Fréttatíminn - 14.01.2017, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 14.01.2017, Qupperneq 34
6 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA Samfélag án sóunar – samfélaginu til heilla Auðlindagarðurinn hvetur til frekari nýtingar á jarðhita og er einstakur á heimsvísu. Unnið í samstarfi við HS Orku. Auðlindagarðurinn sem byggst hefur upp í grennd við jarðvarmaver HS Orku á Suðurnesjum er einstak- ur á heimsvísu og boðar nýja hugsun sem hvetur til enn frekari þróunar og bættrar nýtingar á því sem jarðhitaauðlindin gefur af sér. Með Auðlindagarðinum vill HS Orka vekja fólk til umhugs- unar um þær verðmætu auðlindir sem fyrirtækinu hefur verið treyst fyrir og því falið að tryggja að endist kynslóð fram af kynslóð. Fjölnýting auðlinda styður við ábyrga nýtingu þeirra og stuðlar að sjálfbærri þróun samfélagsins,“ segir Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri Auðlindagarðs HS Orku. Auðlindagarðurinn er einstakur Samstarfið sem skapast hef- ur milli starfsmanna HS Orku og fyrirtækjanna innan garðsins er einstakt og undirstrikar sérstöðu íslenskrar jarðvarmavinnslu. Í venjulegum jarðvarmaorkuverum eru einn eða tveir auðlindastraum- ar nýttir, þ.e. heitt vatn og raf- magn. „Hjá okkur í Svartsengi og á Reykjanesi eru nýttir sjö auðlinda- straumar sem falla til við fram- leiðslu rafmagns og heits vatns. Auðlindin er dýrmæt og því mikil- vægt að við nýtum hana af ábyrgð, alúð og skynsemi og sóum engu,“ segir Kristín Vala. Fyrirtæki Auðlindagarðsins eru ólík en það er margt sem samein- ar þau. Þau hófu til að mynda flest starfsemi sína sem hátæknisprota- fyrirtæki og starfsemi þeirra byggir á öflugu þróunarstarfi og vísindum. „Þau nýta hvert um sig með beinum hætti tvo eða fleiri auðlindastrauma frá jarðvarma- verum HS Orku og verða því af augljósum ástæðum að vera stað- sett á Suðurnesjum í grennd við jarðvarmaverin. Starfsemi Auð- lindagarðsins byggist í raun upp á sameiginlegum hagsmunum fyrir- tækjanna, þ.e. affall eins er hráefni fyrir annað, nálægðinni og nánu þverfaglegu samstarfi.“ Kristín bendir á að markmið Auðlindagarðsins sé „Samfélag án sóunar“, að nýta beri alla þá auðlindastrauma sem streyma inn í og frá fyrirtækjum garðsins til fulls og á sem ábyrgastan hátt, samfélaginu til framþróunar og heilla. Virkjun jarðhita á Suðurnesj- um leggur því til hráefni í fjölþætta framleiðslu. Starfsemi Auðlinda- garðsins einkennist af rannsókn- um, þróun og nýsköpun og er öflugt verkfæri sem stuðlar að sjálfbærri þróun samfélagins. Hluti af starfsemi Auðlindagarðsins er að fylgjast með og skapa vett- vang fyrir vísindi og tækniþróun svo að nýta megi betur auðlinda- straumana og skapa þannig vett- vang fyrir samvinnu fyrirtækja í ólíkum greinum og með ólíkan bakgrunn. Auðlindagarðurinn er öflugt og ört stækkandi frum- kvöðlasetur. „Annað sérkenni Auðlinda- garðsins er að hann er eina frum- kvöðlaþyrpingin sem vitað er um að hafi byggst upp í kring- um jarðvarma. Jákvæð áhrif þessarar þyrpingar má sjá víða í samfélaginu eins og efnahags- greining Gamma hefur leitt í ljós. Einna helst ber að nefna að árið 2016 voru tæplega 900 heilsárs stöðugildi í Auðlindagarðinum og er rétt að geta þess í sam- hengi að starfsmenn HS Orku eru 60. Efnahagsleg áhrif Auðlinda- garðsins eru því mikil á svæðinu. Flest fyrirtæki innan Auðlinda- garðsins eiga það sameiginlegt að selja afurðir með einum eða öðrum hætti til erlendra aðila og því telst meirihluti tekna Auðlindagarðsins til gjaldeyristekna. Laun hjá fyrir- tækjum Auðlindagarðsins eru að jafnaði 25% hærri en annarsstaðar á Suðurnesjunum sem líklega má rekja til framleiðni fyrirtækja Auð- lindagarðsins,“ segir Kristín Vala. „Fyrirtækin í Auðlindagarðinum hafa á síðustu árum gegnt stóru hlutverki í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjunum og skapast hef- ur fjöldi vel launaðra starfa fyrir fólk með fjölbreytta menntun. Þá sækja fyrirtækin mikla þjónustu til sveitarfélaga á Suðurnesjum og af- leidd störf tengd starfseminni eru áætluð á annað þúsund. Fjölþætt nýting auðlinda stuðlar því beint að uppbyggingu og þróun samfé- lagsins og við erum stolt af þessari uppbyggingu sem hefur orðið hér á Reykjanesi,“ segir hún. Framtíðin er björt Kristín Vala segir að þrátt fyrir mikinn vöxt í Auðlindagarðinum séu auðlindastraumar frá starf- semi HS Orku hvergi nærri full- nýttir. „Um þessar mundir er verið að þróa aðferð til að einangra hreinan koltvísýring úr gufunni sem kemur úr borholunum. Þenn- an koltvísýring má svo selja og um leið minnka innflutning.“ HS Orka vinnur markvisst að því að því að fá ný, sérhæfð fyrirtæki í garðinn sem geta nýtt þá auð- lindastrauma sem í boði eru. Fleiri fjölbreytt og sérhæfð fyrirtæki sem grundvalla starfsemi sína á rannsóknum og þróun styrkja Auðlindagarðinn og þá hugsun sem starfsemi hans byggir á. Með aukinni tækni, vinnslunýtni og fjölgun fyrirtækja mun Auðlinda- garðurinn vaxa og eflast á næstu árum, Suðurnesjum og landinu öllu til hagsbóta. „Albert Albertsson hugmynda- fræðingur Auðlindagarðsins hefur alla tíð kennt okkur að vera ábyrg í okkar framleiðslu og gagnvart samfélaginu, að við eigum að lifa með náttúrunni en ekki á henni. Oft er talað um að hugsa út fyrir boxið en í hugmyndafræði Alberts sem við reynum að tileinka okkur, er ekkert box, það eina sem hindr- ar þróun er hugmyndaflugið. Auð- lindagarðurinn er afsprengi þessa hugsunarháttar“ segir Kristín Vala. Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri Auðlindagarðs HS Orku, segir að markmið Auðlindagarðsins sé að nýta alla þá auðlindastrauma sem streyma inn í og frá fyrirtækjum garðsins til fulls og á sem ábyrgastan hátt. Mynd | Hari „Hjá okkur í Svartsengi og á Reykjanesi eru nýttir sjö auðlindastraumar sem falla til við framleiðslu rafmagns og heits vatns. Auðlindin er dýrmæt og því mikilvægt að við nýtum hana af ábyrgð, alúð og skynsemi og sóum engu,“ segir Kristín Vala. Mynd | Ozzo

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.