskip tekið aukinn þátt í sam-
félags- og umhverfismálum, enda
hafa rannsóknir sem liggja fyrir í
þeim efnum bent til þess að mikil-
vægt sé að samfélög og fyrirtæki
lyfti grettistaki til að spyrna við
þeirri þróun sem orðið hefur í
umhverfismálum á undanförnum
áratugum.
Eimskip var með fyrstu fyrir-
tækjunum á Íslandi til að setja
sér stefnu í umhverfismálum árið
1991 og gengur umhverfisstefnan
út á það að bera virðingu fyr-
ir umhverfinu og leitast við að
lágmarka skaðsemi rekstrarins
á umhverfið. Umhverfisvernd og
-vitund endurspeglast í rekstri
fyrirtækisins.
Eimskip leggur áherslu á að
vinna eftir þeim lögum og reglum
sem í gildi eru á hverjum tíma,
leggur sig fram um að kynna sér
og innleiða allar þær reglur sem
gilda í þeim 19 löndum þar sem fé-
lagið starfar og virðir alþjóðasam-
þykktir sem lúta að rekstri félags-
ins, hvort sem er á sjó eða landi.
Í gildi eru til dæmis alþjóðareglur
um brennslu svartolíu á vissum
hafsvæðum við strendur þjóð-
ríkja. Þar má ekki brenna svartolíu
heldur verður að brenna olíu sem
mengar minna og er umhverfis-
vænni. Eimskip hefur í mörg ár
þar á undan unnið að verkefni
með Marorku við að finna leiðir til
að brenna minni olíu í skipum sín-
um. Í því samhengi hefur félagið
látið koma fyrir sérstökum mæli-
búnaði frá Marorku í skipunum og
hefur búnaðurinn, ásamt áherslu
á að beita sem hagkvæmustu lagi
við að sigla skipunum á hverjum
tíma, leitt til þess að verulega
hefur dregið úr olíunotkun þeirra.
Eimskip hefur lagt áherslu að
vera leiðandi í því að innleiða nýja
tækni í þessum tilgangi og bíður
ekki eftir því að reglur eða lög séu
sett um innleiðingu á nýrri tækni.
Eins og flest fyrirtæki á Íslandi
flokkar Eimskip úrgang og leggur
áherslu að það sé gert á öllum
starfsstöðvum félagsins. Unnið er
að því að auka enn frekar magn
endurvinnanlegs úrgangs hjá
félaginu og auka ábyrgð starfs-
manna á þeim úrgangi og sóun
sem að þeim snýr.
Eimskip undirritaði yfirlýs-
ingu um markmið í loftslagsmál-
um í nóvember 2015 og hefur frá
þeim tíma lagt áherslu á að setja
fram markmið og mælingar í um-
hverfismálum. Félagið mun frá og
með árinu 2017 birta mælingar
á vistspori félagsins í samræmi
við loftslagsyfirlýsinguna og sett
verður upp reiknivél kolefnisspors
fyrir viðskiptavini til að koma til
móts við þarfir markaðarins.
Nú í byrjun ársins var félag-
ið eitt af fjölmörgum fyrirtækj-
um í ferðaþjónustu sem undir-
ritaði sameiginlega yfirlýsingu
um ábyrga ferðaþjónustu. Menn
gætu spurt sig að því hvers vegna
Eimskip tekur þátt í slíku verkefni
tengdu ferðaþjónustu, en Eim-
skip rekur í dag ferjurnar Herj-
ólf og Baldur, ásamt því að reka
skemmtisiglingaskipið Særúnu
sem siglir um Breiðafjörð. Að auki
sinnir Eimskip móttöku flestra
skemmtiferðaskipa sem koma
til landsins á ári hverju í gegn-
um dótturfélög sín hér á landi.
Ábyrg ferðaþjónusta er hvatn-
ingarverkefni sem hefur þann
tilgang að stuðla að því að Ísland
verði ákjósanlegur áfangastaður
ferðamanna um ókomna tíð sem
styður við sjálfbærni fyrir kom-
andi kynslóðir þjóðarinnar. Með
ábyrgri ferðaþjónustu er átt við
Dettifoss í Sundahöfn.
Eitt af LNG skipum sem líklega verða
komin í notkun hjá félaginu á árinu.